Fréttir
Viðræðurnar sigla enn í strand Aðildarviðræður Tyrkja við Evrópusambandið sigldu enn eina ferðina í strand í gær og ekki tókst að ná sátt um drög að samningum, eins og til stóð. Utanríkisráðherrum sambandsins, sem eru samankomnir í Lúxemborg, tókst ekki að sannfæra Austurríkismenn um að gefa grænt ljós á aðild Tyrkjanna. Innlent 23.10.2005 15:01
Gripinn við innbrot í Lyfju Brotist var inn í apótek Lyfju á Laugaveginum í nótt og fór þjófavarnakerfi í gang. Tveir öryggisverðir sem voru í grennd héldu þegar á vettvang og gripu þjófinn þegar hann var að skríða út um glugga sem hann hafði brotið. Innlent 23.10.2005 15:01
Útgjöld tveggja ráðuneyta lækka Útgjöld ríkissjóðs aukast hlutfallslega mest hjá dóms- og kirkjumálaráðuneyti og fjármálaráðuneyti samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs. Útgjöld hvors ráðuneytis um sig aukast um ellefu prósent. Útgjöld umhverfisráðuneytis dragast hins vegar saman um þrjú prósent og útgjöld forsætisráðuneytis um eitt prósent. Innlent 23.10.2005 15:01
Samkomulag um aðildarviðræður Tyrkir hafa komist að samkomulagið við Evrópusambandið um að hefja viðræður um aðild þeirra að sambandinu, sagði Abdullah Gul, utanríkisráðherra Tyrklands, eftir stöðug fundahöld. Austurríkismenn, Grikkir og Kýpverjar lögðust gegn því að framkvæmdastjórn ESB hæfi aðildarviðræður við Tyrki vegna þess að Tyrkir viðurkenna ekki stjórnvöld á Kýpur. Erlent 23.10.2005 16:58
12 látnir eftir lestarslys Tólf létust og minnst eitt hundrað eru slasaðir eftir að fjölmenn farþegalest fór út af sporinu í Indlandi í morgun. Lestin stoppaði ekki við eina lestarstöðina og sex vagnar fóru út af teinunum, þar sem alla jafna er gert við lestina og hún þrifin. Talið er að bremsubúnaður lestarinnar hafi bilað. Erlent 23.10.2005 15:01
35 látast í hamförum í Mið-Ameríku Að minnsta kosti 35 hafa látist af völdum flóða og aurskriða í Miða-Ameríku í dag. Hamfarirnar má rekja til hitabeltisstormsins Stan sem gekk yfir Yucatan-skagann í Mexíkó um helgina með tilheyrandi hvassviðri og ofankomu sem leiddi til þess að ár flæddu yfir bakka sína. Þúsundir manna þurftu að yfirgefa heimili sín sem sum hver grófust undir aurskriðum. Erlent 23.10.2005 15:01
Stjórnarstefnan ógn við samninga Röng stjórnarstefna hefur leitt til þess að verðbólga er tvöfalt hærri en gert var ráð fyrir þegar kjarasamningar voru undirritaðir. Það er því röng stjórnarstefna sem gerir að verkum að kjarasamningum kann að verða sagt upp um áramót, segir í harðorðri ályktun frá stjórn stéttarfélagsins Eflingar. Innlent 23.10.2005 15:02
Markmiðið að lækka lyfjaverð Lyfjaverð í heildsölu á Íslandi nálgast nú meðalverð á Norðurlöndunum en fyrir ári náðist tímamótasamkomulag á milli lyfjahóps Félags Íslenskra stórkaupmanna fyrir hönd frumlyfjaframleiðenda og Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. Innlent 23.10.2005 15:01
Æfðu viðbrögð við hryðjuverkum Miklar tafir urðu á umferð í Róm í morgun þegar yfirvöld æfðu viðbrögð við hugsanlegum hryðjuverkaárásum á borgina. Látið var líta svo út að sjálfsmorðsprengjuárás yrði gerð fyrir utan hringleikahúsið Kólosseum, í neðanjarðarlest og í strætó á háannatíma og viðbrögð yfirvalda og lögreglu æfð. Þá var miðborg Rómar var algjörlega lokuð um tíma vegna æfingarinnar. Erlent 23.10.2005 15:01
Uppsveifla efnahagslífs í hámarki Uppsveifla efnahagslífsins er í hámarki og spáð er að hagvöxtur haldist áfram mikill í ár og á næsta ári meðan stóriðjuframkvæmdir eru enn umfangsmiklar. Þetta segir í nýrri þjóðhagspá sem Fjármálaráðuneytið hefur birt. Spáin er fyrir árin 2005 til 2007 auk framreikninga fram til ársins 2010. Innlent 23.10.2005 15:01
Grunaður um afbrigðilega hegðun Að morgni laugardagsins var lögreglunni á Ísafirði tilkynnt um afbrigðilega hegðun gestkomandi manns í heimahúsi á Ísafirði. Maðurinn er grunaður um afbrigðilega hegðun fyrir framan ungan dreng, sem einnig var gestkomandi í umræddu húsi. Hinn grunaði hefur verið yfirheyrður af lögreglunni en hefur nú verið sleppt. Rannsókn málsins heldur áfram. Innlent 23.10.2005 15:01
Gagnrýndu framkvæmd kosningar Þingmenn Frjálslynda flokksins gagnrýndu harðlega kosningu forseta Alþingis við þingsetningu á laugardag. Gagnrýndu þingmenn meðal annars framkvæmdina og segjast ekki hafa getað sagt nei því svokallaður nei-hnappur hafi ekki virkað. Innlent 23.10.2005 15:01
Sagnfræðingar ósáttir Sagnfræðingar eru ósáttir við að Þorsteinn Pálsson hafi verið ráðinn til að rita sögu þingræðis á Íslandi, frekar en að leitað hafi verið til sagnfræðings um samningu verksins. Stjórn Sagnfræðingafélags Íslands sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem undrun er lýst á að fráfarandi sendiherra og fyrrverandi ráðherra og þingmaður sé ráðinn til að semja sagnfræðirit. Innlent 23.10.2005 15:01
Ólögráða í lífstíðarfangelsi Talið er að tæplega tíu þúsund ólögráða einstaklingar afpláni nú lífstíðarfangelsi í Bandaríkjunum. Landið trónir því á toppi lista yfir þá sem hafa flesta unglinga og börn í lífstíðarafplánun. Þetta kemur fram í <em>New York Times</em> í dag. Erlent 23.10.2005 15:01
Slippstöðin lýst gjaldþrota Slippstöðin hf á Akureyri hefur verið lýst gjaldþrota. Búið er að skipa skiptastjóra í bú fyrirtækisins og vonast starfsmenn til þess að launamál þeirra verði rædd á fundi með honum nú í hádeginu. Innlent 23.10.2005 15:01
Síldarvertíðin hafin Síldarvertíðin er hafin. Fjölveiðiskipið Beitir frá Neskaupstað landaði um 200 tonnum af síld í Neskaupstað í gær. Skip Samherja eru að veiðum út af Vestfjörðum en þar er lítið að hafa eins og stendur. Innlent 23.10.2005 15:01
Búist við 14,2 milljarða afgangi Áætlað er að skila ríkissjóði með 14,2 milljarða tekjuafgangi samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var í dag. Hreinar skuldir ríkissjóðs verða sjö prósent af vergri landsframleiðslu á næsta ári en voru 35 prósent landsframleiðslunnar árið 1996. Innlent 23.10.2005 15:01
Tyrkir æfir af reiði Óvíst er hvort Evrópusambandið hefji formlegar aðildarviðræður við Tyrki í dag, eins og áætlað var. Austurríkismenn standa í vegi fyrir því en öll aðildarlöndin 25 þurfa að samþykkja viðræðurammann. Tyrkir eru æfir af reiði yfir þessu og vanda Austurríkismönnum ekki kveðjurnar. Erlent 23.10.2005 15:01
Slitu samstarfinu AFL, Starfsgreinafélag Austurlands, hefur slitið samstarfi við Verkalýðsfélag Reyðarfjarðar og jafnframt óskað þess að félögin sameinist sem fyrst. Formaður Verkalýðsfélags Reyðarfjarðar undrast tilboðið en aðalfundur félagsins mun taka afstöðu til þess í kvöld. Innlent 23.10.2005 15:01
Stefna gefin út á fimmtudag Næstkomandi fimmtudag verður gefin út stefna í lögbannsmáli Jónínu Benediktsdóttur gegn <em>Fréttablaðinu</em> þar sem hún fór fram á lögbann á birtingu persónulegra tölvuskeyta sinna sem borist höfðu <em>Fréttablaðinu</em> og birt voru í tengslum við fréttir af Baugsmálinu. Lögfræðingur Jónínu, Hróbjartur Jónatansson, sagði að málið yrði síðan þingfest viku síðar. Innlent 23.10.2005 15:01
Engin starfsemi næstu daga Engin starfsemi verður í Slippstöðinni á Akureyri næstu daga. Þetta varð ljóst þegar Sigmundur Guðmundsson, skiptastjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri, sagði starfsmönnum á fundi nú seinnipartinn að þrotabúið myndi ekki reka stöðina. Innlent 23.10.2005 15:01
Grímur tekur ekki sætið Grímur Atlason, sem lenti í fimmta sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík um helgina, ætlar ekki að taka sætið. Grímur sóttist eftir fyrsta til þriðja sæti en lenti í því fjórða. Vegna hins svokallaða fléttufyrirkomulags, sem miðar að því að gera kynjunum jafn hátt undir höfði í uppröðun á listann, endaði Grímur aftur á móti í fimmta sæti. Innlent 23.10.2005 15:01
Fá Nóbelinn í læknisfræði Ástralarnir Barry Marshall og Robin Warren hljóta Nóbelsverðlaunin í læknisfræði í ár. Sænska nóbelsnefndin tilkynnti þetta í Stokkhólmi í morgun. Marshall og Warren komust að því árið 1982 að bakterían Helicobacter pylori væri völd að langflestum magasárum. Erlent 23.10.2005 15:01
Nýr Hæstaréttardómari tilnefndur Kona mun að öllum líkindum áfram skipa Hæstarétt Bandaríkjanna. George Bush, Bandaríkjaforseti, hefur tilnefnt Harriet Miers, ráðgjafa í Hvíta húsinu, sem Hæstaréttardómara. Verði tilnefning hennar samþykkt mun hún taka við af Söndru Day O'Connor sem lét af embætti fyrr á árinu sökum aldurs. Erlent 23.10.2005 15:01
Kaldasti september síðan 1982 Frost mældist 3,4 gráður í Reykjavík sunnudaginn 25. september og þarf að fara rúm þrjátíu ár aftur í tímann til að finna dæmi um slíkan kulda í höfuðborginni í september. Mánuðurinn var kaldur um land allt og hefur ekki verið kaldara í september um land allt síðan árið 1982. Innlent 23.10.2005 15:01
Búist við 14,2 milljarða afgangi Áætlað er að skila ríkissjóði með 14,2 milljarða tekjuafgangi samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var í dag. Hreinar skuldir ríkissjóðs verða sjö prósent af vergri landsframleiðslu á næsta ári en voru, þrjátíu og fimm prósent landsframleiðslunnar árið 1996. Innlent 23.10.2005 15:01
Samþykktu viðræður við Tyrki Austurríkismenn gáfu eftir nú undir kvöld og samþykktu að aðildarviðræður Evrópusambandsins við Tyrki gætu hafist. Þeir lýstu því yfir í gær að þeir gætu ekki samþykkt að Tyrkland yrði fullgildur meðlimur - of margir Evrópubúar séu á móti því og nauðsynlegt sé að hlusta á borgarana. Tyrkir brugðust ókvæða við en undirbúningur fyrir viðræðurnar hefur staðið árum saman. Erlent 23.10.2005 15:01
Viðskiptahalli áfram mikill Spáð er áframhaldandi miklum hagavexti á næsta ári í nýrri þjóðhagsspá efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, en hún var birt samhliða fjárlagafrumvarpi næsta árs. Innlent 23.10.2005 15:01
Þrír úrskurðaðir í gæsluvarðhald Þrír ungir menn voru í gærkvöldi úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness en þeir eru allir grunaðir um aðild að fólskulegri líkamsárás á tvo unga menn í Garðabæ aðfararnótt sunudags þar sem annar hlaut alvarlega áverka. Upphaflega voru fjórir handteknir vegna málsins en einum var sleppt að loknum yfirheyrslum síðdegis í gær. Innlent 23.10.2005 15:01
Ekki streita sem veldur magasári Tveir ástralskir læknar fá Nóbelsverðlaunin í læknisfræði í ár fyrir uppgötvun sem hefur gjörbylt lífi milljóna manna. Það er ekki streita sem veldur magasári heldur sýkill. Þetta uppgötvuðu áströlsku læknarnir. Erlent 23.10.2005 15:01