Reykjavík

Gylfi Magnússon kjörinn stjórnarformaður OR
Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði, var kjörinn formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur á framhaldsaðalfundi félagsins í dag.

Deildu um „vinnuleti“ þegar tillaga um að fella niður borgarstjórnfund var felld
Umræður um „vinnuleti“ spruttu upp í borgarstjórn Reykjavíkur þegar þrír borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði gegn tillögu forsætisnefndar um að fella niður borgarstjórnarfund sem er á dagskrá á þriðja degi nýs árs.

Lögreglan afhenti innbrotsþjófi þýfið þegar hann var leystur úr haldi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu afhenti innbrotsþjófi í miðbænum það góss sem hann hafði stolið þegar verið var að leysa hann úr haldi. Íbúi í húsinu þar sem hann var gómaður segir málið hlægilegt en vonar að þjófurinn njóti þess litla sem hann hafði úr krafsinu.

„Það vildi enginn vinna með ykkur“
Snjómokstur Reykjavíkurborgar var til umræðu í Kastljósi kvöldsins á RÚV. Mörgum finnst borgin ekki hafa staðið sig í stykkinu við mokstur og söltun gatna. Til viðtals voru Einar Þorsteinsson, starfandi borgarstjóri, og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, en athygli vakti þegar Einar sagði engan annan borgarstjórnarflokk hafa viljað vinna með Sjálfstæðisflokki eftir kosningar í vor.

„Verkefnið hefur stækkað gríðarlega“
Snjómokstur í borginni verður sífellt umfangsmeiri samhliða stækkun borgarinnar. Fimmtíu snjómoksturstæki hafa verið notuð til að ryðja göturnar síðustu daga og hafa þau nú rutt samtals um þúsund kílómetra leið.

Ljótasta nýbygging landsins er á Hallgerðargötu
Húsið við Hallgerðargötu 13 hefur verið valið ljótasta nýbygging ársins 2022. Samtökin Arktektúruppreisnin stóðu fyrir kosningunni. Í sömu kosningu var Móberg á Selfossi valið fallegasta nýbygging ársins.

Diljá aðstoðar Dag
Diljá Ragnarsdóttir lögfræðingur hefur verið ráðin aðstoðarmaður Dags B. Eggertssonar borgarstjóra.

„Dagurinn verður ekki dimmari en í dag en á morgun fer að birta“
Í kvöld, 21. desember fer fram árleg Vetrarsólstöðuganga Píetasamtakanna. Aðstandendur og syrgjendur koma saman og minnast ástvina sinna sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Gangan er tákræn að því leiti að dimmasti dagur ársins er í dag en á morgun fer að birta til.

Sparkaði og skallaði lögreglumenn og hótaði þeim ítrekað lífláti
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í sex mánaða fangelsi fyrir ítrekuð brot gegn valdstjórninni með því að hafa beitt lögreglumenn ofbeldi og ítrekað hótað þeim lífláti.

Nýr ilmur frá Fischersundi - óður til bakgarða Reykjavíkur
Ilmgerðin Fischersund hefur sent frá sér nýjan ilm, Fischersund no. 101. Ilmurinn geymir hinn græna og eteríska angan sem minnir á bakgarða Reykjavíkur. Samhliða ilminum kemur út lag, vídeóverk og ljósmyndasería.

Andskotans fokking fokk
Enn eina ferðina er allt í rugli þegar snjómokstur í Reykjavík er annars vegar og sem fyrr er borgarstjórnarmeirihlutinn algjörlega úti á túni í þessu máli sem mörgum öðrum.

Minnisblað varpar ljósi á óróleika og óánægju vegna Grandaborgar
Leikskólastjóri Grandaborgar, Helena Jónsdóttir, hefur dregið uppsögn sína til baka en uppsögnin vakti nokkurn kurr meðal starfsmanna og foreldra. Þrír starfsmenn í 2,5 stöðugildum sögðu upp störfum í kjölfar uppsagnar leikskólastjórans.

Verðmæti bensínstöðvalóðanna sjö til átta milljarðar
Fyrirhugað er að byggja um það bil 700 til 800 íbúðir á ellefu lóðum í Reykjavík, þar sem áður voru bensínstöðvar. Lóðirnar telja samtals um 40 þúsund fermetra.

Tekur tíma að hita sundlaugarnar upp
Starfsfólk Laugardalslaugarinnar hefur staðið í sannkallaðri jólahreingerningu frá því að sundlaugum borgarinnar var lokað í gær. Stefnt er að því að taka aftur á móti gestum strax í fyrramáli en það getur þó tekið tíma að hita laugina á ný.

Borgin ryður land fyrir 7-9 þúsund nýjar íbúðir og atvinnuhúsnæði
Nýtt hverfi með sjö til níu þúsund íbúðum fyrir um tuttugu þúsund íbúa mun rísa á næstu árum á Keldnalandi. Formaður borgarráðs er bjartsýnn á að byggingaframkvæmdir geti hafist eftir um tvö ár en uppbyggingin er mjög tengd borgarlínu.

Slökkvilið kallað til vegna lítils háttar elds á Nordica
Dælubíll slökkviliðs ásamt sjúkrabílum var boðaður á Hilton Nordica hótel vegna reyks rétt í þessu.

Verðhækkanir hjá Póstinum um áramótin
Þann 1. janúar 2023 mun Pósturinn breyta verði á bréfum, fjölpósti og pakkasendingum innanlands. Verðhækkunin er til komin vegna aukins flutningskostnaðar, svo sem vegna launa og eldsneytis.

Tekist á um hvort ræða ætti málefni Ljósleiðarans eða ekki
Tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að fram færi sérstök utandagskrárumræða um málefni Ljósleiðarans á borgarstjórnarfundi í dag var hafnað. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að um umræðubann sé að ræða. Starfandi borgarstjóri sakaði fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að reyna að sjá spillingu í hverju horni.

Sigurður ráðinn framkvæmdastjóri iCert
Sigurður Karlsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri iCert. Sigurður tekur við starfinu af Jóni Karlssyni. Jón starfar áfram hjá félaginu og sinnir starfi vottunarstjóra.

Helgi til liðs við OR samstæðuna og Kristrún í nýju hlutverki
Helgi Héðinsson hefur tekið við sem mannauðsleiðtogi Veitna. Þá hefur Kristrún Dröfn Jóhannsdóttir tekið við starfi forstöðukonu innri þjónustu.

„Það verður frábært að koma í jólabaðið til okkar“
Sundlaugar Reykjavíkur verða áfram lokaðar í dag. Metið verður síðar í dag hvort hægt verði að opna á ný á morgun. Starfsfólkið mætti hins vegar til vinnu og nýtti tímann vel.

Nýtt hverfi í Reykjavík rís á Keldnalandinu
Á næstu árum mun rísa nýtt hverfi á Keldum og Keldnaholti en ríkið afsalaði sér landinu með formlegum hætti til Betri samgangna ohf. í gær. Skipulagsvinna hefst strax á næsta ári en svæðið er sagt vera álíka stórt og miðborg Reykjavíkur.

Telur forkastanlegt að halda drengnum í gæsluvarðhaldi
Ómar R. Valdimarsson lögmaður er verjandi 19 ára manns sem situr einn eftir í gæsluvarðhaldi vegna hnífaárásarinnar á skemmtistaðnum Bankastræti-club. Hann er ósáttur fyrir hönd skjólstæðings síns og telur hann grátt leikinn af lögreglu og ákæruvaldinu.

Dofri bjargar borginni
Nýverið ákváðu hinar opinberu stofnanir Orkuveita Reykjavíkur, HS Orka og Landsvirkjun að gera upp gufuborinn Dofra fyrir 36 milljónir. Gufuborinn er frá árinu 1957 en hann boraði síðustu holuna 1991.

Fimmtán milljarða samningur tryggir Betri samgöngum Keldnaland
Ríkissjóður og Betri samgöngur ohf. hafa gengið frá samningi sín á milli um að félagið taki við landsvæðinu við Keldur og Keldnaholt ásamt þeim réttindum og skyldum sem því tengjast. Landið er alls um 116 hektarar eða að svipaðri stærð og miðborg Reykjavíkur að flatarmáli.

Blés snjó af einni gangstétt yfir á aðra
Íbúi í Grafarholti náði því á myndband þegar snjóblásari blés snjó af gangstétt stuttu frá húsi hennar. Snjórinn lenti hins vegar á annarri gangstétt, nær íbúð hennar, sem hún hafði handmokað sjálf tveimur dögum áður.

Hleypur 200 kílómetra fyrir málefni sem stendur honum nærri
Geðheilbrigðismál á Íslandi eru í ólestri samkvæmt hlauparanum og hnefaleikakappanum Davíð Rúnari Bjarnasyni, sem hefur beðið í tæp þrjú ár eftir viðtali hjá sálfræðingi. Hann hyggst hlaupa 200 kílómetra á rúmum sólarhring til að styrkja Píeta-samtökin.

Sundlaugar áfram lokaðar á morgun
Vegna bilunar í Hellisheiðarvirkjun verður ekki hægt að opna sundlaugar Reykjavíkurborgar og Ylströnd í fyrramálið eins og vonir stóðu til.

Um helmingur þolenda kynferðisbrota verða fyrir broti af hálfu ókunnugra
Um tvö prósent Íslendinga 18 ára og eldri urðu fyrir kynferðisbroti árið 2021, og í yfir helmingi tilvika hafði einhver þeim ókunnugur beitt ofbeldinu.

Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu lokað vegna bilunar
Bilun er komin upp í Hellisheiðarvirkjun svo engin framleiðsla er á heitu vatni sem stendur. Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu verður lokað vegna þessa.