
Grindavík

Enn skelfur jörð með fjórum skjálftum yfir þremur
Ný skjálftahrina hófst í morgun á Reykjanesi. Fjórir skjálftar yfir þremur að stærð hafa mælst síðan klukkan sjö. Náttúruvásérfræðingur býst við að staðan verði eins næstu daga.

Rólegt yfir mælum í nótt og enginn skjálfti yfir 2,0 stig eftir miðnætti
Það var rólegt yfir mælum Veðurstofunnar í nótt og enginn skjálfti verið yfir 2,0 stig eftir miðnætti.

Norðurljósavegi við Svartsengi lokað fyrir almennri umferð
Lögreglan á Suðurnesjum hefur tekið þá ákvörðun að loka Norðurljósavegi við Svartsengi, þar sem Bláa lónið og Northern Light Inn hótelið eru til húsa, fyrir almennri umferð.

„Íbúar í Grindavík geta verið rólegir“
HS orka undirbýr nú varnargarða vegna mögulegs eldgoss nærri Grindavík. Yfirlögregluþjónn almannavarna segir mjög litlar líkur á að gos sem hæfist núna hefði áhrif í Grindavík með stuttum fyrirvara, því geti íbúar Grindavíkur verið rólegir.

Vinna hafin við undirbúning varnargarða í Svartsengi
Ummerki eftir skjálftana í nótt sjást víða. Á Grindavíkurvegi eru sprungur í malbiki sem Vegagerðin vaktaði í dag og í orkuverinu í Svartsengi eru víða sprungur. Þar er hafin vinna við undirbúning varnargarða.

Enginn hafi sofið af sér erfiða og langa jarðskjálftahrinu
Íbúar í Grindavík lýsa erfiðri nótt og einhverjir pökkuðu jafnvel í töskur. Bláa lóninu var lokað eftir mikla og tíða skjálftavirkni á svæðinu, sá stærsti var 4,8 að stærð

Lokun Northern Light Inn: Fjölmiðlaumfjöllun „ekki í neinu samræmi við raunveruleikann“
Hótelið Northern Light inn, sem staðsett er við Svartsengi hefur farið að frumkvæði Bláa lónsins og verður lokað næstu vikuna. Eigandi hótelsins segir lokunina þó einungis stafa af umfjöllun fjölmiðla um ástandið á Reykjanesskaga vegna jarðhræringa.

Nokkuð jafnt landris þó hröðunin sé ólík
Stórir skjálftar á Reykjanesinu í nótt þarf ekki að þýða aukinn hraða á kvikusöfnun. Skjálftarnir eru dæmi um hviðakennda skjálftavirkni sem búast má við meðan að kvikusöfnun er í gangi. Landið rís nokkuð jafnt þó hröðun mælist ólík á milli daga.

Telur að Grindvíkingar ættu að sofa annars staðar en heima hjá sér
Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjalla- og bergfræði við Háskóla Íslands segir að réttast væri að rýma Grindavík eins og hægt sé. Hann segir jafnframt að ekki sé seinna vænna að koma upp varnargörðum til að verja bæinn.

„Nóttin var vægast sagt hræðileg“
Hljóðbrot sem Lilja Ósk Sigmarsdóttir, íbúi í Grindavík náði þegar stór skjálfti reið yfir í nótt, sýnir raunveruleikann sem íbúar búa við þessa dagana. Hún segir nóttina hafa verið hræðilega og taugakerfið orðið ansi marið.

Tómlegt í Bláa lóninu og ferðamenn missvekktir
Tómlegt er um að litast í Bláa lóninu í dag á fyrsta degi lokunar. Ferðamenn sem fréttastofa ræddi við höfðu ekki fengið veður af lokuninni og voru missvekktir.

Afpanta aðföng um óákveðinn tíma
Forsvarsmenn Bláa lónsins hafa ákveðið að afpanta öll aðföng sem keypt höfðu verið af birgjum. Staðan verður tekin aftur eftir helgi.

Bláa lóninu lokað í viku en starfsmenn fá greitt og gestir endurgreitt
Forsvarsmenn Bláa lónsins hafa ákveðið að loka starfstöðvum sínum í Svartsengi í eina viku, þrátt fyrir að viðbúnaðarstig almannavarna hafi ekki verið aukið.

„Vill einhver kaupa hús hérna í Eyjabyggðinni? Er að spyrja fyrir vin“
Alls hafa 24 skjálftar mælst yfir 3 að stærð frá miðnætti, allir í nágrenni við Þorbjörn, þar sem vel er fylgst með kvikuinnskoti í Reykjaness-Svartsengis eldstöðvakerfinu.

Skelkaðir hótelgestir við Bláa lónið láti sækja sig vegna skjálftanna
Leigubílstjórar á Reykjanesskaga ferja nú gesti af hóteli Bláa lónsins sem eru óttaslegnir vegna stórra jarðskjálfta á svæðinu, sem fóru að gera vart við sig upp úr miðnætti.

„Það er líklegra en ekki að það verði ekki svarta myndin“
Víðir Reynisson, sviðstjóri almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra, sagði mikilvægt að muna að svartasta sviðsmyndin væri ekki sú líklegasta, þegar hann ræddi jarðhræringar á Reykjanesskaga á íbúafundi í Stapa í Reykjanesbæ í kvöld.

Svona gætu varnargarðar við Svartsengi litið út
Starfshópur verkfræðinga og fræðimanna hefur gert greiningu á innviðum og skilað af sér tillögum að varnargörðum vegna mögulegs eldgoss á Reykjanesskaga.

Fimm rúmmetrar streyma í sylluna á hverri sekúndu
Um það bil 1200 jarðskjálftar hafa mælst síðasta sólahring, flestir á svæðinu milli Þorbjörns og Sýlingarfells svipað og daginn áður. Stærsti skjálftinn var 3,4 að stærð klukkan 00:31 í nótt skammt sunnan við Þorbjörn.

Flúði skjálftana og komin í hjólhýsi í Árbænum
Sigríður Jónasdóttir, íbúi í Grindavík, hefur fengið sig fullsadda af skjálftahrinunni á Reykjanesi og er flutt í borgina. Þar býr hún nú í hjólhýsi í garðinum hjá tengdaforeldrum dóttur sinnar.

Kynnisferðir hætta ferðum í Bláa lónið
Forsvarsmenn Kynnisferða hafa ákveðið að hætta ferðum í Bláa lónið frá og með hádegi á morgun. Framkvæmdastjóri segir það gert með öryggi starfsmanna og gesta að leiðarljósi. Staðan verður endurmetin eftir þrjá daga.

Varaaflsvélar komnar til Grindavíkur
Fyrstu tvær varaaflsvélarnar eru komnar til Grindavíkur. Sviðsstjóri rafmagnssviðs HS veitna segir þær hluta af undirbúning fyrir verstu sviðsmyndina ef til eldgoss kæmi og ekkert rafmagn né hiti kæmi frá Svartsengi.

Finnur fyrir óöryggi hjá starfsfólki Bláa lónsins
Framkvæmdastjóri Bláa lónsins telur að hægt væri að rýma svæðið innan klukkustundar ef til þess kæmi. Þessa dagana er gestafjöldi yfir tvö þúsund manns á hverjum degi. Mikil áhersla er lögð á að undirbúa starfsfólk fyrir mismunandi sviðsmyndir, en lóninu hefur verið skipt upp í tíu rýmingarsvæði.

Svona var upplýsingafundur almannavarna vegna jarðhræringa
Almannavarnir boða til upplýsingafundar í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð klukkan 15 vegna jarðhræringanna á Reykjanesinu.

Land risið um sjö sentimetra
Frá 27. október hefur land risið um sjö sentimetra samkvæmt GPS-mælistöð á fjallinu Þorbirni. Aflögunin verður vegna kvikusöfnunar í syllu á um fimm kílómetra dýpi.

Birta leiðbeiningar til íbúa á Reykjanesi
Björgunarsveitin Suðurnes hefur birt svör við ýmsum spurningum íbúa um hvað sé best að gera til að undirbúa sig heima fyrir ef það fer að gjósa við Svartsengi. Íbúar eru hvattir til að kynna sér viðbragðsáætlanir. Boðað hefur verið til upplýsingafundar almannavarna klukkan 15:00 í dag.

Segir miður að ekki allir ferðamenn hafi verið upplýstir um jarðhræringar
Skjálftavirkni jókst á ný í nótt og landris heldur áfram á sama hraða við Þorbjörn. Framkvæmdastjóri Bláa lónsins segir miður að ekki allir ferðamenn hafi verið upplýstir um jarðhræringar á svæðinu við komuna í lónið í gær.

Landris heldur áfram
Landris heldur áfram á sama hraða við Þorbjörn og engin skýr merki eru um að kvika sé að færast nær yfirborði. Gera má ráð fyrir áframhaldandi jarðskjálftavirkni vegna kvikuinnskotsins, sem veldur aukinni spennu á svæðinu.

Bein útsending: Vefmyndavélar í beinni frá Þorbirni
Mikil skjálftavirkni og jarðhræringar hafa staðið yfir á Reykjanesi að undanförnu og hefur töluverður hraði verið á landrisi við Þorbjörn. Vísir er með vefmyndavélar á svæðinu, þar sem sjá má útsýnið af Þorbirni, yfir Bláa lónið og Reykjanesskagann annars vegar og svo Grindavík hinsvegar.

Ferðamenn ekki upplýstir um jarðhræringar við komuna í Bláa lónið: „Nei, alls ekki“
Ferðamenn sem voru ný komnir úr Bláa lóninu virtust mis vel upplýstir um jarðhræringarnar á Reykjanesi þegar fréttastofa ræddi við þá í dag. Fáir segjast hafa verið látnir vita af stöðunni við komuna í lónið.

Ekki í stöðunni að loka Bláa lóninu: „Við fylgjum alfarið ráðleggingum sérfræðinganna“
Umhverfisverkfræðingur skorar á yfirvöld að Bláa lóninu verði gert að loka Bláa lóninu tímabundið, en óvissustig almannavarna er þar í gildi vegna jarðhræringa. Framkvæmdastjóri Bláa lónsins segir forsvarsmenn lónsins fylgja sérfræðingum Veðurstofunnar og Almannavarna í einu og öllu og samkvæmt þeim sé ekki tilefni til lokunar sem stendur.