Fréttir

Fréttamynd

Sjö teknir við ölvunarakstur

Sjö voru teknir grunaðir um ölvun við akstur í Reykjavík í nótt. Að öðru leiti var nóttin hefðbundin hjá lögreglunni og gistu nokkrir fangageymslur. Engin innbrot hafa verið tilkynnt í höfuðborginni enn sem komið er.

Innlent
Fréttamynd

Grannt fylgst með skírninni í Ástralíu

Það var ekki einungis í Danmörku þar sem fólk gerði sér glaðan dag í tilefni skírnar litla prinsins, sonar Friðriks krónsprins og Mary Donaldson. Hinum megin á hnettinum virtist hátíðarstemningin litlu síðri.

Erlent
Fréttamynd

Seinni leikurinn gegn Frökkum í dag

Tveir handboltaleikir verða háðir á Ásvöllum í dag þar sem boðið verður upp á báða leikina á verði eins. Kl.14:00 hefst leikur Hauka og ÍBV í DHL deild kvenna og kl.16:15 hefst seinni leikur Íslendinga og Frakka.

Sport
Fréttamynd

Skírður Kristján Valdimar Hinrik Jóhann

Danski ríkisarfinn, sonur Friðriks krónprins og konu hans Mary Donaldson, var skírður nú fyrir stundu og hlaut nafnið Christian Valdemar Henri John eða Kristján Valdimar Hinrik Jóhann eins og það myndi kallast upp á íslensku. Mary hélt á barni þeirra hjóna undir skírn.

Erlent
Fréttamynd

Parker sló persónulegt met

38 stig frá Kobe Bryant dugðu ekki fyrir Los Angles Lakers sem töpuðu fyrir Phoenix Suns í NBA körfuboltanum í nótt, 106-93. Þetta var sjötti tapleikur Lakers í röð fyrir Phoenix. Tony Parker settti persónulegt stigamet þegar hann skoraði 38 stig fyrir San Antonio Spurs sem unnu 101-94 sigur á Miami Heat.

Sport
Fréttamynd

Fimmtán í framboði

Fimmtán taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar en kjörstaðir opnuðu klukkan níu. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri gefur einn kost á sér í fyrsta sætið en fjögur keppa um annað sætið á listanum.

Innlent
Fréttamynd

Kosið um sameiningu fjögurra sveitarfélaga

Íbúar Húsavíkur, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps kjósa í dag um sameiningu sveitarfélaganna. Íbúar þessara fjögurra sveitarfélaga samþykktu sameiningu sjö sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum síðasta haust en þá var sameiningu hafnað í þremur sveitarfélögum og því féll tillagan.

Innlent
Fréttamynd

Hálka um allt land

Ökumenn um allt land eru varaðir við hálku eða hálkublettum á vegum úti. Vegagerðin varar sérstaklega við því að flughált er í uppsveitum Árnessýslu, um Bröttubrekku, á öllum Vestfjörðum og í nágrenni hvort tveggja Sauðárkróks og Kirkjubæjarklausturs.

Innlent
Fréttamynd

Akureyringar vilja Hagkaup í stað knattspyrnuvallar

Drjúgur meirihluti Akureyringa vill leggja niður Akureyrarvöll, aðal knattspyrnuvöll bæjarins. Ríflega helmingi bæjarbúa líst vel á að þar rísi Hagkaupsverslun og þorri þeirra vill að hluti svæðisins fari undir almenningsgarð.

Innlent
Fréttamynd

Fækkar plánetunum um eina?

Reikistjörnur sólkerfisins eru níu, eða svo var að minnsta kosti talið. Leiðangur bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA alla leið til Plútó gæti hins vegar breytt skilningi á plánetunum og jafnvel orðið til þess að þeim fækki um eina.

Erlent
Fréttamynd

Krefjast þess að gögnin verði gerð opinber

Eftirlitsstofnun EFTA aflétti í dag trúnaði af skjölum sem varða umfjöllun stofnunarinnar um frumvarp sem menntamálaráðherra lagið fram um ríkisútvarpið á vorþingi 2005. Stjórnarandstaðan krafðist þess að gögnin yrðu gerð opinber.

Innlent
Fréttamynd

Vill sjá skólabúninga víðar

Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra og formaður fjölskyldunefndar, er hlynntur því að skólabúningar verði teknir upp hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

53 fórust í rútuslysi í Kasmír-héraði

Að minnsta kosti fimmtíu og þrír biðu bana þegar rúta fór út af fjallvegi í Kasmír-héraði í dag. Bílstjóri rútunnar var að taka krappa beygju í fjalllendi nærri bænum Sainganji í indverska hluta Kasmírs þegar hann missti stjórn á rútunni, með þeim afleiðingum að hún hrapaði um 120 metra niður í gljúfur.

Erlent
Fréttamynd

Fá bílastæði ráðgerð við nýja stúdentagarða

Háskólastúdentar, sem vilja búa á nýjum stúdentagörðum sem eru að rísa í miðborg Reykjavíkur, eiga að taka strætó í skólann. Það er að minnsta kosti vilji borgaryfirvalda, sem gera ráð fyrir fáum, sem engum, bílastæðum við nýju stúdentagarðana. Þeir sem eiga bíl verða að leggja í bílastæðahúsum og greiða fyrir það fullu verði.

Innlent
Fréttamynd

Úrskurður Kjaradóms felldur úr gildi

Alþingi samþykkti í dag frumvarp til laga sem fellir úr gildi úrskurð Kjaradóms frá 19. desember síðastliðnum um launahækkanir til æðstu stjórnenda ríkisins. Stjórnarandstaðan stóð gegn frumvarpinu og vildi fara aðra leið. Fulltrúar hennar telja að frumvarpið geti brotið í bága við stjórnarskrá.

Innlent
Fréttamynd

Mannæta í Svíþjóð

Morð, mannát og blóðdrykkja er á meðal þess sem 29 ára gamall geðsjúkur Svíi er sakaður um að hafa stundað. Hann hefur viðurkennt að hafa banað tveimur konum til að öðlast krafta þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Lögregla og sýslumaður banna Klámkvöld á Traffic

Lögregla og sýslumaður í Reykjanesbæ hafa bannað skemmtistaðnum Traffic að halda klámkvöld sem vera átti annað kvöld. Skipuleggjendur kvöldsins harma bannið og segja ekkert ólöglegt eiga sér stað á klámkvöldinu. Þeir eru þó ekki af baki dottnir og hafa í hyggju að halda samskonar kvöld á öðrum skemmtistað í bænum.

Innlent
Fréttamynd

Aldrei fleiri ferðamenn til landsins

Aldrei hafa jafn margir ferðamenn komið til landsins á einu ári og í fyrra eða tæplega 370.000 ferðamenn. Ferðamönnum til landsins hefur fjölgað jafnt og þétt hin síðari ár en á síðustu þremur árum hefur ferðamönnum fjölgað um 30%.

Innlent
Fréttamynd

Lögregla skaut á mannfjölda í Addis Ababa

Lögreglan í Addis Ababa í Eþíópíu skaut að fólki sem safnast hafði saman í borginni í dag í tilefni af degi heilags Mikjáls. Að sögn vitna höfðu einhverjir tekið upp á því að loka götum og ögra lögreglu og sinnt í engu tilmælum lögreglumanna, sem varð til þess að þeir gripu til vopna sinna.

Erlent
Fréttamynd

Kjaradómslögin samþykkt

Kjaradómslögin voru samþykkt á Alþingi fyrir stundu. Tuttugu og sex greiddu atkvæði með lögunum en sautján sátu hjá. Með lögunum er úrskurður Kjaradóms frá því rétt fyrir áramót felldur úr gildi og laun þingmanna þannig hækkuð um 2,5 prósent, en ekki 8 prósent eins og Kjaradómur ákvað.

Innlent
Fréttamynd

Fíkniefnaneytandi dæmdur í 12 mánaða fangelsi

24 ára karlmaður var í dag dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þar af tíu mánuði skilorðsbundna, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa í vörslu sinni rúmlega 300 grömm af hassi, eignaspjöll á umferðarljósum og þjófnað úr lyfjakistu í báti. Maðurinn hefur áður gerst brotlegur við lög og braut fyrra skilorð. Hann hefur átt við áfengis- og fíkniefnavanda að stríða.

Innlent
Fréttamynd

Um hundrað leikskólakennarar minna sig

Um eitt hundrað leikskólakennarar voru mættir við upphaf launamálaráðstefnu sveitarfélaganna um klukkan eitt til að leggja áherslu á kröfur sínar um bætt launakjör.

Innlent