Fréttir
CIA virðist oft nota Keflavíkurflugvöll fyrir vélarnar Svo virðist sem bandaríska leyniþjónustan CIA noti Keflavíkurflugvöll oft sem viðkomustað fyrir svonefndar draugaflugvélar sínar, sem sagt er að notaðar séu til að flytja grunaða hryðjuverkamenn til landa þar sem pyntingar eru leyfðar við yfirheyrslur. Innlent 1.11.2005 08:06
Danskir háskólar þeir bestu á Norðurlöndunum Danskir háskólar eru þeir bestu á Norðurlöndum þegar kemur að hugvísindum, félagsvísindum og náttúruvísindum. Þetta sýnir könnun hins virta breska menntatímarits The Times Higher Education Supplements, en tímaritið birtir árlega lista yfir 100 bestu háskóla heims. Innlent 31.10.2005 23:45
Krefst þátttöku Sýrlandsstjórnar í morðrannsókninni Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur krafist fullrar þátttöku Sýrlandsstjórnar í rannsókninni á morði fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, Rafik Hariri. Í ályktun ráðsins um mál Sýrlands er þó ekkert minnst á refsiaðgerðir neiti Sýrlendingar að vera samvinnuþýðir. Erlent 1.11.2005 07:39
Lítill fólksflutningabíll valt í Vatnsskarði Lítill fólksflutningabíll með fimm farþegum um borð valt út af veginum í Vatnsskarði í gærkvöldi en engin meiddist. Björgunarsveitarmenn aðstoðuðu við að ná bílnum upp á veginn aftur og gat hann haldið för sinni áfram. Innlent 1.11.2005 07:26
20 hið minnsta féllu í Basra Að minnsta kosti 20 manns féllu og yfir 40 særðust þegar bílsprengja sprakk á vinsælli verslunargötu í Basra, næststærstu borg Íraks, í gærkvöld. Margt fólk var á götum úti til að fagna Ramadan-hátíðinni sem senn fer að ljúka. Erlent 1.11.2005 07:15
Hornfirðingar byggja reiðhöll Reiðhöll verður reist fyrir hestamannafélagið Hornfirðing á landi sem sveitarfélagið Hornafjörður hefur keypt af landbúnaðarráðuneytinu. Vonir standa til að landbúnaðarráðherra styrki framkvæmdina um allt að krónu á móti krónu heimamanna. Innlent 31.10.2005 19:57
Vassell gerði út af við fyrrum félaga sína Darius Vassell skoraði tvö mörk fyrir Manchester City í 3-1 sigri á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Andy Cole lagði upp annað markanna fyrir félaga sinn í framlínu City og setti eitt sjálfur. Liam Ridgewell skoraði mark Aston Villa. Sport 1.11.2005 04:30
Þungar áhyggjur af fangafluginu Íslandsdeild Amnesty International lýsir yfir þungum áhyggjum af því að bandarískar herflugvélar hafi haft viðkomu hér á landi á leið sinni með fanga til landa þar sem pyntingum er beitt við yfirheyrslur. Hér á landi gildi bann við pyntingum og illri meðferð, sem feli einnig í sér algjört bann við að flytja fanga til ríkis þar sem hætta sé á að hann verði pyntaður eða látinn sæta ómannúðlegri meðferð. Innlent 1.11.2005 06:44
Draga af launum kvenna Nokkur fyrirtæki í landinu draga af launum þeirra starfsmanna sem gengu út klukkan 14.08 á kvennafrídaginn. Verslunarmannafélag Reykjavíkur skoðar málið. Innlent 1.11.2005 18:26
Tengivagn féll á fólksbíl Ung kona á fólksbíl var hætt komin í gærkvöldi þegar stór tengivagn, sem flutningabill dró, valt undan vindhviðu og varð fólksbíllinn undir tengivagninum. Fólksbíllinn var kyrrstæður vel úti í kanti þegar flutningabíllinn kom akandi sömu megin vegar og fólksbíllinn. Innlent 1.11.2005 07:23
Fólksbíll valt Fólksbíll fór út af Ólafsfjarðarvegi við Ársskógsskóla um tvö-leytið í dag. Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum í krapi og bíllinn fór út af og valt á hliðina. Ökumaðurinn slapp ómeiddur. Bíllinn er nánast óskemmdur. Innlent 31.10.2005 22:01
Sendibíll valt í Vatnsskarði Óhapp varð í Vatnsskarði í kvöld þegar sendibíll með fimm farþegum valt út af. Engin slys urðu á fólki. Björgunarsveitir aðstoðuðu við að ná bílnum upp á veginn aftur og hélt hann svo för sinni áfram. Innlent 31.10.2005 21:59
Slys í Skorholtsbrekku Slys varð í Skorholtsbrekkunni í Borgarfirðinum í gær þegar dráttarbíll með gámavagn rann út af í vindhviðu og valt ofan á fólksbíl sem hafði fokið út af nokkru áður. Þetta gerðist upp úr sex í gærkvöld. Umferðin stöðvaðist á þessum stað en bílum var beint niður Melasveitaveginn. Veður var vont fram eftir kvöldi í gær. Innlent 31.10.2005 21:56
Gabríela fékk heiðursverðlaun Myndstefs Gabríela Friðriksdóttir myndlistarmaður fékk í dag heiðursverðlaun Myndstefs. Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt, en það var forseti Íslands sem afhenti þau. Innlent 31.10.2005 21:52
Neita að fara án launaseðla Starfsmannaleigan 2B gerði í dag tilraun til þess að senda átján pólska starfsmenn sína úr landi. Starfsmennirnir neita að fara fyrr en þeir fá launaseðla og staðfestingu á vinnu sinni. Innlent 31.10.2005 20:18
Óttast aukið ofbeldi Breskt heilbrigðisstarfsfólk óttast aukið ofbeldi þegar lög sem leyfa eigendum öldurhúsa að selja áfengi allan sólarhringinn taka gildi í næsta mánuði. Fólk hefur mátt drekka allan sólarhringinn í Skotlandi og segir starfsfólk bráðamóttökunnar að það fari ekki milli mála að fleiri lendi í alvarlegum slagsmálum og ráðist jafnvel á hjúkrunarfólk. Erlent 31.10.2005 17:53
Eiga allt sitt undir blóði úr blóðbankanum Nýburarar á vökudeild og fólk sem berst við krabbamein getur átt sitt undir því að nóg sé til af blóði í Blóðbankanum. Bankinn er að hrinda af stað átaki til blóðsöfununar og segir yfirlæknir bankans nauðsynlegt að heilbrigðisyfirvöld tryggi fjármuni til kynningarstarfs. Innlent 31.10.2005 20:14
Eldur í fjölbýlishúsi í Álftamýri Verið er að reykræsta í kjallara í fjölbýlishúsi í Álftamýrinni. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kvatt á svæðið eftir að elds varð vart. Ekki er vitað til þess að neinn hafi sakað Innlent 31.10.2005 20:18
Óeirðir í Zanzibar Þriðju lýðræðislegu kosningarnar í sögu Zanzibar fóru fram í gær og stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar þyrptust út á götur til að fagna sigri sem þeir telja vísan þótt niðurstöður hafi ekki verið kunngerðar. Það kunnu stjórnvöld ekki að meta og sendu óeirðalögregluna til að koma andstæðingum sínum af götunum. Erlent 31.10.2005 17:49
Hrekkjavakan á fullt skrið Hrekkjavakan í Bandaríkjunum er nú í fullum gangi. Þá taka menn upp á ýmsu, en við Flórídastrendur voru menn að keppa í graskersútskurði og uppsetningu neðansjávar. Erlent 31.10.2005 17:43
Snarvitlaust veður á Norðurlandi í allan dag Snælduvitlaust veður hefur verið í allan dag á Norðurlandi. Um hundrað og þrjátíu manns þurftu að yfirgefa bíla sína á þjóðveginum milli Laugarbakka í Miðfirði og Blönduóss í gærkvöld. Rauði krossinn opnaði fjöldahjálparstöð fyrir fólkið og björgunarsveitir hafa unnið baki brotnu síðan um kvöldmatarleytið í gær. Innlent 31.10.2005 19:37
Meðalhiti á Íslandi mun hækka Hækkun meðalhita á Íslandi um tvær til þrjár gráður á næstu hundrað árum mun einkum koma fram í fækkun kuldakasta að vetri fremur en hærri sumarhita. Samkvæmt nýjum tölvuútreikningum mun hlýna meira inn til landsins en út við ströndina. Þá mun úrkoma aukast. Innlent 31.10.2005 19:31
CIA hafi hugsanlega flogið með fanga um íslenska lofthelgi Hugsanlegt er að bandaríska leyniþjónustan hafi flogið um íslenska lofthelgi með grunaða hryðjuverkamenn. Allt bendir til að slík vél hafi lent í Keflavík. Innlent 31.10.2005 19:18
Ný prinsessa á Spáni Spænsk prinsessa kom í heiminn í nótt sem leið. Hún heitir Leonor og er dóttir Felipe, krónprins Spánverja og eiginkonu hans til eins og hálfs árs, Letiziu Ortiz. Móður og dóttur heilsast vel, en barnið var tekið með keisaraskurði. Erlent 31.10.2005 17:35
Romanov tekur til í herbúðum félagsins Tveir æðstu menn í stjórn knattspyrnuliðsins Hearts í skosku úrvalsdeildinni eru farnir frá félaginu. Vladimir Romanov, nýr eigandi liðsins, hefur heldur betur látið til sín taka og rak í dag Phil Anderton, yfirmann knattspyrnumála. Í kjölfarið ákvað George Foulkes að segja af sér í mótmælaskyni og því hafa þrír menn verið flæmdir frá félaginu á nokkrum dögum. Sport 31.10.2005 18:46
Ekkert útboð Byggingaverktakar undrast að ein verðmætasta lóð Reykjavíkur skuli ekki boðin út. Borgin hefur hafið samningaviðræður við dótturfélag Íslandsbanka um lóð Strætós á Kirkjusandi. Innlent 31.10.2005 18:00
Þúsundir vottuðu Parks virðingu sína Þúsundir Bandaríkjamanna vottuðu minningu mannréttindafrömuðarins Rosu Parks virðingu sína í dag þegar kistunni með jarðneskum leifum hennar var stillt upp í Rotunda-hvelfingunni milli þinghúsanna í Washington-borg. Erlent 31.10.2005 17:51
Danskir háskólar þeir bestu á Norðurlöndum Danskir háskólar eru þeir bestu á Norðurlöndum þegar kemur að hugvísindum, félagsvísindum og náttúruvísindum. Þetta sýnir könnun hins virta breska menntatímarits Times Higher Education Supplements, en tímaritið birtir árlega lista yfir 100 bestu háskóla heims. Innlent 31.10.2005 18:09
Prince semur við Detroit Framherjinn Tayshaun Prince hefur framlengt samning sinn við Detroit Pistons til fimm ára og fær fyrir það um 47 milljónir dollara í laun. Samningar milli umboðsmanns Prince og félagsins náðust á elleftu stundu, en ef það hefði ekki tekist, hefði Prince verði með lausa samninga næsta sumar. Sport 31.10.2005 18:01
Göran Person gefur kost á sér Göran Persson, forsætisráðherra Svía, ætlar að gefa kost á sér í næstu þingkosningum í Svíþjóð sem verða haldnar árið 2006. Hingað til hafa skilaboðin um framboð hans verið mjög á reiki. Erlent 31.10.2005 17:47