Fréttir

Fréttamynd

Veittu styrki til velferðarmála barna

381 þúsund krónur voru veittar til þriggja verkefna sem eiga að hlúa að velferð og hagsmunamálum barna í Hafnarfirði við fyrstu úthlutun úr minningarsjóði hjónanna Helgu Jónasdóttur og Bjarna Snæbjörnssonar læknis í dag.

Innlent
Fréttamynd

Viðgerðir á Þjóðleikhúsi næstar í röðinni

Það myndi kosta 1,6 milljarða króna að gera þær viðgerðir á Þjóðleikhúsinu sem þörf krefur, sagði menntamálaráðherra á Alþingi í dag og setti viðgerðir á Þjóðleikhúsinu efstar á forgangslista þegar kemur að menningarstofnunum.

Innlent
Fréttamynd

Síminn fái greiðslu úr jöfnunarsjóði

Síminn á rétt á greiðslu úr jöfnunarsjóði fjarskipta vegna þeirrar skyldu sem stjórnvöld hafa lagt á fyrirtækið um alþjónustu við alla landsmenn, svo sem að tryggja gagnaflutningsþjónustu allt að 128 Kb á sekúndu.

Innlent
Fréttamynd

Sigurður fær Ásprestakall

Séra Sigurður Jónsson verður sóknarprestur í Ásprestakalli. Valnefnd í prestakallinu ákvað á fundi sínum í gær að legja til við dóms- og kirkjumálaráðherra að hann skipaði Sigurð í embættið.

Innlent
Fréttamynd

Sala jókst hjá McDonald's

Sala jókst hjá McDonald's skyndibitakeðjunni á heimsvísu um 4,7 prósent í síðasta mánuði en sala skyndibita á innanlandsmarkaði í Bandaríkjunum jókst hins vegar um 3,6 prósent. Að sögn forsvarsmanna McDonald's í Bandaríkjunum er ástæða söluaukningarinnar ný kjúklingasamloka sem notið hefur vinsælda, fleiri réttir á morgunverðarmatseðli og lengri afgreiðslutími hjá útibúum skyndibitakeðjunnar í Bandaríkjunum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Íranar gefa ekkert eftir

Íranar gefa ekkert eftir á fundi Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar sem nú fer fram í Vín í Austurríki. Bandaríkin og Evrópusambandið hafa þrýst mjög á Írana um að láta af áformum sínum um auðgun úrans.

Erlent
Fréttamynd

Fuglaflensan meiri ógn en alnæmi

Banvænn stofn fuglaflensunnar er meiri ógn við mannkynið en alnæmi og allir aðrir smitsjúkdómar sem komið hafa upp. Þetta er mat sérfræðinga við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina.

Erlent
Fréttamynd

3 drengir létust í eldsvoða í Færeyjum

Þrír drengir, 6, 9 og 10 ára, fórust í eldsvoða í Þórshöfn í Færeyjum í gærkvöldi. Eldur kviknaði í parhúsi við Hrafnseyrarveg í bænum en þegar slökkvilið kom á vettvang voru drengirnir allir látnir úr reykeitrun. Tveir þeirra voru bræður en sá þriðji var gestur hjá þeim. Húsráðendur höfðu brugðið sér í kvöldkaffi hjá nágrönnum þegar eldurinn kom upp.

Erlent
Fréttamynd

Marel frekar í Slóvakíu en á Íslandi

Frekari uppbygging hátæknifyrirtækisins Marels verður í Slóvakíu en ekki á Íslandi, vegna óviðunandi skilyrða útflutningsfyrirtækja hér á landi, að sögn forstjóra Marels.

Innlent
Fréttamynd

Pólitík réð því ekki að Byko fékk lóð í Garðabæ

Urriðaholt hafnar því með öllu að pólitísk áhrif hafi orðið til þess að Byko fékk lóð í Garðabæ, en ekki Bauhaus. Viðræður við Bauhaus hafi hafist mánuði eftir að ljóst var orðið að Ásdís Halla Bragadóttir myndi taka við forstjórastarfi hjá Byko.

Innlent
Fréttamynd

Krónan veikist

Gengi íslensku krónunnar hefur lækkað um 3% í morgun sem er töluverð breyting á svo skömmum tíma. Telja sérfræðingar að þar valdi að viðskipthallinn hafi reynst meiri en búist var við.

Innlent
Fréttamynd

11 ára stúlku nauðgað í Bretlandi

Bretar eru slegnir óhug eftir að 11 ára stúlku var naugað inni á salerni í matvöruverslun í Lemington Spa í Warwickshire í Bretlandi. Stúlkan var með móður sinni í innkaupaleiðangri fyrir helgi og brá sér á klósettið en þar réðst á hana maður um tvítugt og nauðgaði henni.

Erlent
Fréttamynd

Íranar verða að hætta öllum kjarnorkurannsóknum

Íranar verða að hætta öllum rannsóknum á kjarnorku þegar í stað, eða sæta refsiaðgerðum ella. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Evrópusambandinu, sem lögð verður fyrir alþjóða kjarnorkumála stofnunina.

Erlent
Fréttamynd

Olíuverð lækkaði á helstu mörkuðum

Hráolía lækkaði í verði á helstu mörkuðum í dag. Hráolía, sem afhent verður í næsta mánuði, lækkaði um 18 sent og endaði í 61,40 dollurum á tunnu á mörkuðum í New York í Bandaríkjunum en Brent Norðursjávarolía lækkaði um 8 sent í Lundúnum í Bretlandi og endaði í 61,09 dollara á tunnu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Kært fyrir einkadans í lokuðu rými

Ásgeir Þór Davíðsson, eigandi nektardansstaðarins Goldfinger í Kópavogi, og tvær erlendar dansmeyjar hafa verið ákærðar fyrir að standa fyrir og sýna einkadans í lokuðu rými á staðnum í október í fyrra. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í gær.

Innlent
Fréttamynd

Tveir ökumenn sluppu ómeiddir

Ökumenn tveggja bíla sem ultu seint í gærkvöldi vegn óvæntrar hálku, sluppu ómeiddir en bílarnir eru hins vegar báðir stór skemmdir.

Innlent
Fréttamynd

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttir styrkt um 5 milljónir í 4 ár

Fjárfestingabankinn Straumur-Burðarás og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum skrifuðu í morgun undir samning um árlegn 5 milljóna króna styrk til næstu 4 ára. Fénu verður varið til þeirra verkefna sem stofnunin sinnir og til að efla hana með markvissum hætti.

Innlent
Fréttamynd

Bankastjórn Seðlabanka Japans fundar

Fundur bankastjórnar Seðlabanka Japans hófst í dag. Fjármálasérfræðingar fylgjast grannt með fundinum, sem stendur yfir í tvo daga, en búist er við nokkrum breytingum á peningastefnu bankans. Hins vegar er ekki búist við hækkun stýrivaxta í Japan á næstunni líkt og áður var talið en vextirnir hafa haldist óbreyttir í fimm ár.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Mun fleiri fá ríkisborgararétt árlega nú en fyrir 15 árum

Hagstofa Íslands birtir nú í fyrsta skipti á vef sínum upplýsingar um veitingu íslensks ríkisfangs. Tölurnar byggja á upplýsingum úr þjóðskrá og sýna fjölda einstaklinga sem fengu íslenskt ríkisfang samkvæmt lögum á árunum 1991 til 2005. Einstaklingum sem hafa fengið íslenskt ríkisfang hefur fjölgað mjög ört á síðustu árum. Árið 2005 voru þeir 726 samborið við 161 árið 1991.

Innlent
Fréttamynd

Árás á bílalest

Einn maður lést í árás á bílalest innanríkisráðherra Íraks nú í morgunsárið. Ráðherrann sjálfur var ekki á staðnum þegar árásin átti sér stað. 18 lík fundust í sendibifreið í vesturhluta Baghdad í nótt. Búið var að binda fyrir augu mannanna 18 og bendir flest til að fjölda aftaka hafi átt sér stað.

Erlent
Fréttamynd

Hátt í 22 milljónir lítra af áfengi seldir í fyrra

Áfengissala hér á landi jókst um tæp 7% milli áranna 2004 og 2005. Um 5% aukningu er að ræða á hvern íbúa 15 ára og eldri sem er með því mesta sem verið hefur á síðustu árum. Seldir voru hátt í 22 milljón lítrar af áfengi á síðasta ári samanborið við rúma 20 árið áður.

Innlent
Fréttamynd

Kæran jafnast á við skopmyndabirtingu

Forstöðumaður Krossins segir að kæra Samtakanna 78 gegn sér jafnist á við lætin útaf birtingu Jótlandspóstsins á skopmyndum af Múhammeð spámanni. Hann áréttar skoðun sína um að samkynhneigðir eigi ekki að ala upp börn.

Innlent
Fréttamynd

Óánægja með nýtt vaktakerfi

Trúnaðarmaður vagnstjóra hjá Strætó lýsir óánægju með nýtt vaktakerfi sem Ásgeir Eiríksson, forstjóri fyrirtækisins kynnti í gær. Vaktakerfið tekur að óbreyttu gildi 9. apríl.

Innlent
Fréttamynd

Nefnd um olíuleit

Olíuleit á íslenska hluta Jan Myen hryggisns, norðaustur af landinu, gæti hafist strax á næsta ári, samkvæmt áformum ríkisstjórnarinnar. Hún ákvað í gær að skipa nefnd ráðuneytisstjóra þeirra ráðuneyta, sem málið varðar.

Innlent
Fréttamynd

Íslensk stjórnvöld ekki staðið við sitt

Íslensk stjórnvöld hafa ekki staðið við þau fyrirheit sem þau gáfu Íslenskri erfðagreiningu og hafa yfirlýsingar þeirra frekar skaðað fyrirtækið en hitt að sögn Kára Stefánssonar, forstjóra fyrirtækisins. Kári Stefánsson ver gestur Þorfinns og Rósu á Fréttavaktinni eftir hádegi í gær. Þar sagði hann velvilja stjórnvalda ekki hafa skilað sér til Íslenskrar erfðagreiningar og frekar skaðað það en hitt.

Innlent
Fréttamynd

Moussaoui hefði geta komið í veg fyrir hryðjuverk

Zacarias Moussaoui vissi um hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 í smáatriðum og hefði því getað komið í veg fyrir dauða tæplega 3000 manna. Þetta segja saksóknarar í máli hans, sem fara fram á að hann verði tekinn af lífi.

Erlent
Fréttamynd

Vatnalög rædd fram á nótt

Stjórnarandstöðunni tókst það ætlunarverk sitt að koma í veg fyrir að annarri umræðu um ný vatnalög iðnaðarráðherra lyki í gær. Umræðan stóð fram á nótt.

Innlent
Fréttamynd

Írak ekki á barmi borgarastyrjaldar

Írak er ekki á barmi borgarastyrjaldar að mati Donalds Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Rumsfeld tjáði sig í gær í fyrsta sinn um ástandið í Írak eftir sprengjuárásina á al-Askari moskuna, sem hratt af stað atburðarrás sem ekki sér fyrir endann á.

Erlent
Fréttamynd

Eþíópískur maður í farbann

Hæstiréttur staðfesti í gær farbann Héraðsdóms yfir eþíópskum manni, sem er ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur barnungum stúlkum.

Innlent