Viðskipti erlent

Stefn­a á verð­hækk­un hjá Net­flix

Samúel Karl Ólason skrifar
Bíða á meða að tilkynna hækkunina þar til verkfalli leikara í Hollywood lýkur einnig.
Bíða á meða að tilkynna hækkunina þar til verkfalli leikara í Hollywood lýkur einnig. AP/Chris Pizzello

Forsvarsmenn streymisveitunnar Netflix stefna á að hækka áskriftaverð á næstunni. Verkfalli handritshöfunda lauk nýverið og stendur til að bíða þar til verkfalli leikara lýkur einnig, áður en verðhækkanirnar verða tilkynntar en verið er að skoða að hækka verðið víða um heim. Fyrst stendur þó til að hækka verðið í Norður-Ameríku.

Þetta kemur fram í frétt Wall Street Journal en ekki liggur fyrir hve mikið áskriftarverðið á að hækka. Undanfarið ár hefur áskriftarverð streymisveita hækkað um fjórðung þar sem forsvarsmenn streymisveita hafa skipt um gír. Markmiðið er ekki lengur að sanka að sér áskrifendum, heldur að skila hagnaði.

Hjá nokkrum streymisveitum hefur sú ákvörðun verið tekin að hækka verð á áskriftum án auglýsinga og bjóða einnig ódýrari áskriftarleiðir með auglýsingum. Forsvarsmenn Warner Bros. Discovery tilkynntu til að mynda í gær að áskriftarverð Discovery+, sem er ekki aðgengilegt á Íslandi, myndi hækka úr 6,99 dölum í 8,99. Ódýrari áskriftarleiðin, með auglýsingum, á áfram að kosta 4,99 dali.

Sambærileg skref hafa áður verið tekin hjá Disney, Amazon og Netflix.

Sjá einnig: Streymisstríðið tekur stakkaskiptum

Hingað til hafa forsvarsmenn Netflix, sem hefur verið eina arðbæra streymisveitan hingað til, ekkert hækkað verð á undanförnu ári. Þess í stað var gripið til þess að reyna að draga úr því að fólk deildi lykilorðum sín á milli og fjölga áskrifendum þannig.

Sjá einnig: Elta uppi Netflixsníkla á nýju ári

Í frétt WSJ segir að forsvarsmenn Disney, Netflix og Warner Bros. Discovery hafi nýverið sagt að ódýrari áskriftarleið með auglýsingum, hafi reynst arðbærari á hvern notenda en dýrari áskriftarleið án auglýsinga.

Víða er verið að skoða að bæta við íþróttum, til að hækka verðið á völdum áskriftarleiðum. Hjá Disney er verið að skoða að bæta við beinu íþróttaútsendingum. Það sama er upp á teningnum hjá Discovery varðandi streymisveituna Max og Apple er að selja útsendingar á viðureignir í MLS-deildinni í Bandaríkjunum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×