Fréttir Tappa þarf af undirliggjandi verðbólgu Innlent 27.10.2005 17:05
Skapsmunir hans eru jákvæðir Knattspyrnugoðsögnin Diego Maradona sagði í viðtali við breska blaðið Sun að hinir umdeildu skapsmunir Wayne Rooney séu ekki neikvæðir, heldur þvert á móti af hinu góða. Margir hafa spáð því að Rooney eigi eftir að verða skotmark á HM í Þýskalandi næsta sumar vegna skapsmuna sinna, en Maradona hefur engar áhyggjur af því. Sport 27.10.2005 15:47
Vilja völlinn í Vatnsmýrinni Margir þeirra sem börðust hvað harðast gegn sameiningu sveitarfélaganna í Eyjafirði, og eru taldir hafa haft mikið að segja um að sameiningu var hafnað, hafa nú skorið upp herör gegn flutningi Reykjavíkurflugvallar. Innlent 27.10.2005 14:56
Mjög alvarlegar athugasemdir segir Jóhanna Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir mjög alvarlegar athugasemdir koma fram í úttekt Ríkisendurskoðunar á kaupum ríkisins á sérfræðiþjónustu á undanförnum árum. Innlent 27.10.2005 16:18
Við getum keppt við Chelsea Arsene Wenger hefur gefið það út að Arsenal-liðið geti veitt Chelsea harða keppni í vetur, en bendir á að meiðsli hafi sett strik í reikninginn í byrjun tímabils. Sport 27.10.2005 15:34
Vöruflutningabíll valt í Mosfellsbæ Bílstjóri vöruflutningabifreiðar slasaðist þegar bifreið hans valt á hringtorgi á mótum Vesturlandsvegar og Reykjavegar í Mosfellsbæ um hádegisbilið í dag. Innlent 27.10.2005 15:39
Hugurinn liggur frá Highbury Bresk blöð greina frá því í dag að framherjinn Thierry Henry hafi viðurkennt fyrir vinum sínum að ef hann ætti að gera upp hug sinn í dag, myndi hann fara frá Arsenal. Hann hefur engu að síður sagt að hann muni ekki taka ákvörðun fyrr en næsta sumar. Sport 27.10.2005 15:12
ASÍ kannar portúgalska starfsmannaleigu Alþýðusambandið kannar starfsemi portúgalskrar starfsmannaleigu sem hefur hátt í eitt hundrað starfsmenn hér á landi. Þá er starfsemi íslensku starfsmannaleiganna Tveir plús einn og 2B til skoðunar. Innlent 27.10.2005 13:59
Ole Stavad nýr forseti Norðurlandaráðs Danski þingmaðurinn Ole Stavad verður forseti Norðurlandaráðs á árinu 2006. Hann var einróma kjörinn á Norðurlandaráðsþingi sem lauk nú í Reykjavík klukkan tvö. Hann tekur við að Rannveigu Guðmundsdóttur, þingmanni Samfylkingarinnar, sem gengt hefur embættinu á þessu ári. Erlent 27.10.2005 13:57
Hagsmunir ferðaþjónustu miklir vegna Grænlandsflugs Vestnorræna ráðið ræðir nú hvernig koma megi í veg fyrir að flug frá Íslandi til Grænlands leggist af, en samningur við Grænlendinga þar að lútandi rennur út um áramótin. Framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins segir mikla hagsmuni í húfi bæði fyrir grænlenska og íslenska ferðaþjónustu. Innlent 27.10.2005 13:46
Safna undirskriftum gegn flutningi flugvallar Íbúar í Dalvíkurbyggð eru byrjaðir með undirskriftasöfnun gegn flutningi Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýri. Áfram, nýstofnuð hagsmunasamtök Dalvíkurbyggðar, standa fyrir undirskriftasöfnuninni og vonast forsvarsmenn hennar til að íbúasamtök og einstaklingar út um allt land taki þátt í söfnuninni með þeim. Innlent 27.10.2005 13:54
Vill að ríkisvaldið bregðist við vanda sjávarútvegsfyrirtækja Ef gengi íslensku krónunnar stendur í stað eða hækkar getur það leitt til þess að sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að hætta starfsemi. Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja hefur versnað verulega undanfarna mánuði vegna sterkrar stöðu krónunnar en Björgólfur Jóhannsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, vill að ríkisvaldið bregðist við. Innlent 27.10.2005 13:37
Fjöldi barnaverndartilfella tvöfaldast á átta árum Börnum, sem njóta þjónustu barnaverndarkerfisins, líður jafn illa eða jafnvel verr en börnum innan geðheilbrigðiskerfisins. Stúlkum líður verr en drengjum. Fjöldi barna undir eftirliti barnaverndaryfirvalda hefur ríflega tvöfaldast á átta árum. Innlent 27.10.2005 13:11
Miers gefur ekki kost á sér sem hæstaréttardómari Harriet Miers er hætt við að gefa kost á sér sem hæstaréttardómari í Bandaríkjunum. Þetta tilkynnti hún rétt í þessu. Erlent 27.10.2005 13:18
Þingi Norðurlandaráðs að ljúka Þingi Norðurlandaráðs lýkur nú klukkan tvö eftir hádegið, en í morgun hafa samstarfsráðherrar norrænu ríkjanna meðal annars rætt fjármál, orkumál, nýsköpun og framtíðarskipulag norræns samstarfs. Innlent 27.10.2005 12:42
Engin ástæða til að óttast skyndisölu á skuldabréfum Erfitt er að átta sig á því hvaða áhrif skuldabréfaútgáfa erlendra fjárfesta hefur á íslenskt efnahagslíf. Eiríkur Guðnason, seðlabankastjóri, segir að engin ástæða sé til að óttast að fjárfestarnir selji allir bréf sín á sama tíma. Jafn líklegt sé að þeir vilji eiga skuldabréfin áfram eða gefa út ný. Innlent 27.10.2005 12:36
Hrærð yfir fjölmenninu Það mátti heyra ekka þegar sveit rauðklæddra björgunarsveitarmanna gekk í íþróttahúsið á Flateyri í gær þar sem þess var minnst að tíu ár eru frá snjóflóðinu sem varð tuttugu manns að bana og lagði stóran hluta þorpsins í rúst. Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir, ein þeirra sem skipulögðu minningarathöfnina, segist hrærð yfir því hversu margir komu. Innlent 27.10.2005 12:02
Malarflutningabíll valt í Mosfellsbæ Malarflutningabíll fór út af veginum í Mosfellsbæ og er maður fastur í honum. Lögregla, sjúkrabíll og tækjabíll eru á leiðinni á slysstað en ekki er vitað á þessari stundu hversu mikið maðurinn er slasaður. Þá fauk gámur af bíl í Kollafirði. Innlent 27.10.2005 12:28
Þverneita að breyta dauðadómni Yfirvöld í Singapore þverneita að breyta dauðadómi yfir áströlskum fíkniefnasmyglara sem var handtekinn með 400 grömm af heróíni árið 2002. Stjórnvöld í Ástralíu hafa mánuðum saman reynt að fá dóminn mildaðan, en án árangurs. Erlent 27.10.2005 12:21
Magloire til Milwaukee Bucks Milwaukee Bucks var duglegt á leikmannamarkaði NBA í sumar og fékk meðal annars fyrsta valréttinn í nýliðavalinu. Í gærkvöldi nældi félagið svo í enn einn leikmanninn þegar það fékk til sín miðherjann Jamaal Magloire frá New Orleans, í skiptum fyrir framherjann Desmond Mason og valrétt í nýliðavalinu á næsta ári. Sport 27.10.2005 04:15
Dæmdur fyrir að stela bílum Rúmlega þrítugur karlmaður var í morgun dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ræna tveimur bílum og keyra þá um götur Reykjavíkur uns lögregla stöðvaði för hans. Maðurinn var jafnframt ökuréttindalaus þegar þetta gerðist. Innlent 27.10.2005 12:00
Varar við hættu á berklafaraldri Hætta er á að berklafaraldur brjótist út í Norður-Evrópu vegna lyfjaónæmra berkla sem komið hafa upp í héraðinu Arkhangelsk í Norðvestur-Rússlandi. Þetta segir Jan Henrik Fredriksen, fulltrúi noskra Framfaraflokksins, en hann vakti athygli á málinu í umræðum um norðursvæðin á Norðurlandaráðsþinginu sem nú er haldið í Reykjavík. Erlent 27.10.2005 11:57
Fjölga þarf rýmum Fjölga verður rýmum á réttargeðdeildinni á Sogni þar sem hún rúmar ekki lengur alla þá sem þyrfti að vista þar segir heilbrigðisráðherra. Hann hefur skipað starfshóp til að huga að uppbyggingu á Sogni. Innlent 27.10.2005 11:05
Annað tap Real Madrid í röð Stjörnum prýtt lið Real Madrid steinlá fyrir Deportivo 3-1 í spænska boltanum í gærkvöldi og tapaði þar með öðrum leik sínum í röð í deildinni. Barcelona sigraði Malaga 2-0 með mörkum frá Ronaldinho og Larsson. Sport 27.10.2005 03:45
Ríflega 400 ættleiðingar á árunum 1996-2004 411 ættleiðingar voru hér á landi á tímabilinu 1996 til 2004 eftir því sem fram kemur í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Í 174 tilvikum var um að ræða stjúpættleiðingu en frumættleiðingar voru 237. Frumættleiddir Íslendingar voru 57 en frumættleiðingar frá útlöndum 180. Innlent 27.10.2005 10:08
Huginn greiddi hæstu meðallaunin Huginn VE 55 greiddi hæstu meðallaunin árið 2004 en meðallaun í útgerðinni voru 685 þúsund krónur á mánuði. Er það hækkun um ellefu prósent frá árinu á undan. Þetta kemur fram í Fiskifréttum. Innlent 27.10.2005 08:59
Minnihluti kynnti ráðamönnum hugmyndir sínar Bæjarfulltrúar minnihlutans á Bolungarvík fóru á eigin vegum á fund félagsmálaráðherra og forsætisráðherra til að kynna þeim hugmyndir sínar um gangagerð úr Syðridal í Bolungarvík annað hvort í Vestfjarðagöng eða beint í Tungudal í Skutulsfirði. Innlent 27.10.2005 08:46
Fjórir bílar ultu á Reykjanesbraut í morgun Fjórir bílar ultu út af Reykjanesbrautinni á milli Voga og Straums, með skömmu millibili upp úr klukkan sjö í morgun þegar ísing myndaðist óvænt á brautinni. Aðeins einn maður meiddist lítillega og var fluttur á slysadeild Borgarspítalans en mikið eignatjón varð. Innlent 27.10.2005 10:04
Óttast að stúlka hafi látist úr fuglaflensu í Kína Grunur leikur á að tólf ára stúlka hafi látist af völdum fuglaflensu í Mið-Kína, en hún bjó í þorpi þar sem fuglaflensa hefur greinst nýlega. Frá þessu er sagt í kínversku dagblaði í dag en heilbrigðisyfirvöld segja að þau hafi ekki fengið neina tilkynningu um að fuglaflensa hafi greinst í mönnum í landinu. Erlent 27.10.2005 07:49
Vill reka Írana úr SÞ vegna ummæla Íransforseta Shimon Peres, varaforsætisráðherra Ísraels, hefur farið fram á það að Írönum verði vísað úr Sameinuðu þjóðunum vegna ummæla forseta Írans um að þurrka ætti Ísrael út af landakortinu. Stjórnir verstrænna ríkja stíga nú fram hver af annarri til þess að fordæma orðin. Erlent 27.10.2005 09:59