Fréttir
Skipar nefnd um hollara mataræði og meiri hreyfingu Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur skipað nefnd sem greina á vanda sem tengist óhollu mataræði, offitu, átröskun og hreyfingarleysi og koma með tillögur að samræmdum aðgerðum til að taka á vandamálum sem tengjast þessu. Innlent 31.10.2005 16:56
Samtök framleiðenda frumlyfja stofnuð Samtök framleiðenda frumlyfja á Íslandi hafa verið stofnuð. Formaður er Hjörleifur Þórarinsson hjá GlaxoSmithKline. Tilgangur samtakanna er að efla og dýpka umræðu um lyfjamál og gæta hagsmuna framleiðenda frumlyfja á Íslandi og á alþjóðavísu. Innlent 31.10.2005 16:52
Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs staðfestar Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur staðfest lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs á langtímaskuldbindingum í erlendri mynt AA- og AA+ fyrir langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum. Um leið hefur fyrirtækið staðfest lánshæfiseinkunnina A-1+ fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum og segir að horfur um lánshæfismat séu stöðugar. Innlent 31.10.2005 17:03
Tekinn fullur á bílnum um helgina Vandræðagemlingurinn El Hadji Diouf hjá Bolton er enn kominn í fréttirnar fyrir agabrot og nú fyrir ölvunarakstur. Diouf var stöðvaður af lögreglu snemma á sunnudagsmorguninn og var látinn blása, þar sem í ljós kom að hann var undir áhrifum áfengis. Sport 31.10.2005 16:49
Segja Bandaríkjaher hafa drepið 40 óbreytta borgara Írakskir læknar segja fjörutíu óbreytta borgara hafa fallið undanfarinn sólarhring í loftárásum Bandaríkjahers í vesturhluta Íraks, nærri landamærum Sýrlands. Bandaríkjamenn verjast fregnum af málinu. Erlent 31.10.2005 16:40
Talsvert um smölun Þó nokkur smölun í Sjálfstæðisflokkinn hefur þegar átt sér stað vegna prófkjörs flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Þá hafa um 250 manns þegar greitt atkvæði utan kjörstaðar. Erlent 31.10.2005 16:40
Ályktað um að Sýrlendingar sýni fulla samvinnu Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna samþykkti í dag einróma ályktun um að Sýrlendingum bæri að sína fulla samvinnu vegna rannsóknar á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. Erlent 31.10.2005 16:37
Þörf á blóðgjöfum þar sem þjóðin eldist Þörf er á fleiri blóðgjöfum hér á landi þar sem íslenska þjóðin er að eldast. Með hækkandi meðalaldri þurfa fleiri á blóði að halda á meðan þeim fækkar hlutfallslega sem staðið geta undir blóðgjöfum. Þetta segir Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir hjá Blóðbankanum sem ætlar ásamt Og Vodafone að standa að auglýsingaherferð þar sem fjölga á blóðgjöfum og vekja fólk til umhugsunar um þessa áskorun framtíðarinnar. Innlent 31.10.2005 16:33
Baðst afsökunar en fær sekt Lauren Robert hefur verið sektaður um óuppgefna upphæð fyrir að neita að vera á varamannabekk liðsins í leiknum gegn Sunderland á laugardaginn. Robert hefur beðist afsökunar á atvikinu, en hann lýsti því yfir skömmu fyrir leikinn að hann væri meiddur og gæti ekki spilað. Sport 31.10.2005 16:06
Búið að opna þjóðveginn Búið er að opna þjóðveg eitt milli Laugarbakka og Víðihlíðar. Búið er að losa meirihluta þeirra bíla sem fastir voru á veginum milli Laugarbakka og Víðihlíðar enn eru þó nokkrir bílar fastir en Ragnar Árnason, verkstjóri hjá Vegagerðinni, segir mikla hríð á svæðinu. Innlent 31.10.2005 15:34
Kirkjusókn jókst um 28% milli ára Kirkjusókn í Reykjavíkurprófastsdæmunum tveimur, vestra og eystra, jókst um tuttugu og átta prósent fyrstu vikuna í október miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í tölum frá Reykjavíkurprófastdæmi eystra. Heildarfjöldi kirkjugesta þessa viku í ár nam rúmum tuttugu og fimm þúsundum. Innlent 31.10.2005 15:00
Arsene Wenger er eins og gluggagægir Arsene Wenger og Jose Mourinho, knattspyrnustjórar Lundúnaliðanna Arsenal og Chelsea, munnhöggvast nú sem aldrei fyrr í fjölmiðlum og í morgun sagði Jose Mourinho að Wenger væri eins og gluggagægir að fylgjast með liði Chelsea. Sport 31.10.2005 15:39
Yfir 60 látnir eftir sprengjuárásina Nú er ljóst að yfir 60 manns létust og meira en 200 eru særðir eftir röð sprenginga í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, á laugardaginn. Allar sprengjurnar sprungu á vinsælum markaðstorgum en samtökin Lashkar-e-Tayyaba hafa lýst verknaðinum á hendur sér. Erlent 31.10.2005 14:37
Blóðbankinn lýsir eftir hetjum Blóðbankinn lýsir eftir hetjum og óskar eftir blóði til að geta brugðist við alvarlegum slysum, náttúruhamförum og þvíumlíku. Um níu þúsund manns gefa blóð hér á landi reglulega en það er um fimm prósent þjóðarinnar. Innlent 31.10.2005 14:08
Bush tilnefndi Alito sem hæstaréttardómara George Bush, forseti Bandaríkjanna, tilnefndi fyrir stundu nýjan hæstarréttadómara. Það er alríkisdómarinn og íhaldsmaðurinn Samuel Alito sem varð fyrir valinu en hann var talinn líklegastur ásamt öðrum til. Erlent 31.10.2005 13:27
Kona greinist með fuglaflensu í Tælandi Tælensk heilbrigðisyfirvöld greindu frá því í dag að 50 ára gömul tælensk kona hefði greinst með fuglaflensu. Hún er tuttugasti einstaklingurinn sem greinist með fuglaflensu í Tælandi, frá því að fuglaflensan kom upp þar fyrir tveimur árum. Erlent 31.10.2005 13:24
Selur bítur nef af konu Selur beit nefið af konu í dag við strendur Suður-Afríku þegar hún var að reyna að hjálpa honum aftur út í sjóinn. Selurinn hafði legið á sama stað síðan fyrir helgi en konan reyndi ásamt fleira fólki að koma selnum aftur út í sjóinn. Erlent 31.10.2005 13:21
Ekki trygging fyrir því að dragi úr heimilisofbeldi Nýjar verklagsreglur um meðferð og skráningu heimilisofbeldismála tóku gildi í síðustu viku. Það eitt og sér er þó engin trygging fyrir því að dragi úr heimilisofbeldi að sögn framkvæmdastýru Kvennaathvarfs. Innlent 31.10.2005 12:48
Bankarnir greiða 5 milljarða í opinber gjöld Fyrirtæki í Reykjavík borga tæplega 35 milljarða króna í opinber gjöld á þessu ári. Bankarnir tróna á toppnum með samanlagt um fimm milljarða króna. Innlent 31.10.2005 12:29
25 látnir og 70 þúsund flúnir Að minnsta kosti tuttugu og fimm hafa látist í flóðum og aurskriðum í Víetnam undanfarna daga eftir að fellibylur gekk yfir landið. Tæplega sjötíu þúsund manns hafa flúið heimili sín vegna hamfaranna. Erlent 31.10.2005 12:17
Yfirtaka á næsta leiti hjá Aston Villa Stuðningsmenn Aston Villa bíða þess nú í ofvæni að írska stórfyrirtækið Comer Homes Group kaupi hlaut Doug Ellis í félaginu og trúa að það muni hafa í för með sér að Villa komi sér á kortið með stóru liðunum á Englandi. Sport 31.10.2005 03:52
Ríkisstjórn mynduð í Póllandi Búið er að mynda nýja ríkisstjórn í Póllandi. Það er minnihlutastjórn flokksins Laga og réttar sem fékk flest atkvæði í þingkosningum í september. Erlent 31.10.2005 12:12
Ekki fuglaflensa á Chios Talsmenn Evrópuráðsins greindu frá því í morgun að grunur um fuglaflensu á grísku eyjunni Chios hafi ekki átt við rök að styðjast. Innlent 31.10.2005 11:57
Börsungar í stuði í gær Barcelona smellti sér í annað sæti spænsku deildarinnar í gær þegar liðið burstaði Real Sociedad 5-0. Osasuna er í efsta sæti deildarinnar eftir 2-0 á Espanyol í gær. Sport 31.10.2005 03:39
Actavis greiddi hæstan skatt Lyfjafyrirtækið Actavis greiddi langhæstan skatt lögaðila í Reykjanesumdæmi í fyrra. Innlent 31.10.2005 10:54
Sjö létust í troðningi í Mekka Sjö létust í troðningi og um fjörutíu til viðbótar særðust þegar ringulreið myndaðist við úthlutun ölmusu í hinni helgu borg Mekka í Sádí-Arabíu á laugardag. Mekka er helgasti staður múslíma og var laugardagurinn síðasti dagur Ramadan, föstumánaðar og helgustu hátíðar múslíma og þess tímabils þar sem ölumusugjafir þykja hvað göfugastar. Erlent 31.10.2005 10:46
Stórhuga hjá Sterling Stefan Vilner, framkvæmdastjóri Sterling-flugfélagsins í Danmörku, segist fullviss um að innan tíu ára munu að minnsta kosti helmingur Dana nýta sér þjónustu lággjaldaflugfélaga fremur en annarra. Greinilegt er að innan Sterling eru menn stórhuga því í síðustu viku lýsti Hannes Smárason, forstjóri FL Group sem nú á Sterling, því yfir að þar á bæ hyggðust menn fjórfalda verðmæti félagsins á einu ári. Innlent 31.10.2005 09:52
Skeljungur og Essó lækkuðu verð um helgina Olíufélögin Skeljungur og Essó lækkuðu bensínverð um helgina og er lítrinn á sjálfsafgreiðslustöðvum hjá báðum félögum kominn niður undir 109 krónur. Samkvæmt heimasíðu Olís í morgun hafði engin lækkun orðið þar. Innlent 31.10.2005 09:38
23 teknir fyrir ölvunarakstur Tuttugu og þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur um helgina, þar af tólf í fyrrinótt. Þetta er óvenju mikið að sögn lögreglu og kann hún ekki skýringu á þessu. Innlent 31.10.2005 09:23
Erfingi fæddur í spænsku konungsfjölskyldunni Krónprins og krónprinsessa Spánar eignuðust sitt fyrsta barn í nótt, stúlku, þremur vikum fyrr en áætlað var. Sú staðreynd að hinn nýfæddi erfingi sé stúlka vekur upp pólitískar deilur sem áður hafa blossað upp á Spáni þar sem lög um erfingja krúnunnar kveða á um að drengir hafi forgang fram yfir stúlkur. Erlent 31.10.2005 09:16