Síle

35 ára vinstrimaður nýr forseti Chile
Vinstrimaðurinn Gabriel Boric vann sigur í annarri umferð forsetakosninganna í Chile sem fram fór í gær. Hann hafði þar betur gegn hægriöfgamanninum José Antonio Kast.

Þörf á annarri umferð í forsetakosningunum í Chile
Enginn hlaut hreinan meirihluta í fyrri umferð forsetakosninganna sem fram fór í Chile í gær og mun því önnur umferð fara fram í næsta mánuði.

Forseti Síle ákærður fyrir embættisbrot eftir uppljóstranir Pandóruskjalanna
Neðri deild síleska þingsins kærði Sebastián Piñera forseta fyrir embættisbrot á þriðjudag. Forsetinn er sakaður um frændhygli sem kom fram í Pandóruskjölunum svonefndu. Ólíklegt er að efri deild þingsins samþykki að svipta Piñera embætti.

Fyrrverandi leikmaður Liverpool fékk hjartaáfall
Mark González, fyrrverandi leikmaður Liverpool og fleiri liða, dvelur á sjúkrahúsi í heimalandinu, Síle, eftir að hafa fengið hjartaáfallið. Eiginkona hans greindi frá tíðindunum á Instagram.

Stuðningsmennirnir hótuðu öllum leikmönnum liðsins lífláti
Það er ekkert grín að vera leikmaður Colo-Colo þessa dagana. Það gengur lítið inn á vellinum og utan hans þurfa leikmenn að þola morðhótanir frá stuðningsmönnum.

Fyrstu smitin í álfunni frá upphafi faraldursins
Suðurskautslandið getur ekki lengur státað af því að vera eina heimsálfan sem hefur verið laus við kórónuveiruna. 36 menn frá Chile, sem staðsettir eru á Suðurskautslandinu, greindust með kórónuveiruna í gær.

Íbúar Chile samþykktu að gera breytingar á stjórnarskrá landsins
Þúsundir komu saman í borgum og bæjum í Chile í gærkvöldi til að fagna því að meirihluti kjósenda hefði samþykkt breytingar á stjórnarskrá landsins í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá
Kjósendur í Síle greiða atkvæði um hvort tekin skuli upp ný stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslu í dag. Sú gamla er frá tíð einræðisherrans Augusto Pinochet en lagt er til borgarar semji þá nýju.

Stærsta flugfélag Suður-Ameríku sækir um gjaldþrotavernd
Flugfélagið LATAM hefur sótt um gjaldþrotavernd í Bandaríkjunum, en líkt og með önnur flugfélög hefur heimsfaraldur kórónuveirunnar leikið flugfélagið grátt.

Piñera segir heilbrigðiskerfið í Chile vera að þrotum komið
Um sjötíu þúsund smit hafa verið staðfest í landinu og rúmlega sjö hundruð hafa látið lífið.

Plastmengun vaxandi vandamál á norðurslóðum
Plastagnir finnast nú nær alls staðar í hafinu á norðurslóðum en frekari rannsóknir skortir til að rekja uppruna þeirra. Framleiðsla á plasti hefur aukist gífurlega á síðustu áratugum og útlit er fyrir að hún margfaldist fyrir miðja þessa öld.

Keyrði á eina af styttunum á Páskaeyju
Yfirvöld á Páskaeyju kalla nú eftir því að hömlur verði settar á bílaumferð í námunda við fornleifar eyjarinnar eftir að pallbíl var ekið á eina af hinum þekktu Moai styttum sem er að finna víða um eyjuna.

Hafa fundið brak og líkamsleifar
Leitarsveitir hafa fundið brak og líkamsleifar í hafinu við suðurskautið. Talið er að brakið og líkamsleifarnar séu úr herflugvél frá Chile en samband við vélina rofnaði skömmu eftir flugtak fyrir í vikunni.

Enn ekkert spurst til flugvélarinnar
Enn hafa engar borist af Hercules-flugvél frá Chile sem hvarf á leiðinni til Suðurlandsskautsins í gærkvöldi. 38 voru um borð í flugvélinni en gert er ráð fyrir að hún hafi hrapað.

38 saknað eftir að herflugvél hvarf af ratsjám
Herflugvél frá Chile hvarf í nótt með þrjátíu og átta manns innanborðs þegar vélin var á leið til Suðurskautslandsins. Sautján voru í áhöfn vélarinnar og tuttugu og einn farþegi.

Björgólfur Thor á von á 30 milljarða arðgreiðslu
Fjarskiptafélagið WOM í Síle undirbýr sig nú til að greiða Novator, fjárfestingarfélagi Björgólfs Thors Björgólfssonar, um 250 milljóna bandaríkja dala arð.

Forseti Kólumbíu afneitar landsmönnum vegna mótmæla
Iván Duque, forseti Kólumbíu, tilkynnti það í gærkvöldi að öryggissveitir yrðu áfram á götum landsins til að gæta reglu. Nú er fjórði dagur mótmæla þar í landi.

Sílemenn kjósa um nýja stjórnarskrá
Stærstu stjórnmálaflokkar Síle sammældust í dag um að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá.

Færa úrslitaleikinn frá Síle til Perú
Mótmælin í Síle hafa ekki aðeins áhrif á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna og ferðir sænska aðgerðasinnans Gretu Thunberg heldur einnig á stærstu fótboltakeppni Suður-Ameríku.

Flytja loftslagsráðstefnuna frá Santíagó til Madrídar
Upphaflega stóð til að ráðstefnan færi fram í Chile, en fyrr í vikunni greindi forseti landsins að hætt hafi verið við að halda ráðstefnuna þar vegna mótmæla í landinu síðustu vikurnar.

Spánverjar bjóðast til að taka við loftslagsráðstefnunni
Síle, sem átti að halda ráðstefnuna, hefur lagt blessun sína yfir hugmyndina og ætlar að mæla með henni við Sameinuðu þjóðirnar.

Hætta við að halda loftslagsráðstefnu vegna mótmæla
Stjórnvöld í Chile hafa aflýst fyrirhugaðri loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fara átti fram í höfuðborginni Santiago í desember.

Stokkað upp í ríkisstjórn Síle í skugga fjöldamótmæla
Talið er að ein milljón manna hafi mótmælt stjórnvöldum í höfuðborginni Santiago í gær.

Íslendingar frá Suður-Ameríku boða til samstöðumótmæla vegna ástandsins í Síle
Íslendingar sem eiga rætur að rekja til Suður-Ameríku blása til samstöðumótmæla með mótmælendum í Síle.

Mannfall í Santiago
Að minnsta kosti 11 einstaklingar hafa látið lífið í óöldinni sem hefur geisað í Santiago, höfuðborg Chile, undanfarna daga

Sílesk kona á Íslandi segir yfirstéttina hafa hertekið stjórnmálin
Ellefu hafa látist í fjöldamótmælum sem geysa nú í Síle. Útgöngubann er í gildi í stórborgum og lögregla hefur beitt táragasi.

Fimm létu lífið í óeirðum í Santíagó
Mikil mótmæli hafa verið í landinu síðustu daga og hefur herinn skorist í leikinn og beitt táragasi og háþrýstivatnsbyssum á fólkið.

Maður finnur að fólk er virkilega óttaslegið
Fordæmalausar óeirðir hafa staðið yfir í Santiago, höfuðborg Chile. Harpa Elín Haraldsdóttir hefur verið búsett í borginni í rúman áratug og segist upplifa þá einkennilegu tilfinningu að borgin hennar hafi breyst á einni nóttu.

Þrír létust í bruna í stórmarkaði í Chile
Mótmælin í Chile standa enn yfir og létust þrír í nótt eftir að eldur kviknaði í stórmarkaði í höfuðborginni Santiago.

Reyna að koma á frið í Santiago
Neyðarástandil var yfir í Santiago, höfuðborg Chile, vegna óeirða.