Amazon

Elon Musk ekki lengur ríkastur
Elon Musk, eigandi rafbílaframleiðandans Tesla, er ekki lengur ríkasti maður jarðar, en hlutabréf í Tesla hafa lækkað töluvert að undanförnu.

Bezos hættir sem forstjóri Amazon
Jeff Bezos, stofnandi og forstjóri stórfyrirtækisins Amazon, hyggst láta af stöðu forstjóra fyrirtækisins.

Amazon sakað um samkeppnislagabrot
Amazon og fimm stærstu bókaútgefendur Bandaríkjanna eru sakaðir um samráð um verð á rafbókum í hópmálsókn sem höfðuð var í vikunni.

Parler ætlar í hart við Amazon
Samfélagsmiðillinn Parler ætlar að höfða mál gegn Amazon eftir að fyrirtækið neitaði að hýsa vefsíðu miðilsins áfram. Ákvörðun Amazon kom í kjölfar þess að bæði Google og Apple ákváðu að fjarlægja Parler úr smáforritaverslunum sínum.

Parler ekki lengur aðgengileg
Vefsíða Parler, sem hefur verið lýst sem valkostur við Twitter, liggur nú niðri. Það gerist eftir að Amazon greindi frá því um helgina að fyrirtækið myndi frá og með deginum í dag hætta að hýsa síðuna vegna ítrekaðra brota á notendaskilmálum.

Amazon neitar að hýsa Parler
Amazon hefur tilkynnt samfélagsmiðlinum Parler að fyrirtækið muni ekki hýsa síðuna vegna brota á notendaskilmálum. Því mun Parler ekki lengur vera aðgengileg nema síðan finni sér nýjan stað til þess að hýsa vefinn.

Musk tekur fram úr Bezos
Eignir frumkvöðulsins Elon Musk eru nú metnar á yfir 185 milljarða Bandaríkjadala og er hann því orðinn ríkasti maður heims. Jeff Bezos, stofnandi Amazon, hafði áður trónað á toppnum frá árinu 2017.

MacKenzie Scott látið fjóra milljarða dala af hendi rakna á fjórum mánuðum
MacKenzie Scott, ein ríkasta kona heims, hefur látið rúmlega fjóra milljarða Bandaríkjadala af hendi rakna til fjölskylduhjálparstofnana og styrktarsjóða á síðustu fjórum mánuðum. Það samsvarar um 500 milljarða íslenskra króna.

Frakkar beita Google og Amazon háum sektum
Yfirvöld í Frakklandi hafa sektað Google um hundrað milljónir evra og Amazon um 35 milljónir. Það samsvarar rúmum fimmtán milljörðum króna annars vegar og rúmum fimm milljörðum hins vegar.

Urmull örgervihnatta gæti hindrað leit að lífi í alheiminum
Forsvarsmenn stærsta útvarpssjónauka í heimi sem nú er í smíðum á suðurhveli jarðar óttast að þúsundir smárra fjarskiptagervitungla sem stendur til að skjóta á loft á næstu árum eigi eftir að hafa mikil áhrif á athuganir hans.

Amazon kaupir 100.000 raf-sendibíla frá Rivian
Amazon segir að fyrstu bílarnir verði komnir í umferð á næsta ári. Netrisinn segist vera að „hækka viðmiðið fyrir næstu kynslóð sendibíla“.

Evrópusambandið með tæknirisana í sigtinu
Evrópusambandið er sagt vera að undirbúa það að herða til muna reglugerðir sem gilda um stór alþjóðleg tæknifyrirtæki á yfirráðasvæði sambandsins.

Nýtt brot úr Amazon þáttunum um Tottenham: „Ég heiti José - allir bera þetta rangt fram!“
Stuttar klippur úr þáttum Amazon um tímabilið hjá Tottenham halda áfram að koma út og í gær var það stikla af þjálfaranum Jose Mourinho.

Tæknirisarnir stækka þrátt fyrir samdrátt annarra
Þó hagkerfi Bandaríkjanna hafi gengið í gegnum sögulegan samdrátt á undanförnum mánuðum er ekki sömu sögu að segja af fjórum af stærstu tæknifyrirtækjum landsins.

Sóttu hart að forstjórum stórra tæknifyrirtækja
Þeir Jeff Bezos, forstjóri Amazon, Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, Tim Cook, forstjóri Apple, og Sundar Pichai, forstjóri Google, voru boðaðir á fundi samkeppniseftirlitsnefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær og beindust spjótin sérstaklega að forstjórum Facebook og Google þar sem þeir voru sakaðir um að grafa undan samkeppnisaðilum sínum.

Greta hlaut 160 milljóna króna verðlaun
Sænski umhverfisverndarsinninn Greta Thunberg hlaut í gær portúgölsku Gulbenkian-verðlaunin fyrir baráttu sína gegn loftslagsvánni

Fremstur í kapphlaupinu að billjón dollurum
Jeff Bezos, eigandi Amazon-samsteypunnar, er talinn líklegastur til þess að verða fyrsti billjónamæringur (e. trillionaire) heims, ef miðað er við metið virði í bandarískum dollurum.

Amazon vill kaupa nafnið á heimavelli Tottenham
Tottenham ætlar að selja nafnaréttinn af heimavelli sínum og tæknirisinn Amazon er áhugasamur.

Vona að breskur almenningur geti byrjað að prófa sig sjálfur fyrir veirunni á næstu dögum
Amazon hefur samþykkt að dreifa prófinu, auk þess sem hægt verður að nálgast það í apótekum víða um Bretland.

Bezos ætlar að leggja milljarða í baráttuna gegn loftslagsbreytingum
Amazon hefur legið undir gagnrýni fyrir að vanrækja loftslagsmál en stofnandi fyrirtækisins hefur nú ákveðið að styrkja málefnið um á annað þúsund milljarða íslenskra króna.