Fréttir
ÍBV lagði Selfoss í Eyjum Eyjamenn unnu góðan sigur á Selfyssingum í fyrsta leik dagsins í DHL-deild karla í dag 28-24, eftir að hafa leitt í hálfleik 15-13. Mladen Casic skoraði 12 mörk fyrir Eyjamenn, en Ramunas Mikalonis og Vladimir Djuric skoruðu 6 hvor fyrir Selfoss. Sport 3.12.2005 17:46
Best borinn til grafar í dag Norður-írska knattspyrnugoðið George Best var borinn til grafar í heimalandi sínu í dag í viðurvist tugþúsunda aðdáenda og aðstandenda, sem veittu honum virðingu sína í hinsta sinn. Best var jarðsettur í austurhluta Belfast, nánar tiltekið í Roselawn kirkjugarðinum. Sport 3.12.2005 17:22
Verkefnið Atvinna með vinnu hlaut Múrbrjótinn í ár Alþjóðadagur fatlaðra er í dag. Af því tilefni afhentu Landssamtökin Þroskhjálp þremur aðilum Múrbrjóta. Múrbrjótur er viðurkenning sem samtökin veita aðilum eða verkefnum sem hafa rutt fólki braut með fötlun nýtjar brautir til jafnréttis við aðra í samfélaginu. Innlent 3.12.2005 15:13
Jón Arnór og félagar á toppinn Landsliðsmaðurinn Jón Arnór Stefánsson skoraði 5 stig fyrir lið sitt Napoli á Ítalíu í úrvalsdeildinni þar í landi í gær, þegar það bar sigurorð af Avellino 92-61 og skaust þar með á topp deildarinnar. Sport 3.12.2005 17:10
Bolton sigraði Arsenal Nú er öllum leikjum nema einum lokið í ensku úrvalsdeildinni. Bolton lagði Arsenal 2-0 á heimavelli sínum, þar sem Diagne Faye og Giannakopoulus skoruðu mörk heimamanna. Sport 3.12.2005 16:55
Norskur prins fæddist í nótt Norskur prins fæddist á Ríkissjúkrahúsinu í Osló í nótt. Hákon krónprins brosti að vonum eyrna á milli þegar hann tilkynnti blaðamönnum um fæðingu prinsins í morgun. Hann sagði að móður og barni heilsaðist vel og gat þess einnig að drenguinn hefði verið 52 sentimetrar og 16 merkur. Innlent 3.12.2005 14:44
Doncaster mætir Arsenal í 8-liða úrslitum Í hádeginu í dag var dregið í átta liða úrslit í enska deildarbikarnum, en leikirnir fara fram seinnipartinn í desember. Doncaster hefur slegið út tvö úrvalsdeildarlið á leið sinni í átta liða úrslitin og því verður forvitnilegt að sjá hvernig liðinu vegnar gegn Arsenal. Sport 3.12.2005 15:59
Bolton leiðir gegn Arsenal í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í leikjunum sex sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni og þar ber hæst að Bolton hefur 2-0 forystu gegn Arsenal á heimavelli sínum. Það voru þeir Diagne Faye og Giannakopoulos sem skoruðu fyrir Bolton. Sport 3.12.2005 15:49
Vinnuslys í Kárahnjúkum Tveir menn voru fluttir á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir vinnuslys í Kárahnjúkum í dag. Tvær lestar skullu saman inni í aðgöngum tvö við Kárahnjúka um hálf ellefu leytið í morgun. Innlent 3.12.2005 14:54
Neyðarástand í Jakarta Fulgaflensa hefur breiðst út um alla höfuðborg Indónesíu og heilbrigðisyfirvöld segja neyðarástand yfirvofandi í borginni. Samkvæmt lauslegri athugun heilbrigðisyfirvalda í Jakarta er fjöldi manna smitaður af flensunni. Erlent 3.12.2005 14:54
Þriðja tap Wigan í röð Nýliðar Wigan í ensku úrvalsdeildinni töpuðu þriðja leiknum í röð þegar þeir lágu fyrir Liverpool 3-0. Hinn leggjalangi framherji Liverpool, Peter Crouch, náði loksins að brjóta ísinn og skoraði tvö marka Liverpool. Luis Garcia bætti við þriðja markinu og skaut Liverpool í annað sætið, í það minnsta tímabundið. Sport 3.12.2005 14:41
Fimmti sigur Phoenix í röð Tólf leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Í sjónvarpsleiknum á Sýn tók Phoenix á móti Denver og vann góðan sigur 102-97. Shawn Marion skoraði 22 stig fyrir Phoenix, en Marcus Camby var frábær í liði Denver og skoraði 33 stig og hirti 20 fráköst. Sport 3.12.2005 14:13
Beygur í Bandaríkjamönnum Beygur er í Bandaríkjamönnum eftir að tíu landgönguliðar féllu í sprengjuárás, í Írak. Þetta er mesta mannfall sem orðið hefur, í einni árás, í marga mánuði. Innlent 3.12.2005 13:09
Harry Redknapp hættur hjá Southampton Knattspyrnustjórinn Harry Redknapp hefur látið af störfum hjá Southampton og þykir þetta benda til þess að hann muni fljótlega snúa aftur í stjórastólinn hjá grannaliðinu Portsmouth, sem hann yfirgaf fyrir nokkrum misserum til að taka við Southampton þegar bæði lið voru í úrvalsdeildinni. Sport 3.12.2005 14:09
Belgísk samkynhneigð pör fá að ganga í það heilaga Neðri deild belgíska þingsins hefur samþykkt lög sem veita samkynhneigðum leyfi til að ættleiða börn. Ef lögin verða samþykkt í öldungadeild þingsins verður Belgía þriðja Evrópusambandslandið sem leyfir slíkt, en Svíar og Spánverjar hafa þegar gert það, en þess má geta að fyrir Alþingi liggur fyrir frumvarp sama efnis. Belgar eru þó framar en Íslendingar þegar kemur að löggjöf um hjónaband því samkynhneigðir í Belgíu hafa í tvö ár mátt ganga í það heilaga og er talið að fimm þúsund pör hafi þegar nýtt sér það. Innlent 3.12.2005 13:06
Danskir teiknarar dæmdir til dauða af Pakistönskum trúflokki Einn af stærstu trúflokkum Pakistans hefur dæmt tólf danska teiknara til dauða, og lagt fé til höfuðs þeim. Leyniþjónusta dönsku lögreglunnar hvetur teiknarana til þess að gæta varúðar. Innlent 3.12.2005 13:01
Spurning um trúverðugleika bankans Seðlabankinn tapaði trúverðugleika í gær, segir Greining Íslandsbanka, með of lítilli stýrivaxtahækkun. Bankinn segir að krónan veikist eftir helgi. Innlent 3.12.2005 13:00
Sjírinovskí með eigin ísframleiðslu Rússneski stjórnmálamaðurinn Vladimír Sjírínovskí, sem eitt sinn lýsti því markmiði sínu að gera Ísland að fanganýlendu, reynir nú að vinna hylli kjósenda með nýjum hætti. Hann hefur markaðssett ís með mynd af sér á öllum umbúðum. Erlent 2.12.2005 22:55
Óvissa um næstu skref í Baugsmálinu Hæstiréttur felldi í dag úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að sérstakur saksóknari í Baugsmálinu, hefði ekki ákæruvald í þeim átta ákæruliðum málsins sem eru enn til meðferðar í héraðsdómi. Þetta þýðir þó ekki að skorið hafi verið endanlega úr um hver fari með ákæruvaldið. Innlent 2.12.2005 22:53
Hóta að drepa friðarsinna í gíslingu Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera sýndi í dag nýtt myndband af fjórum friðarsinnum sem rænt var í Írak á dögunum. Þar hótuðu mannræningjarnir að drepa fjórmenninganna ef öllum föngum í haldi Bandaríkjamanna og írakskra stjónvalda yrði ekki sleppt fyrir 8. desember. Erlent 2.12.2005 22:49
Samþykkja lög um ættleiðingu samkynheigðra í Belgíu Neðri deild belgíska þingsins hefur samþykkt lög sem veita samkynhneigðum leyfi til að ættleiða börn. Ef lögin verða samþykkt í öldungadeild þingsins verður Belgía þriðja Evrópusambandslandið sem leyfir slíkt, en Svíar og Spánverjar hafa þegar gert það, en þess má geta að fyrir Alþingi liggur fyrir frumvarp sama efnis. Erlent 2.12.2005 22:56
Phoenix - Denver í beinni á Sýn Það verður mikið um dýrðir fyrir áhugamenn um NBA körfuboltann í nótt, því Sýn verður með beina útsendingu frá leik Phoenix Suns og Denver Nuggets klukkan tvö eftir miðnætti, en þar að auki verður leikur Golden State Warriors og Charlotte Bobcats sýndur í beinni á NBA TV klukkan 03:30. Sport 2.12.2005 21:42
Stjórn Byggðastofnunar gagnrýnir skýrslu Stjórnhátta Stjórn Byggðastofnunar sér ástæðu til að gagnrýna umræðu undanfarna daga um málefni stofnunarinnar. Byggðastofnun segir að vitnað hafi verið til skýrslu sem unnin var af ráðgjafarfyrirtækinu Stjórnháttum ehf. dagsettri í maí 2005. Byggðastofnun segir að í skýrslunni komi fram upplýsingar um útlán og afskriftarreikning útlána sem ekki fá staðist, en hafa farið hátt í umræðunni. Innlent 2.12.2005 20:04
Níutíu milljónir söfnuðust á uppboði í gærkvöldi Um níutíu milljónir króna söfnuðust til góðgerðamála í Gíneu-Bissá í hátíðarkvöldverði í Listasafni Reykjavíkur í gærkvöldi. Svo virðist sem fjölmargir Íslendingar eigi nóg af peningum. Meðal annars var ómálað verk eftir Hallgrím Helgason selt á tuttugu og eina milljón króna á uppboði. Innlent 2.12.2005 18:43
Valur sigraði Þór Leikjum kvöldsins í DHL-deild karla í handbolta er lokið. Valsmenn unnu góðan sigur á Þór frá Akureyri í Laugardalshöllinni 37-32. Baldvin Þorsteinsson, Mohamadi Loutoufi og Elvar Friðriksson skoruðu allir sjö mörk hver fyrir Val, en Aigars Lazdins skoraði níu fyrir Þór og Sindri Haraldsson skoraði átta mörk. Sport 2.12.2005 21:13
Fyrsta andlitságræðsla sögunnar framkvæmd í Frakklandi Læknar í Frakklandi hafa gert fyrstu andlitságræðslu sögunnar. Aðgerðin heppnaðist vel að sögn lækna en hennar var þörf eftir að hundur konunnar beit hana í andlitið þegar hann reyndi að vekja hana eftir að hún reyndi að svipta sig lífi. Innlent 2.12.2005 18:36
Áhrifa stýrivaxta loks farið að gæta Seðlabanki Íslands hækkað í dag stýrivexti um 0,25 prósentur. Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar, segir að svo virðist sem áhrifa stýrivaxtahækkana undanfarið sé loks farið að gæta. Verðbólga hefur hjaðnað undanfarna mánuði, en ekki nóg, að mati bankastjórnar Seðlabankans. Innlent 2.12.2005 20:17
Nýtt stjórnarfrumvarp bannar reykingum hérlendis á veitingastöðum Tóbaksreykingar verða alfarið bannaðar á veitinga- og skemmtistöðum hér á landi samkvæmt nýju stjórnarfrumvarpi. Meginmarkmið laganna er að koma í veg fyrir óbeinar reykingar. Lögin öðlast gildi fyrsta júní 2007. Írskum verti, sem reynsluna hefur, finnst skynsamlegt að Íslendingar gefi sér aðlögunartíma. Innlent 2.12.2005 18:31
Gera þarfir sínar í töskur skólasystkina sinna Einelti hefur tekið á sig heldur ógeðfellda mynd í Hafnarfirði, þar sem unglingar í Víðistaðaskóla gera þarfir sínar í töskur skólasystkina sinna. Innlent 2.12.2005 19:41
Sjúkraliðar boða til verkfalls Félagar í Sjúkraliðafélagi Íslands samþykktu verkfallsboðun í kjaradeilu sinni við launanefnd sveitarfélaga með miklum mun. 127 greiddu atkvæði með verkfallsboðun en fjórir greiddu atkvæði gegn henni. Semjist ekki fyrir 19. desember hefst verkfall þann dag. Innlent 2.12.2005 19:26