Fréttir
Flytja úr landi ef ekkert breytist Íslensk hátæknifyrirtæki munu flytja starfsemi sína úr landi í stórum stíl ef ekkert verður að gert. Aðstæður hér á landi til reksturs slíkra fyrirtækja eru afar slæmar, meðal annars vegan sveiflna á gengi krónunnar. Þetta segir formaður Samtaka sprotafyrirtækja. Innlent 19.11.2005 12:16
Fuglaflensa breiðist út með ógnarhraða í Kína Fuglaflensa breiðist nú út með ógnarhraða í kínverskum hænsnfuglum og yfirvöld fá ekki rönd við reist, þrátt fyrir umfangsmiklar forvarnaraðgerðir. Erlent 19.11.2005 12:03
Grunaður um að hafa hjólað ölvaður Til kasta lögreglu kom í heldur óvenjulegu máli í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Þar rákust saman maður á reiðhjóli og bíll við Hverfisgötuna án þess þó að alvarleg slys yrðu á fólki en bíll og hjól skemmdust eitthvað. Innlent 19.11.2005 10:35
Eldar í Kaliforníu Eldar geysa nú um hluta Kaliforníuríkis, um sextíu kílómetra frá Los Angeles. Mikill fjöldi hefur þurft að yfirgefa heimili sín vegna eldsins sem þykir breiða óvenju hratt úr sér en vindasamt er á svæðinu. Berjast nú slökkviliðsmenn við að ráða niðurlögum hans og hefur allt tiltækt slökkvilið verið kallað á svæðið þar sem eldarnir eru. Erlent 19.11.2005 10:33
Lét ófriðlega fyrir utan partí í Grafarvogi Lögreglan í Reykjavík var kölluð að húsi í Grafavogi á miðnætti í gær en þar fór fram unglingapartí. Foreldrar veisluhaldarans voru ekki heima og fór partíið úr böndunum þegar maður vopnaður felgulykli og hnífi fór að berja á húsinu þar sem honum var vörnuð innganga í partíið. Innlent 19.11.2005 10:31
Nýr forseti segist munu ræða við Tamítígra Nýr forseti Srí Lanka var svarinn í embætti í morgun. Hann segist munu ræða við tígrana, uppreisnarmenn úr röðum Tamíla, og hyggst endurskoða þriggja ára gamalt vopnahlé. Erlent 19.11.2005 10:26
Þrjú afbrigði tölvuvírusar í dreifingu Að minnsta kosti þrjú ný afbrigði af Sober-tölvuorminum svokallaða eru nú í dreifingu á Netinu með tölvupósti. Ormurinn verður virkur við að móttakandi opnar sýkt viðhengi. Innlent 19.11.2005 10:26
Skorinn illa á háls á skemmtistað Ráðist var á mann og hann skorinn illa á háls á skemmtistað við Smiðjustíg í miðborginni í nótt. Árásarmaðurinn hafði brotið glas og lagði til mannsins en hann fékk stóran skurð á háls auk nokkurra áverka annars staðar á líkamanum þar sem hann reyndi að verja sig. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild og voru saumuð tuttugu spor í hálsinn á honum en hann mun þó ekki vera í lífshættu. Innlent 19.11.2005 10:30
Harka hlaupin í prófkjörið Nokkur harka er hlaupin í slaginn um fyrsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sem fram fer í dag. Haraldur Þór Ólason segir mótframbjóðanda sinn, Valgerði Sigurðardóttur, tengjast gömlu ættarveldi í hafnfirskri pólitík, Mathiesen-ættinni, og finnst tími kominn fyrir nýtt blóð í forystu. Innlent 19.11.2005 10:08
Árásir halda áfram í Írak Ellefu fórust þegar bílsprengja var sprengd á markaði í suðausturhluta Bagdad í morgun. Fimmtán særðust á árásinni og lögreglumenn á vettvangi segja allar líkur á að föllnum muni fjölga. Í gær fórust yfir áttatíu í árásum á tvær moskur í bænum Kanakín í norðausturhluta Íraks. Erlent 19.11.2005 10:07
Heimilislausir á Íslandi Milli 45 og 55 manns eru heimilislausir á hverjum tíma í Reykjavík. Þessir einstaklingar eru flestir einhleypir karlmenn milli þrítugs og fimmtugs. Þetta kemur fram í nýútgefinni skýrslu samráðshóps um heimilislausa sem gefin var út á vegum Félagsmálaráðuneytisins. Flestir heimilislausra eru öryrkjar og eiga við stórfelld heilsuvandamál að stríða ásamt áfengis- og vímuefnavanda. Þá eru vísbendingar um að stór hluti þeirra eigi einnig við geðræn vandamál að stríða. Innlent 18.11.2005 23:04
Lögmaður dæmdur fyrir auðgunarbrot Hæstiréttur hefur dæmt lögmann, sem fundinn var sekur um auðgunarbrot, til sex mánaðar fangelsisvistar. Lögmaðurinn gerði fjárnám í fasteign konu á grundvelli tryggingarvíxils að fjárhæð fimm milljónir króna, þótt krafan væri mun lægri. Hann hagræddi dagsetningum á ýmsum plöggum, svo það liti út fyrir að kröfurnar væru frá fyrri tíma og gerðist þar með sekur um að aðstoða konuna við svikin. Innlent 18.11.2005 22:14
KA sigraði Aftureldingu Einn leikur fór fram í DHL deild karla í handknattleik í kvöld. KA menn unnu góðan sigur á Aftureldingu nyrðra, 30-24 og komust þar með í fjórða sæti deildarinnar. Það var Goran Guic sem var atkvæðamestur í liði KA og skoraði 9 mörk, en Ernir Arnarsson skoraði 7 mörk fyrir Aftureldingu. Sport 18.11.2005 22:30
Vandi heimilislausra ræddur á Alþingi í dag Um fimmtíu manns eru heimilislausir á Íslandi, samkvæmt nýrri skýrslu sem félagsmálráðherra kynnti á Alþingi í morgun. Félagsmálaráðherra segir lausn vera í sjónmáli fyrir um tuttugu hinna heimilislausu, og að unnið sé að lausn alls vandans. Innlent 18.11.2005 22:07
Sjávarsíki í miðbæ Akureyrar Miðbæ Akureyrar verður umbylt á næstu árum í því augnamiði að laða fólk og fyrirtæki í hjarta bæjarins. Miðbærinn mun fá evrópskt yfirbragð en mesta breytingin er fólgin í sjávarsíki sem liggja mun frá Akureyrarpolli í miðbæinn. Innlent 18.11.2005 19:47
Njarðvík burstaði Keflavík Það verða Njarðvík og KR sem mætast í úrslitaleik Powerade-bikarsins í körfubolta í Laugardalshöll á morgun. Njarðvíkingar burstuðu granna sína úr Keflavík í síðari undanúrslitaleik kvöldsins 90-62 og mæta því KR í úrslitunum á morgun. Sport 18.11.2005 22:21
Orkuveita Reykjavíkur fær vottun umhverfisstjórnunarkerfis Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, afhenti fulltrúum Orkuveitunnar í gær viðurkenningarskjal um vottun umhverfisstjórnunarkerfisins ISO 14001 hjá fyrirtækinu, en það er fyrsta orkufyrirtækið hérlendis sem starfar samkvæmt þessu umhverfisstjórnunarkerfi. Orkuveita Reykjavíkur hefur það að markmiði sínu að nýting auðlinda sé eins nærri því að vera sjálfbær og kostur er og gefur árlega út umhverfisskýrslu með lykiltölum um atriði sem tengjast umhverfismálum. Innlent 18.11.2005 21:47
Kjarnavopn á leiðinni? Íranar eru komnir skrefi nær því að framleiða auðgað úran, sem hægt er að nota til framleiðslu kjarnorkuvopna. Yfirvöld í Íran virðast kæra sig kollótt um þrýsting heimsbyggðarinnar, og segjast nú enn nær auðgun úrans en áður. Erlent 18.11.2005 20:00
Lundúnabúar óttast ekki að taka neðanjarðarlestir Yfirmaður lögreglunnar í London segir aðeins tímaspursmál hvenær hryðjuverkaárásir verði gerðar aftur í London. Þrátt yfirlýsingar eins og þessa óttast Lundúnarbúar ekki hryðjuverk. Erlent 18.11.2005 00:16
Greiddu fyrir Brim með leigu veiðiheimilda Kaupin Guðmundar Kristjánsson útgerðarmanns á útgerðarfélaginu Brimi í ársbyrjun 2004 voru fjármögnuð með því að leigja og selja burt veiðiheimildir í sameign þjóðarinnar segir Jóhann Ársælsson, þingmaður Samfylkingar. Innlent 18.11.2005 21:20
Nokkuð greiðfært um Alþingi í hjólastól Aðgengi fatlaðra um Alþingishúsið er ótrúlega gott, þótt enn megi bæta um betur, segir eini þingmaðurinn sem er í hjólastól. Innlent 18.11.2005 19:17
Íbúasamtök vilja Sundabraut á öðrum stað Íbúasamtök Grafarvogs og Laugardals hafa gagnrýnt borgaryfirvöld harðlega fyrir skort á samráði við íbúa um málefni Sundabrautar og fyrir að setja íbúum afarkosti um skipulag. Gagnrýni íbúa kemur formanni skipulagsnefndar borgarinnar á óvart, samráð hafi verið haft og enn liggi engin ákvörðun fyrir. Innlent 18.11.2005 19:57
Aukinn alheimsáhugi á dularfullri starfsemi CIA Athygli umheimsins beinist í sífellt vaxandi mæli að dularfullri starfsemi CIA. Engin svör berast hins vegar frá bandarískum stjórnvöldum. Innlent 18.11.2005 20:07
KR í úrslitin KR-ingar lögðu Fjölni 87-80 í fyrri undanúrslitaleik Powerade-bikarsins í körfubolta í Laugardalshöllinni í kvöld og spila því til úrslita á morgun. Seinni leikurinn er viðureign Keflavíkur og Njarðvíkur, en sá leikur hefst nú klukkan 20:30. Sport 18.11.2005 20:26
Kvenfélög selja handsaumaðar dúkkur Kvenfélög um land allt hafa handsaumað átta hundruð dúkkur sem gleðja eiga börn á Íslandi og í Gíneu-Bissá sem er eitt fátækasta ríki á jörðu. Dúkkurnar eiga ekki bara að gleðja börn þessa fátæka lands heldur einnig hjálpa þeim að brjótast til mennta. Innlent 18.11.2005 19:10
Stærsta orðabók Íslandssögunnar komin út Stóra orðabókin, tímamótaverk í útgáfu orðabóka, hefur litið dagsins ljós. Bókin veitir einstaka leiðsögn um orðaval í ræðu og riti og gefur jafnframt skýra mynd af íslenskum orðaforða og innra samhengi. Innlent 18.11.2005 19:04
Tvö Íslandsmet féllu í dag Íslandsmótið í sundi stendur nú sem hæst í Sundhöllinni í Laugardal og eru tvö Íslandsmet þegar fallin. Örn Arnarson úr SH bætti metið í 50 metra flugsundi um 9/100 úr sekúndu þegar hann kom í mark á 24 sekúndum sléttum. Þá bætti Jakob Jóhann Sveinsson metið í 50 metra bringusundi um 1/10 úr sekúndu þegar hann synti á 28,37 sekúndum. Sport 18.11.2005 17:53
Ræningjar drápu lögreglukonu í Bradford Lögreglukona lést og önnur særðist alvarlega þegar þær reyndu að stöðva ræningja í borginni Bradford í Bretlandi í dag. Ekki er ljóst hversu margir ræningjarnir voru en þeir höfðu ráðist inn á ferðaskrifstofu og rænt þaðan peningum. Víðtæk leik fer nú fram að þjófunum og hefur lögregla lokað götum í nágrenni ránsstaðarins af þeim sökum. Erlent 18.11.2005 18:27
Brotist inn í grunnskóla og leikskóla Brotist var inn í grunnskóla og leikskóla á Kjalarnesi síðustu nótt. Einn var handtekinn eftir að hafa brotist inn í Klébergsskóla. Hann hafði kastað stórum steini í gegnum rúðu til að komast inn og fært muni úr skólanum í bíl sinn. Lagt var hald á bílinn og þýfi. Innlent 18.11.2005 18:25
Aðeins helmingur þingmanna mætti til Eyja Ekki voru nema fimmtíu prósent heimtur í heimsókn Suðurkjördæmisþingmanna til Vestmannaeyja því aðeins fimm þingmenn mættu, að því er fram kemur á vef Eyjafrétta. Þeir sem komu eru Kjartan Ólafsson, Hjálmar Árnason, Magnús Þór Hafsteinsson, Lúðvík Bergvinsson og Guðjón Hjörleifsson. Innlent 18.11.2005 18:01