Fréttir Konur um 20% gerningsmanna í málum sem tengjast mannsali Alþjóðalögreglan Interpol hefur tekið saman upplýsingar um 503 mannsalsmál á árunum 2003 til 2005. Málin tengjast verslun með 2.724 konur og ungar stúlkur frá Austur-Evrópu. Erlent 14.12.2005 07:59 Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést í umferðarslysi í Svalbarðsstrandarhreppi á mánudagsmorguninn hét Sigurður Arnar Róbertsson, fæddur árið 1967 í Reykjavík. Hann var búsettur að Laxagötu 6 á Akureyri. Sigurður lætur eftir sig þrjú börn. Innlent 14.12.2005 08:33 Fjögurra klukkustunda gjaldfrjáls leikskólavist Öll börn á Seyðisfirði fá fjögurra klukkustunda gjaldfrjálsa leikskólavist frá og með áramótum. Bæjarstjórn ákvað á fundi sínum í gær að bjóða dagfrjálsan leikskóla hálfan daginn fyrir börn á aldrinum eins til fjögurra ára en þetta stendur fimm ára börnum þegar til boða. Innlent 14.12.2005 08:07 Erlend fiskiskip að veiðum í íslenskri lögsögu? Landhelgisgæslan hefur rökstuddan grun um að erlend fiskiskip hafi leikið það undanfarnar vikur og mánuði að slökkva á fjareftirlitsbúnaði sínum að næturlagi, laumast allt að 20 sjómílur inn í íslensku fiskveiðilögsöguna og stundað þar veiðar. Innlent 14.12.2005 08:03 Enn hálkublettir víða um land Innlent 14.12.2005 07:54
Konur um 20% gerningsmanna í málum sem tengjast mannsali Alþjóðalögreglan Interpol hefur tekið saman upplýsingar um 503 mannsalsmál á árunum 2003 til 2005. Málin tengjast verslun með 2.724 konur og ungar stúlkur frá Austur-Evrópu. Erlent 14.12.2005 07:59
Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést í umferðarslysi í Svalbarðsstrandarhreppi á mánudagsmorguninn hét Sigurður Arnar Róbertsson, fæddur árið 1967 í Reykjavík. Hann var búsettur að Laxagötu 6 á Akureyri. Sigurður lætur eftir sig þrjú börn. Innlent 14.12.2005 08:33
Fjögurra klukkustunda gjaldfrjáls leikskólavist Öll börn á Seyðisfirði fá fjögurra klukkustunda gjaldfrjálsa leikskólavist frá og með áramótum. Bæjarstjórn ákvað á fundi sínum í gær að bjóða dagfrjálsan leikskóla hálfan daginn fyrir börn á aldrinum eins til fjögurra ára en þetta stendur fimm ára börnum þegar til boða. Innlent 14.12.2005 08:07
Erlend fiskiskip að veiðum í íslenskri lögsögu? Landhelgisgæslan hefur rökstuddan grun um að erlend fiskiskip hafi leikið það undanfarnar vikur og mánuði að slökkva á fjareftirlitsbúnaði sínum að næturlagi, laumast allt að 20 sjómílur inn í íslensku fiskveiðilögsöguna og stundað þar veiðar. Innlent 14.12.2005 08:03
Nýjasta stöðutákn ríkra Kínverja er mikill barnafjöldi Nýjasta stöðutákn ríkra Kínverja er ekki glæsivillur eða lúxusbílar, heldur mikill barnafjöldi. Kínverjar mega ekki eignast fleiri en eitt barn samkvæmt ákvörðun stjórnvalda vegna fólksfjölgunarvandans og vegna þess hversu mikill kostnaður því fylgir fyrir þjóðfélagið. Erlent 14.12.2005 07:43
Norskur þungarokkari dæmdur í 42 daga fangelsi fyrir að ógna konu með spjóti Norskur þungarokkari var nýlega dæmdur í 42 daga fangelsi fyrir ofurölvun og að ógna nágranna sínum með spjóti. Atvikið átti sér stað í Þrándheimi í maí síðastliðnum og var nágranni mannsins, ung kona, að læra fyrir próf. Erlent 14.12.2005 07:30
Telur að HB Grandi komi aftur inn í Úrvalsvísitöluna HB Grandi er ekki lengur í hópi fimmtán stærstu og virkustu fyrirtækja landsins. Um áramót verður fyrirtækið síðasta sjávarútvegsfyrirtækið til að falla úr úrvalsvísitölunni. Sérfræðingur hjá Greiningardeild KB banka telur að HB Grandi komi aftur inn í úrvalsvísitöluna á miðju næsta ári. Innlent 14.12.2005 00:32
Fiskur heldur fólki ungu Fiskneysla heldur fólki ungu og dregur úr hrörnun heilastarfseminnar þegar árin færast yfir. Þannig hljóma niðurstöður bandarískrar rannsóknar á heilastarfsemi eldri borgara. Innlent 13.12.2005 22:32
Fá fría leikskólavist hálfan daginn Öll börn á Seyðisfirði fá fjögurra klukkustunda gjaldfrjálsa leikskólavist frá og með áramótum. Bæjarstjórn ákvað á fundi sínum í gær að bjóða dagfrjálsan leikskóla hálfan daginn fyrir börn á aldrinum eins til fjögurra ára en þetta stendur fimm ára börnum þegar til boða. Innlent 13.12.2005 22:44
Öll börn fái fjóra tíma gjaldfrjáls á leikskóla Öll börn á Seyðisfirði frá eins árs til fimm ára aldurs eiga að fá fjögurra klukkustunda ókeypis dagvistun á leikskólum samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Seyðisfjarðar í dag. Innlent 13.12.2005 21:42
Páfagarður harmar aftöku Stanley W. Tookie Páfagarður harmaði í dag að morðinginn Stanley Tookie Williams skyldi hafa verið tekinn af lífi í Bandaríkjunum. Fjölmargir aðrir hafa fordæmt aftökuna, en Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri í Kaliforníu, neitaði að náða Tookie. Innlent 13.12.2005 21:48
Hundrað prósenta verðmunur Það munar allt að hundrað prósentum á verði nýrra bóka milli verslana samkvæmt verðkönnun Alþýðusambands Íslands og algengt er að fimmtíu prósentum eða meira muni á hæsta og lægsta verði. Innlent 13.12.2005 21:34
Athugun á flutningi olíubirgðastöðvar hefur dregist Samþykkt var í borgarstjórn fyrir um ári að starfshópur færi í að athuga með flutning olíubirgðastöðvarinnar í Örfirisey. Sú vinna hefur dregist um marga mánuði en hópurinn fer á fund með forsvarsmönnum olíufélaganna í lok vikunnar. Innlent 13.12.2005 21:57
Sjaldgæft að kvikni í bifreiðum í árekstri Afar sjaldgæft er að eldur komi upp í bílum eftir árekstra eða veltur, að sögn framkvæmdastjóra Rannsóknarnefndar umferðaslysa, en í gær kviknaði í bifreið í banaslysinu í austanverðum Eyjafirði. Innlent 13.12.2005 21:35
Vilja aðgang að heilsufarsupplýsingum sínum á netinu Rúmlega níu af hverjum tíu telja sig eiga að hafa aðgang að eigin heilsufarsupplýsingum á Netinu, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar frá Háskóla Íslands. Jafnmargir telja að forráðamenn eigi að hafa slíkan aðgang að upplýsingum um börn sín. Innlent 13.12.2005 21:27
17 % færri umferðaslys það sem af er þessu ári en á sama tíma í fyrra. 19 manns hafa látist í bílslysum það sem af er árinu. Samkvæmt Einari Magnúsi Magnússyni, upplýsingafulltrúa Umferðarstofu, hefur almennum slysum þó fækkað um 17% frá því í fyrra, sé miðað við fyrstu níu mánuði áranna. Innlent 13.12.2005 22:23
Gripinn með nokkur kíló af hassi í Leifsstöð Karlmaður situr í gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið tekinn með nokkur kíló af hassi í fórum sínum í Leifsstöð. Þetta er mesta magn af hassi sem tekið hefur verið á einum manni það sem af er árinu. Innlent 13.12.2005 21:43
Eldar slokknaðir í olíubirgðastöðinni í Buncefield Slökkt hefur verið í öllum 20 eldsneytistönkum í Buncefield olíubirgðastöðinni og búast slökkviliðsmenn við að ljúka slökkvistarfi í kvöld. Raddir eru uppi um að slökkvilið staðarins hafi ekki verið nægilega undirbúið fyrir bruna af þessari stærðargráu og mun það líklega vera rannsakað nánar. Erlent 13.12.2005 22:06
Lést í umferðarslysi í Svalbarðstrandarhreppi Maðurinn sem lést í umferðarslysi í Svalbarðsstrandarhreppi í gærrmorgun hét Sigurður Arnar Róbertsson, fæddur árið 1967 í Reykjavík. Hann var búsettur að Laxagötu 6 á Akureyri. Sigurður lætur eftir sig þrjú börn. Innlent 13.12.2005 22:03
Fornminjar fundust við Útskála í Garði Fornleifar frá lokum víkingaaldar fundust við jarðrask vegna framkvæmda að Útskálum í Garði í gær. Björgunaruppgröftur fornleifafræðinga er hafinn því að ekki stendur til að hætta við framkvæmdirnar, þótt mannvistarleifarnar séu mjög fornar. Innlent 13.12.2005 21:24
Seld til útlanda fyrir metfé JPV útgáfa hefur selt útgáfuréttinn að bók Árna Þórarinssonar Tíma nornarinnar til Þýskalands fyrir tveggja og hálfrar milljóna króna fyrirframgreiðslu. Jóhann Páll Valdimarsson útgefandi segir þetta líklega hæstu fyrirframgreiðslu sem fengist hefur fyrir íslenska bók í útlöndum. Innlent 13.12.2005 21:33
Auðlindafrumvarp ráðherra þvert á niðurstöður nefndar Frumvarp iðnaðarráðherra um rannsóknir og nýtingu á auðlindum jarðar gengur þvert á niðurstöður auðlindanefndar, sem Davíð Oddsson skipaði á sínum tíma. Meginniðurstöður þeirrar nefndar voru að jafnræði ætti að ríkja við úthlutun og að greiða þyrfti gjald fyrir afnotin. Innlent 13.12.2005 21:39
Undirbúningur fyrir þingkosningar í Palestínu stöðvaður Yfirkjörstjórn Palestínu hefur stöðvað allan undirbúning fyrir þingkosningarnar í janúar vegna árása á kosningaskrifstofur. Það eru Hamas-liðar sem gera árásirnar. Innlent 13.12.2005 21:31
Jónas hyggst ekki segja af sér Jónas Garðarson ætlar ekki að segja af sér formennsku í Sjómannafélagi Reykjavíkur. Lögregla komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði verið undir áhrifum áfengis við stýri skemmtibátsins Hörpu þegar hann sökk á Viðeyjarsundi og tvennt lést. Jónas segist hafa ýmislegt að athuga við rannsókn lögreglunnar en vildi ekki tjá sig frekar fyrr en og ef ákæra yrði gefin út. Innlent 13.12.2005 21:27
Lögregla fann stolinn jeppa og hluti úr öðrum Lögreglan á Selfossi fann á dögunum Nissan Patrol jeppa sem stolið hafði verið í Njarðvík í byrjun nóvember. Eftir ábendingu fannst jeppinn í bílskúr í bænum og í ljós kom að maður í Þorlákshöfn leigði skúrinn. Sá var handtekinn og færður í fangageymslur. Í jeppanum fundust hlutir sem tengdust öðrum Partrol-jeppa sem stolið var í Reykjavík í síðustu viku og fannst strípaður við Rauðavatn. Innlent 13.12.2005 21:23
Ærumeiðandi skilaboð á garðvegg fyrrverandi forstjóra Skeljungs Þú ert mesti þjófur Íslands! Þessi orð úðaði spellvirki á garðvegg hjónanna Kristins Björnssonar, fyrrverandi forstjóra Skeljungs, og Sólveigar Pétursdóttur alþingismanns, við Fjólugötu. Lögreglunni var tilkynnt um spellvirkið rétt fyrir klukkan tvö í dag og í þann mund er fréttamann bar að garði var vinur þeirra hjóna í óða önn að mála yfir veggjakrotið. Hjónin eru stödd í útlöndum. Lögreglan leitar nú vísbendinga um hver hafi staðið að þessu skemmdarverki. Innlent 13.12.2005 21:19
Grant Hill væntanlega með Orlando í nótt Framherjinn Grant Hill leikur að öllum líkindum sinn fyrsta leik á tímabilinu með Orlando Magic í kvöld þegar liðið sækir New York heim. Hill hefur verið frá keppni síðan í haust vegna kviðslits og þurfti í aðgerð vegna þessa í endaðan október. Þetta eru góð tíðindi fyrir Orlando liðið, því flestir lykilmanna liðsins hafa misst úr leiki í vetur vegna meiðsla og gengið því verið brösótt. Sport 13.12.2005 20:14
Kári skoraði fyrir Djurgarden Landsliðsmaðurinn Kári Árnason var á skotskónum fyrir lið sitt Djurgarden í kvöld, þegar það lagði Álaborg frá Danmörku í Skandinavíudeildinni 2-1. Kári skoraði síðara mark liðsins, sem er efst í sínum riðli í deildinni. Sport 13.12.2005 20:24
Býðst til að koma Mourinho til varnar Paul Jewell, stjóri Wigan, ætlar ekki að erfa það við kollega sinn Jose Mourinho hjá Chelsea þó hann hafi blásið út í fjölmiðlum eftir leik liðanna á dögunum, þar sem Mourinho kallaði einn leikmanna Wigan svindlara og á yfir höfði sér stóra sekt frá knattspyrnusambandinu fyrir vikið. Sport 13.12.2005 19:47