Lífið

Dóttir Hildar og Jóns komin með nafn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Yngsta dóttir Hildar og Jóns var skírð í dag.
Yngsta dóttir Hildar og Jóns var skírð í dag. Hildur Björnsdóttir.

Yngsta dóttir Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Jóns Skaftason, stjórnarformanns Sýnar, er komin með nafn. Stúlkan heitir Hólmfríður Áslaug.

Hildur greindi frá nafngiftinni fyrr í kvöld á Facebook.

„Okkar smæsta eining fékk stærsta nafnið. Hólmfríður Áslaug Jónsdóttir,“ skrifar Hildur við fallega myndafærslu af fjölskyldunni prúðbúinni í skírninni.

Hólmfríður litla kom í heiminn 10.júní síðastliðinn, degi fyrir afmælisdag móður sinnar. Hildur var þá gengin 41.viku og lét daman því aðeins bíða eftir sér.

Stúlkan er þriðja barn þeirra hjóna en fyrir á Hildur einn son.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×