Fréttir

Fréttamynd

Sýknaður af 94 milljóna kröfu

Fyrrverandi forstjóri Atlanta, Arngrímur Jóhannsson, var sýknaður af 94 milljón króna kröfu norsks eiganda flugfélags í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Innlent
Fréttamynd

Konur og lýðræði

Tuttugu og tveggja manna íslensk sendinefnd tekur nú þátt í ráðstefnunni konur og lýðræði, sem fer fram í St. Pétursborg í Rússlandi. Þetta er fjórða og síðasta ráðstefnan í ráðstefnuröð sem ber sama heitið.

Erlent
Fréttamynd

178 hluthafar í Skúlason Ltd

Hundrað sjötíu og átta hluthafar eru í breska fyrirtækinu Skúlason Limited sem á meirihluta í Skúlason ehf. Það félag sætir nú rannsókn bresku lögreglunnar vegna gruns um peningaþvætti.

Innlent
Fréttamynd

Mótmæla afnámi bensínstyrks

Stjórn Vinstri - grænna mótmælir harðlega þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að afnema örorkustyrk vegna reksturs bifreiða, eða svokallaðs bensínstyrks, eins og gert er ráð fyrir í fjárlögum sem birt voru í vikunni.

Innlent
Fréttamynd

Írarnir hafa ekki sótt um leyfi

Hópur Íra, sem gripinn hefur verið við ólöglega sölu ýmiss varnings hér á landi undanfarið, virðist ekki hafa ráðið bót á sínum málum. Á meðal þess sem mennirnir hafa boðið til sölu eru rafstöðvar, borvélar og háþrýstidælur.

Innlent
Fréttamynd

Sýknaður af 94 milljóna kröfu

Arngrímur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Atlanta, var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun af skaðabótakröfu upp á 94 milljónir króna. Sækjandi í málinu, sem er norskur athafnamaður, stefndi Arngrími á þeim forsendum að hann hafi skuldbundið sig til að gerast aðili að fyrirtæki stefnanda, Scandinavian Historic Flight, og til að leggja tiltekna fjármuni til félagsins.

Innlent
Fréttamynd

Konum fjölgar í sveitarstjórnum

Ef sameining verður samþykkt má búast við að konum fjölgi í sveitarstjórnum. Sameiningarkosningarnar á morgun snerta 96 þúsund manns í 61sveitarfélagi. Dæmin sýna að hlutur kvenna í sveitarstjórnum er meiri í stærri og fjölmennari sveitarfélögum en þeim fámennari.

Innlent
Fréttamynd

500 milljarðar á mánuði

Bandaríkjastjórn eyðir nálægt fimm hundruð milljörðum íslenskra króna mánaðarlega í baráttu gegn hryðjuverkum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu þingnefndar í Bandaríkjunum. Langstærstur hluti kostnaðarins fer í Íraksstríðið, eða sem nemur um fjögur hundruð milljörðum á mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Á þriðja hundrað talin af

Í það minnsta 250 manns hafa farist í flóðunum í Mið-Ameríku undanfarna daga. Þar af fórust fimmtíu manns í aurskriðu í Gvatemala í vikunni.

Erlent
Fréttamynd

VÍS sýknað

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Vátryggingafélag Íslands af 29 milljóna króna bótakröfu þrítugrar konu í gær.

Innlent
Fréttamynd

Sluppu ómeidd úr eldsvoða

Eldur kom upp í húsi við Hvanneyrarbraut á Siglufirði laust fyrir klukkan fimm í morgun. Eldurinn kviknaði í kjallara en barst fljótlega upp á hæðina fyrir ofan. Tvennt var í húsinu og bæði komust ómeidd út af sjálfsdáðum.

Innlent
Fréttamynd

Trúnaðarmannafundur síðdegis

Starfsmannafélag Akraness heldur trúnaðarmannafund eftir hádegi. Þar verður afstaða tekin til áskorunar bæjarráðs Akraness um að starfsmannafélagið fresti boðuðu verkfalli um viku.

Innlent
Fréttamynd

Hvetur til vopnahlés vegna Ramadan

Einn af leiðtogum súnníta í Írak hefur hvatt til vopnahlés á milli uppreisnarmanna og hermanna í landinu í hinum helga íslamska mánuði Ramadan sem nú er nýhafinn. Saleh al-Mutlak, sem m.a. vann að drögum að nýrri stjórnarskrá fyrir Írak, sagði enn fremur að nokkrir stjórnmálaflokkar súnníta í landinu sem þekktu til uppreisnarmanna hefðu boðist til að koma á viðræðum milli þeirra og Bandaríkjamanna til þess að reyna að binda enda á hin blóðugu átök í Írak.

Erlent
Fréttamynd

250 fasteignir haldlagðar

Breska lögreglan lagði í gær hald á 250 fasteignir í Manchester sem talið er að tengist Írska lýðveldishernum, IRA. Eignirnar tengjast tveimur kaupsýslumönnum og annar þeirra er Thomas Murphy, sem talinn er einn af leiðtogum IRA.

Erlent
Fréttamynd

Fuglaflensa finnst í Rúmeníu

Landbúnaðarráðherra Rúmeníu tilkynnti í dag að fundist hefði fuglaflensa í alifuglum þar í landi. Fuglarnir sem smit fannst í eru sagðir þrír en ekki hefur fengist staðfest hvort um banvænt afbrigði flensunnar er að ræða og verða sýni send til Bretlands til frekari rannsókna.

Erlent
Fréttamynd

Mótmæla ráðningu Þorsteins

Stjórn Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, mótmælir þeirri ráðstöfun forsætisnefndar Alþingis að ráða sendiherra og fyrrverandi ráðherra, sem enga reynslu hefur af ritun fræðirita, til að rita sögu þingræðis á Íslandi. Sem kunnugt er hefur nefndin falið Þorsteini Pálssyni, fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, ritunina.

Innlent
Fréttamynd

Vill viðræður um sjálfstæði Kosovo

Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lagði til við öryggisráð samtakanna í dag að hafnar yrðu viðræður um það hvort Kosovo-hérað skuli fá sjálfstæði eða verða hluti af Serbíu eins og héraðið var áður en átök brustust út milli Serba og Kosovo-Albana seint á tíunda áratug síðustu aldar.

Erlent
Fréttamynd

Stóru olíufélögin lækka verð

Öll stóru olíufélögin hafa lækkað verð á bensíni um eina krónu á lítra í dag. Ástæða lækkunarinnar er lækkandi heimsmarkaðsverð, en verð á hráolíu lækkaði í gær, fimmta daginn í röð, og er nú komið niður í rétt rúmlega sextíu og einn dollara á fatið.

Innlent
Fréttamynd

270 milljónir í sendiráðin

Sendiráð Íslands fá rúmlega 270 milljóna króna aukaframlag á fjáraukalögum. Á fjárlögum ársins sem samþykkt voru í desember í fyrra var gert ráð fyrir að kostnaður við sendiráðin næmi um 1.700 milljónum króna. Aukningin nú nemur því sextán prósentum af því sem gert var ráð fyrir að rekstur sendiráðanna kostaði.

Innlent
Fréttamynd

Hæstiréttur ómerkti sýknudóminn

Hæstiréttur ómerkti í gær sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem ákærður var fyrir tilraun til manndráps með því að skera leigubílstjóra á háls í fyrrasumar, og vísaði málinu aftur til Héraðsdóms. Sýknudómurinn vakti undrun á sínum tíma þar sem hann byggðist á því að enginn hafi séð verknaðinn nægilega vel.

Innlent
Fréttamynd

Vatnsendaskóli tekinn í notkun

Vatnsendaskóli í Kópavogi var formlega tekinn í notkun í dag. Skólastarf er þó þegar hafið og stunda 120 nemendur nám við skólann í fimm bekkjardeildum en búist er við að nemendafjöldi tvöfaldist á næsta skólaári þegar næsta áfanga í byggingu skólans er lokið.

Innlent
Fréttamynd

Kosið um sameiningu á morgun

Ólíklegt er að Reykjanesbær, Garður og Sandgerði sameinist í eitt bæjarfélag í kosningunum á morgun. Sömu sögu er að segja af Árborg, Hveragerði, Ölfusi, Gaulverjabæjarhreppi, Hraungerðishreppi og Villingaholtshreppi á Suðurlandi - sem og níu sveitarfélögum á Eyjafjarðarsvæðinu. Flestir eru á kjörskrá í Hafnarfirði eða rúmlega fimmtán þúsund manns - en fæstir í Mjóafjarðarhreppi, þar sem aðeins eru 38 á kjörskrá.

Innlent
Fréttamynd

Hóta verkfalli ef ekki semst

Sjúkraliðar á fimmtán heilbrigðisstofnunum hóta verkfalli ef ekki nást samningar mjög fljótt um kaup þeirra og kjör. Sjúkraliðarnir vinna hjá fyrirtækjum innan raða Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. Engir samningar hafa náðst og segja sjúkraliðar að þolinmæði þeirra sé á þrotum.

Innlent
Fréttamynd

Jón Ólafsson býður sættir

Jón Ólafsson er tilbúinn til að sættast við Hannes Hólmstein Gissurarson ef hann biðst afsökunar á ummælum sínum um að Jón hafi auðgast á fíkniefnainnflutningi. Hannes segist hins vegar aðeins hafa verið að segja sannleikann.

Innlent
Fréttamynd

300 þúsund manns flýja heimili sín

Tæplega 300 þúsund manns hafa neyðst til að flýja heimili sín í norðvesturhluta Kína vegna þess að ár eru farnar að flæða yfir bakka sína og aukin hætta er á aurskriðum eftir gríðarlegar rigningar undanfarnar vikur. Ekki hafa borist neinar fréttir af manntjóni en sex létust í flóðum á þessu sama svæði í ágúst síðastliðnum.

Erlent
Fréttamynd

Átti 38 þúsund skrár með barnaklám

Lögreglan í Reykjavík fann gríðarlegt magn af barnaklámi í tölvu Reykvíkings á fertugsaldri. Hann hafði tengt sig við barnaklámsvefi í Finnlandi og vistað tugþúsundir ljósmynda og hreyfimyndir sem taka tólf klukkustundir í sýningu. >

Innlent
Fréttamynd

Stan: Tugþúsundir í neyðarskýlum

Tugþúsundir manna hafast nú við í neyðarskýlum í suðurhluta Mexíkó þar sem flóð af völdum fellibylsins Stan hafa lagt hús og önnur mannvirki í rúst. Í nágrannaríkinu El Salvador eru meira en fimmtíu þúsund manns heimilislaus og alls hafa nú um tvö hundruð og fjörutíu manns látist eftir yfirreið fellibylsins um Mið-Ameríku.

Erlent
Fréttamynd

Samningar náðust um endurreisn

Samningar hafa náðst milli KEA, fjárfestingafélagsins Sjafnar og Sandblásturs og málmhúðunar um að félögin leiti leiða til að endurreisa rekstur Slippstöðvarinnar á Akureyri með samningum við þrotabú og aðra eigendur tækja og húsnæðis. Skiptastjóri búsins segir erfitt að segja til um hvenær samningar náist. 

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir fjársvik

Fimmtíu og níu ára gamall maður var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi til þriggja ára fyrir fjársvik.

Innlent