Fréttir

Fréttamynd

Mótmæla vinnubrögðum ríkisins

Blindrafélagið mótmælir vinnubrögðum ríkisins við undirbúning frumvarps um sameiningu Sjónstöðvar Íslands og Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar. Félagsmenn eru afar óhressir með að ekki var haft samráð við hagsmunafélög sem málið varðar. Í kvöld hélt Blindrafélagið félagsfund sem var sá fjölsóttasti í áraraðir. Umræðuefnið var frumvarp ríkisstjórnarinnar um sameiningu Sjónstöðvar Íslands og Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands og sat heilbrigðisráðherra fundinnn.

Innlent
Fréttamynd

Páfagaukur talinn hafa sýkt hjón

Mögulegt er að sýking úr páfagauki hafi orðið til þess að hjón frá Akureyri veiktust alvarlega. Páfagaukaveiki er þekktur sjúkdómur sem hefur valdið fólki bana.

Innlent
Fréttamynd

Öryrki eftir störf á sjúkrahúsi

Flestir fara á sjúkrahús til að fá bót meina sinna, en í tilfelli Hildar Stefánsdóttur, var það á sjúkrahúsi sem veikindi hennar hófust. Landspítalinn verður að greiða Hildi Stefánsdóttur tæpar sjö milljónir króna í bætur vegna heilsutjóns sem hún varð fyrir vegna meðhöndlunar skaðlegra efna þegar hún vann á spítalanum.

Innlent
Fréttamynd

Mikill viðbúnaður en lítil hætta

Slökkvibílar frá öllum stöðvum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru kallaðar að Engihjalla 17 þar sem reykur stóð af svölum á fimmtu hæð fjölbýlishúss. Ekki reyndist þó mikil hætta á ferð því reykurinn var frá grilli sem stóð á svölunum.

Innlent
Fréttamynd

Innbrotum snarfækkar í Kópavogi

Innbrotum í Kópavogsumdæmi fækkaði um 36% milli áranna 2005 og 2006, þjófnuðum fækkaði um 21% og eignaspjöllum um 28,5%, samkvæmt skýrslu sem Lögreglan í Kópavogi hefur gefið út. Smáralindin er vinsælasta skotmark búðarþjófa.

Innlent
Fréttamynd

Ísland er fimmta skuldugasta ríki í heimi

Bankamenn fullyrða að skýrsla verðbréfafyrirtækisins Merrill Lynch sé óvönduð og full af rangfærslum, en skýrslan, ásamt uggvænlegum tölum um viðskiptahalla, hafa þrýst gengi krónunnar niður. Einungis fjögur ríki í heiminum, þar af þrjú í Afríku, skulda nú meira en Íslendingar.

Innlent
Fréttamynd

Deilt um vatnalög

Frumvarp um vatnalög er meingallað og hefur þegar sett störf þingsins úr skorðum, segir forysta stjórnarandstöðunnar, en frumvarpið hefur verið rætt í 25 klukkustundir samtals. Þingmenn stjórnarandstöðu eru æfir vegna ákvörðunar þingforseta um að kalla þingið saman á morgun og laugardag til að ljúka umræðunni.

Innlent
Fréttamynd

Evran á alþingi

Ekki er einhugur innan ríkisstjórnarinnar um hvort skoða eigi aðild að Myntbandalagi Evrópu eins og viðskiptaráðherra vill. Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, vakti máls á evrunni á alþingi í dag en hann segir viðskiptaráðherra hafa bilað á taugum vegna sviptinga í fjármálalífinu.

Innlent
Fréttamynd

Átta mánaða fangelsi fyrir rán

Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann á þrítugsaldri í átta mánaða fangelsi fyrir rán sem hann framdi í félagi við annan mann í verslun tíu-ellefu í Kópavogi í apríl í fyrra. Maðurinn játaði fyrir dómi að hafa ógnað starfsstúlku verslunarinnar með skrúfjárni og skipað henni að opna peningakassanna en hann hafði 35 þúsund krónur upp úr krafsinu.

Innlent
Fréttamynd

Harður árekstur á Húsavík

Harður árekstur á gatnamótum við hafnarsvæðið á Húsavík í dag þar sem ungur maður á svokölluðu mótorkrosshjóli ók framan á pallbíl. Að sögn lögreglunnar á Húsavík virðist sem ökumanni bifhjólsins hafi fipast á gatnamótunum og hann farið yfir á rangan vegarhelming, en hann ók að sögn lögreglu yfir hámarkshraða á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Umsátur við menntaskóla í Frakklandi

Fyrrverandi kennari tók í dag 20 nemendur, kennara og annan mann í gíslingu í menntaskóla í vesturhluta Frakklands. Maðurinn sem er 33 ára er sagður vera vopnaður. Lögreglan hefur umkringt skólann og er nú reynt að semja við manninn um að hleypa gíslunum út úr byggingunni en hann hefur ekki farið fram á neitt ennþá.

Erlent
Fréttamynd

Niðurskurður hjá British Airways

Breska flugfélagið British Airways ætlar á skera niður útgjöld um 450 milljónir punda, 54 milljarða íslenskra króna, á næstu tveimur árum. M.a. er búist við uppsögnum hjá flugfélaginu. Ástæðan fyrir niðurskurðinum er aukin samkeppni frá lággjaldaflugfélögum og spá um hærri eldsneytiskostnað á næstu árum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Stærsta átak til eflingar eldvarnareftirlits í áratugi

Mikil þörf hefur verið fyrir búnað hjá slökkviliðinu undanfarin ár, sérstaklega hvað varðar viðbrögð við mengunarslysum. Úr þessu var bætt í dag með stærsta einstaka átaki til að efla eldvarnir í landinu um áratugaskeið.

Innlent
Fréttamynd

Ungmenni mótmæla í höfuðstöðvum Landsvirkjunar

Nokkrir tugir ungmenna hafa safnast saman í höfuðstöðvum Landsvirkjunar í Austurveri þar sem þeir mótmæla stóriðjustefnu stjórnvalda. Mótmælin eru á vegum sama hóps og stóð fyrir mótmælum í síðustu viku á skrifstofum Alcoa við Suðurlandsbraut, en lögregla var þá kölluð á vettvang og fjarlægði ungmennin.

Innlent
Fréttamynd

Hagnaður Granda minnkar

Hagnaður HB Granda hf. nam 547 milljónum króna á síðasta ári. Þetta er samdráttur um 447 milljónir króna frá 2004 þegar hagnaðurinn nam 994 milljónum króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vilja hjúkrunarheimili í Mosfellsbæ

Siv Friðleifsdóttir Heilbrigðisráðherra veitti viðtöku undirskriftarlista frá Kvenfálagi Lágafellskirkju í Alþingi í morgun. En konurnar vilja að bygging Hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ verði að veruleika. Kvenfélagskonurnar mættu með Salóme Þorkelsdóttur í fararbroddi í alþingi í morgun með undirskriftarlistann, sem Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra veitti móttöku.

Innlent
Fréttamynd

Minni innflutningur í febrúar

Vöruinnflutningur nam 22 milljörðum króna hér á landi í febrúar en það er 3,5 milljörðum krónum minna en í janúar. Um bráðabirgðatölur er að ræða, að því er fram kemur í vefriti fjármálaráðuneytisins. Innflutningur á bílum tók kipp en búist er að hann minnki vegna gengislækkana á síðustu vikum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

ESB kannar möguleika Íslands á evrunni

Embættismenn Evrópusambandsins í Brussel kanna nú hvort Ísland geti tekið upp evruna eða fengið aðild að myntbandalagi Evrópusambandsins án þess að ganga í sambandið.

Innlent
Fréttamynd

Framboð Íslands með stuðning 60 ríkja

Framboð Íslands til Öryggisráðs SÞ hefur þegar fengið skriflega staðfestan stuðning um 60 ríkja af 191 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna. Þetta kom fram í máli utanríkisráðherra hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna í gær. Hann sagði Ísland eiga vísan stuðning ýmissa annarra smáríkja og nefndi þar meðal annars að í Karíbahafinu væru fimmtán til tuttugu eyríki sem líklega myndu greiða Íslandi atkvæði sitt. Hann bætti því þó við að kosningar til alþjóðaembætta færu oft á annan veg en skriflegar stuðningsyfirlýsingar bentu til, enda væru kosningarnar leynilegar.

Innlent
Fréttamynd

Óttast að 30 manns hafi látist

Óttast er að þrjátíu manns hafi farist þegar rúta með um 40 farþega innanborðs fór út af veginum og lenti út í á í Tyrklandi snemma í morgun. Tekist hefur að finna þrettán líkanna en um 30 eru enn fastir í flakinu sem er á kafi í vatni. Björgunarmenn eru enn að störfum en rútan var á leið frá Istanbul, höfuðborg landsins, til borgarinnar Van nærri írönsku landamærunum.

Erlent
Fréttamynd

Sögulegur viðskiptahalli í Bandaríkjunum

Viðskiptahallinn í Bandaríkjunum jókst um 5,3 prósent í janúar og nam 68,5 milljörðum dala í mánuðinum, samkvæmt upplýsingum frá viðskiptaráðuneyti landsins. Þetta er methalli í mánuðinum í sögu Bandaríkjanna en ástæða hans er aukinn innflutningur á eldsneyti, ökutækjum og vínum auk mikils innflutnings á klæðnaði og farsímum frá Kína.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Tók fyrstu skóflustungu án leyfis

Steinunn Valdís Óskarsdóttir Borgarstjóri í Reykjavík tók fyrstu skóflustunguna að stórri viðbyggingu við Egilsshöll án þess þó að byggingaleyfi lægi fyrir framkvæmdunum. Það er fyrirtækið Nýsir sem stendur að þessum framkvæmdum en það hyggst reisa tíu þúsund fermetra nýbyggingu sunnan Egilshallar. Í nýbyggingunni verður fjögurra sala kvikmyndahús í eigu Sambíóanna sem mun rúma allt að 1.000 manns, 36 brauta keilusalur og þemasýning sem ber nafnið "Auga Óðins" en henni verður komið fyrir neðanjarðar.

Innlent
Fréttamynd

Krefjast að teiknurum verði refsað

Mótmælum vegna skopmyndadeilunnar er hvergi nærri lokið. Í gær gengu fjölmargir múslimar fylktu liði í indverska hluta Kasmír og kröfðust þess að teiknurum skopmyndanna yrði refsað. Lögregla, sem fylgdist vakandi með þurfti ekki að grípa til aðgerða, en sumum var heitt í hamsi og eins og svo oft áður varð danski fáninn eldinum að bráð.

Erlent
Fréttamynd

Gagnrýnin bankaskýrsla skekur Ísland

Gagnrýnin bankaskýrsla skekur Ísland, segir danska viðskiptablaðið Børsen í dag, og talar um jarðskjálfta í íslensku fjármálakerfi. Sagt er að fjárfestingarbankinn Merill Lync, hafi kastað grjóti í íslensku fjármálavélina með skýrslu sinni um íslenska bankakerfið.

Innlent
Fréttamynd

Spítali greiði bætur fyrir heilsutjón

Landspítalinn var í dag dæmdur til að greiða fyrrum starfsmanni sínum tæpar sjö milljónir króna í bætur vegna líkamstjóns sem starfsmaðurinn varð fyrir í starfi sínu.

Innlent
Fréttamynd

Samningur um tónlistarhús undirritaður

Borgarráð samþykkti fyrir sitt leyti samning um byggingu tónlistar- og ráðstefnuhús í Reykjavík. Samningurinn verður undirritaður af menntamálaráðherra, borgarstjóra og fleirum í Ráðherrabústaðnum klukkan fimm í dag og verður NFS á staðnum með beina útsendingu.

Innlent
Fréttamynd

Hráolíuverð lækkaði

Hráolíuverð lækkaði á helstu mörkuðum í dag í kjölfar þess að samtök olíuframleiðsluríkja (OPEC) samþykktu á fundi sínum í Vínarborg í gær að halda olíuframleiðslu óbreyttri.

Viðskipti erlent