Fréttir
Tíu í framboð VG Ljóst er hverjir verða í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík. Kosnir verða fulltrúar í sex efstu sæti listans. Innlent 14.10.2005 06:43
Hræddu borgarbúa Fjórar Harrier-þotur Konunglega breska flughersins lentu á Reykjavíkurflugvelli í gærdag. Flugvélarnar höfðu áætlað lendingu á Keflavíkurflugvelli en var beint til Reykjavíkur vegna slæms skyggnis í Keflavík að sögn Heimis Más Péturssonar, upplýsingafulltrúa Innlent 14.10.2005 06:43
Tengjast kerfi Neyðarlínunnar Farsímanotendur, sem skipta við Og Vodafone, tengjast staðsetningarkerfi Neyðarlínunnar á næstu tveimur mánuðum. Eftir það búa þeir við sama öryggi og viðskiptavinir Landssímans. Innlent 14.10.2005 06:42
TF-SIF leitaði Friðriks í dag Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, leitaði við strendur, eyjar og sker allt frá Skerjafirði inn Kollafjörð, út með Kjalarnesi og upp á Akranes í dag að Friðriki Ásgeiri Hermannssyni sem saknað hefur verið í tæpa viku eftir að bátur sem hann var í steytti á skeri. Flogið var í kringum allar eyjar, m.a. Þerney, Lundey, Viðey, Engey og Akurey en leitin bar engan árangur. Innlent 14.10.2005 06:42
Málsaðilar bera hver sinn kostnað Hæstiréttur staðfesti í vikunni dóm Héraðsdóms Reykjaness frá því í fyrravetur um landamerki Vogajarða og jarða í Brunnstaðahverfi í Vatnsleysustrandarhreppi utan að felldur var niður málskostnaður bæði í héraði og fyrir Hæstarétti. Innlent 14.10.2005 06:42
Viðurkenndi mistök stjórnvalda George Bush Bandaríkjaforseti viðurkenndi í gær að öll stig stjórnkerfisins hefðu brugðist eftir hamfarirnar við Mexíkóflóa. Hann sagði í sjónvarpsræðu í gærkvöldi að vandinn hefði reynst yfirþyrmandi fyrir þunglamalegt kerfi sem þyrfti að bæta. Hann bæri á endanum sjálfur ábyrgðina sem forseti landsins og það væri einnig í hans höndum að finna lausnina. Erlent 14.10.2005 06:42
Norðmenn kynna sér offituaðgerðir Tólf norskir offitusjúklingar eru staddir hér á landi til að leggjast undir hnífinn. Hópur norskra heilbrigðisstarfsmanna fylgir hópnum til landsins en hann ætlar að reyna að læra af góðum árangri Íslendinga. Innlent 14.10.2005 06:42
Einkavæðing og lægri skattar Íhaldsmenn í stjórnarandstöðu í Póllandi hafa lýst því yfir að þeir muni fremur leitast eftir samsteypuríkisstjórn, jafnvel þótt þeir næðu hreinum meirihluta í þingkosningunum 25. september næstkomandi. Erlent 14.10.2005 06:43
Morð í aðdraganda kosninga Undirbúningur fyrir þingkosningarnar í Afganistan á sunnudag gengur skelfilega þar sem morð og ofbeldi einkennir aðdraganda þeirra. Uppreisnarmenn úr röðum talibana, sem skora á kjósendur að hunsa kosningarnar, skutu einn frambjóðanda til bana í nótt, en þegar hafa sjö frambjóðendur verið myrtir í landinu. Erlent 14.10.2005 06:42
Megrun ekki lausnin við offitusýki Megrun er ekki lausnin við sjúklegri offitu. Þetta var meðal þess sem kom fram á blaðamannfundi sem haldinn var á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í gær. Innlent 14.10.2005 06:43
Minnihluti hyggst snúa aftur Minna en helmingur íbúa New Orleans sem hefst við í öðrum borgum ætlar að snúa aftur. Samkvæmt nýrri könnun sem unnin var fyrir dagblaðið <em>Washington Post</em> ætla aðeins 43 prósent íbúanna að snúa aftur en 44 prósent þeirra ætla að koma sér upp heimili annars staðar. Þrátt fyrir að hafa misst heimili sín sögðust níu af hverjum tíu vongóðir um bjarta framtíð. Erlent 14.10.2005 06:42
Mýs sleppa út af rannsóknarstofu Þrjár mýs, sem eru smitaðar af farsótt sem einkennist af eitlabólgu og örmögnun, sluppu út af rannsóknarstofu í New Jersey í Bandaríkjunum fyrir tveim vikum. Mýsnar hafa enn ekki fundist og líklegt er talið að þær séu þegar dauðar af völdum farsóttarinnar. Sérfræðingar segja nær engar líkur á að þær hafi borið smit í menn. Erlent 14.10.2005 06:42
Tilboðið mistök "Það kom okkur verulega á óvart hvað menn eru tilbúnir að greiða fyrir sérleyfisferðina," segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Kynnisferða. Í fyrradag voru opnuð tilboð í Ríkiskaupum í skóla- og áætlunarakstur á nokkrum sérleyfisferðum. Athygli vöktu svokölluð mínustilboð en nokkur fyrirtæki voru reiðubúin að greiða Vegagerðinni tugi og allt að 469 milljónir með leyfinu fyrir akstur frá Reykjavík til Suðurnesja. Innlent 14.10.2005 06:43
Stefnir Sigurði Líndal Lögfræðingur Friðriks Þórs Guðmundssonar, faðir pilts sem lést í flugslysi í Skerjagarði fyrir fimm árum, hefur ritað Sigurði Líndal, fyrrverandi prófessor, bréf þar sem þess er krafist að hann dragi ummæli sín til baka og biðji Friðrik afsökunar. Verði Sigurður ekki við þessu muni Friðrik stefna honum fyrir dóm og freista þess að fá ummæli hans dæmd dauð og ómerk. Innlent 14.10.2005 06:43
Rökstuddur grunur um áfengisneyslu Eigandi bátsins, sem fórst á Viðeyjarsundi fyrir tæpri viku, og kona hans hafa réttarstöðu sakborninga við rannsókn slyssins. Rökstuddur grunur er um að þau hafi neytt áfengis kvöldið örlagaríka. Innlent 16.9.2005 00:01
Höfuðborg án skuldbindinga Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að flestir borgarfulltrúar í Reykjavík álíti að borgin sé höfuðborg án skuldbindinga. Þetta kemur fram í nýjum pistli sem hann skrifar á heimasíðu sinni. Innlent 14.10.2005 06:42
Aron Pálmi hvorki bitur né reiður Aron Pálmi Ágústsson, sem hefur mátt dúsa í fangelsi í Texas í rúm átta ár vegna brota sem hann framdi ellefu ára gamall, segist hvorki bitur né reiður yfir örlögum sínum. Hann vonast til að hefja nýjan kafla í lífi sínu á Íslandi innan skamms og ætlar að nota reynslu sína til að hjálpa öðrum. Innlent 14.10.2005 06:42
Sjö menn handteknir í Bretlandi Breska lögreglan réðst í morgun inn í nokkur íbúðarhús í London og Manchester og handtók sjö menn. Ekki hefur verið gefið upp fyrir hvað mennirnir voru handteknir en breskir fjölmiðlar ýja að því að þeir tengist hryðjuverkasamtökum. Erlent 14.10.2005 06:42
Milljónir á leyndum reikningum Evrópskir vopnaframleiðendur lögðu milljónir dollara inn á leynilega bankareikninga sem Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, hafði aðgang að. Þetta hefur komið fram í rannsókn á fjárreiðum einræðisherrans sem nú stendur yfir. Erlent 14.10.2005 06:42
Olíuríki auka framleiðslu sína Samtök olíuframleiðsluríkja hafa lofað að auka framleiðslu sína um fimm hundruð þúsund föt á dag til þess að mæta aukinni eftirspurn eftir olíu. Ólíklegt er þó talið að þetta verði til þess að lækka heimsmarkaðsverðið að einhverju ráði. Erlent 14.10.2005 06:42
Ólafur Ragnar á ráðstefnu í BNA Ólafur Ragnar Grímsson forseti er farinn til Bandaríkjanna þar sem hann tekur þátt í alþjóðlegri ráðstefnu sem Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur skipulagt. Á ráðstefnunni verður fjallað um nýjar leiðir í baráttunni gegn fátækt, hættu á loftslagsbreytingum og áhrif trúar í stjórnmálum svo nokkur mál séu nefnd. Innlent 14.10.2005 06:42
Leikskólakennarar áhyggjufullir Stjórn félags leikskólakennara lýsir miklum áhyggjum af stöðu mála í leikskólanum Rjúpnahæð í Kópavogi. Útlit er fyrir að senda þurfi á fimmta tug leikskólabarna heim á hverjum degi frá og með næstu mánaðamótum því ekkert hefur gengið að ráða starfsmenn í lausar stöður. Innlent 14.10.2005 06:42
Greiningin tilbúin í Vesturbyggð Greiningunni sem Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hefur unnið að um rekstur Bílddælings, sem lagði niður starfsemi sína í sumar, er nú lokið að sögn Shirans Þórissonar, viðskipta- og markaðsráðgjafa félagsins. Skýrslan verður í dag afhent Guðmundi Guðlaugssyni, bæjarstjóra í Vesturbyggð, og síðan tekin til umræðu næstkomandi miðvikudag. Innlent 14.10.2005 06:42
Fá úthlutað lóð í Vatnsmýrinni Borgarráð samþykkti í gær tillögu um að íslenska lyfjafyrirtækinu Invent Farma yrði úthlutað lóð í Vatnsmýrinni nálægt því svæði sem Háskólinn í Reykjavík hefur fengið úthlutað. Fyrirhugað er að Invent Farma setji þar upp rannsóknar- og þróunardeild. Innlent 14.10.2005 06:42
Lögregla gefur ekkert upp Lögregla hefur yfirheyrt þá sem komust lífs af úr sjóslysinu á Viðeyjarsundi aðfaranótt laugardags. Lögreglan vill þó ekkert gefa út um ástæður eða aðdraganda slyssins þar sem rannsókn er enn í fullum gangi. Innlent 15.9.2005 00:01
Allir andvígir sameiningu Allir bæjarfulltrúar í Sandgerði eru andvígir því að sveitarfélagið sameinist Reykjanesbæ og Garði. Þetta varð ljóst eftir bæjarstjórnarfund í gær. Kjósa á um sameiningu sveitarfélaganna áttunda október. Innlent 14.10.2005 06:42
Fæðingarorlofið verði 15 mánuðir Karl Petter Thorwaldsson, þingmaður á sænska þinginu, hefur lagt fram frumvarp þess efnis að fæðingarorlof sænskra foreldra verði samanlagt fimmtán mánuðir. Samkvæmt frumvarpinu myndi orlofið skiptast þannig að móðir fái fimm mánuði, faðir fimm og síðustu fimm mánuðunum geti foreldrarnir skipt á milli sín eins og þeir vilja. Innlent 14.10.2005 06:42
Páfa boðið til Tyrklands Tyrkir hafa formlega boðið Benedikt XVI páfa í opinbera heimsókn á næsta ári. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem utanríkisráðuneyti Tyrklands sendi frá sér í dag. Þorri Tyrkja er múslimatrúar. Erlent 14.10.2005 06:42
Dóms að vænta vegna græns skyrs Næsta mánudag er dóms að vænta í máli Örnu Aspar Magnúsardóttur, en hún er ein þremenninganna sem slettu grænlituðu skyri á gesti álráðstefnu á hótel Nordica í sumar. Hún játar aðild sína en segir að ekki hafi vísvitandi verið slett á tæki eða húsmuni. Innlent 14.10.2005 06:42
Fimm ráðuneyti án kvenna Af 222 forstöðumönnum ríkisins eru fimmtíu konur, jafnmargar og í febrúar 2004. Körlum hefur fækkað um þrjá. Engar konur eru forstöðumenn á vegum utanríkisráðuneytisins, landbúnaðarráðuneytisins, viðskiptaráðuneytisins, viðskiptaráðuneytisins og Hagstofu Íslands. Innlent 14.10.2005 06:42
Sjáðu langt viðtal við Óskar eftir 6-1 tap: „Nauðsynlegt fyrir íslenskan fótbolta að KR verkefnið sé til“ Sport