Fréttir
Margt bogið við kvótaúthlutanir í Sandgerði Smábátaeiganda í Sandgerði finnst margt bogið við kvótaúthlutanir bæjarstjórnarinnar. Bæjarstjóri vísar öllum ásökunum á bug. Innlent 16.3.2006 22:31
Magnus Carlsen sigraði á Glitnismótinu Norska undrabarnið Magnus Carlsen gerði sér lítið fyrir og sigraði á Glitnismótinu í hraðskák sem lauk fyrir stundu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Magnús lagði Hannes Hlífar Stefánsson í úrslitum tvö núll en Hannes Hlífar rann út á tíma í seinni skákinni. Innlent 16.3.2006 21:06
Hannes Hlífar í undanúrslit á Glitnismótinu Glitnismótinu í hraðskák, sem nú fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur er senn að ljúka en eftir eru tvær skákir í átta manna úrslitum. Hannes Hlífar Stefánsson komst í undanúrslit fyrir nokkrum mínútum þegar hann lagði Tatíönu Vasilevich í spennandi viðureign þá er heimsmeistarinn í hraðskák, Indverjinn Vishy Anand, einnig kominn í undanúrslit. Innlent 16.3.2006 19:26
Ekki þörf á sýnilegum loftvörnum Íslendingar þurfa ekki sýnilegar loftvarnir, segir forstöðumaður sænsku friðarrannsókna- stofnunarinnar SIPRI. Íslendingar verði að sætta sig við að engin þjóð muni senda hingað tæki og mannafla í líkingu við þann sem verið hefur í Keflavík. Erlent 16.3.2006 18:09
Nýtt mannréttindaráð samþykkt Nýtt mannréttindaráð Sameinuðu Þjóðanna hefur verið samþykkt og kemur í stað gömlu mannréttindanefndarinnar. Leyfilegt verður að reka aðildarríki úr ráðinu ef þau brjóta mannréttindi. Erlent 16.3.2006 17:42
Ekki hægt að fylla skarð þyrlusveitar hersins að fullu Ein af fimm þyrlum varnarliðsins er tiltæk með skömmum fyrirvara sem stendur. Dómsmálaráðherra segir ekki hægt að fylla skarð þyrlusveitar hersins að öllu leyti. Innlent 16.3.2006 18:20
Athuga þarf varnarsamstarf við nágrannaþjóðir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir brottflutning hersins ekki koma á óvart heldur sé nýtt í málinu hvaða tími sé til stefnu. Hann vill gera samninga við aðrar þjóðir eins og til dæmis Dani, Norðmenn eða Breta samhliða varnarsamningnum. Innlent 16.3.2006 18:10
Vatnalög samþykkt frá Alþingi Vatnalagafrumvarp iðnaðarráðherra, sem mikill styr hefur staðið um síðustu daga, var samþykkt sem lög frá Alþingi á fimmta tímanum í dag með 26 atkvæðum gegn 19. Innlent 16.3.2006 17:15
Fallinn á fyrsta prófi Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í umræðum um varnarsamninginn á Alþingi í dag, að Geir H. Haarde, utanríkisráðherra hefði fallið á fyrsta prófi sínu í embætti. Innlent 16.3.2006 17:06
H5N1 í Danmörku Heilbrigðisyfirvöld í Danmörku hafa staðfest að Músvákur sem fannst dauður í vikunni var smitaður af H5N1 stofni fuglaflensu. Mikill viðbúnaður er nú þar sem hræið fannst. Erlent 16.3.2006 17:01
Umfangsmiklar loftárásir á Samarraborg Bandaríkjaher hóf í dag einhverjar umfangsmestu loftárásir sínar á Írak síðan þeir réðust inn í landið árið 2003. Bandarískra og íraskra hersveitir gera nú loftárásir á felustaði andspyrnumanna í borginni Samarra. Erlent 16.3.2006 16:56
Kemur út sex daga vikunnar í 700-900 þúsund eintökum Dagsbrún stefnir að því að hefja útgáfu fríblaðs í Danmörku á þessu ári. Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, segir að miðað sé við að upplag blaðsins verði 700-900 þúsund eintök og það komi út sex daga vikunnar. Innlent 16.3.2006 16:29
Allianz mótfallið yfirtökutilboði Merck Tryggingafyrirtækið Allianz, sem er stærsti hluthafinn í þýska lyfjafyrirtækinu Schering, sagði í dag að það væri mótfallið yfirtökutilboði samkeppnisaðilans Merck en ætli engu að síður að íhuga það. Þýski lyfjarisinn Merck gerði á mánudag óvinveitt yfirtökutilboð í Schering og nam tilboð fyrirtækisins 77 evrum á hlut. Í heild hljóðaði yfirtökutilboðið upp á 14,6 milljarða evrur. Viðskipti erlent 16.3.2006 16:27
Grísk farsímafyrirtæki höfðu samráð Gríska fjarskiptastofnunin sektaði í dag þrjú stærstu farsímafyrirtæki landsins fyrir að hafa allt frá síðasta ári haft samráð um gjaldskrá smáskilaboða. Sektin sem hvert fyrirtæki verður að greiða nemur einni milljón evra, jafnvirði rúmra 84,4 milljóna íslenskra króna. Viðskipti erlent 16.3.2006 16:00
Glitnir hækkar vexti á húsnæðislánum Glitnir, áður Íslandsbanki, hefur ákveðið að hækka vexti sína á verðtryggðum húsnæðislánum um 0,13%. Breytingin hefur ekki áhrif á kjör þeirra sem þegar hafa tekið húsnæðislán hjá Glitni. Vextir nýrra lána hækka úr 4,35% í 4,48%. KB-banki tilkynnti um hækkun á vöxtum á húsnæðislánum sínum í gær. En vextir lánanna hjá KB-banka eru nú 4,3% en voru áður 4,15%. Innlent 16.3.2006 15:59
Gengið frá kaupum á Strætólóðinni Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, og Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, undirrituðu í dag samning um kaup bankans á byggingarrétt á hluta Strætólóðarinnar við Kirkjusand. Bankinn hyggst nýta lóðina til frekari uppbyggingar fyrirtækisins hér á landi. Glitnir greiðir um einn milljarð króna fyrir bygginarréttinn og fær svæðið afhent í tveimur áföngum, haustið 2006 og haustið 2007. Innlent 16.3.2006 15:32
Hrokafullur stjórnunarstíll Valur Ingimundarson, sérfræðingur í varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna, segir það koma sér á óvart hve mild viðbrögð íslenskra stjórnvalda séu við ákvörðun Bandaríkjamanna að draga stórlega úr umsvifum varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Hann segir Bandaríkjamenn beita hrokafullum stjórnunarstíl. Innlent 16.3.2006 14:51
Hraða þarf viðræðum Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, gerði þingheimi í hádeginu grein fyrir ákvörðun Bandaríkjamanna frá í gær um að draga úr starfsemi varnarliðsins í Keflavík á næstu mánuðum. Hann sagði að hraða þyrfti viðræðum um áframhaldandi samstarf. Formaður Samfylkingarinnar segir viðræður hingað til augljóslega ekki hafa skilað neinu. Innlent 16.3.2006 14:10
Fyrstu skref í átt að útgáfu fríblaðs í Danmörku Dagbrún hefur tekið fyrstu skrefin í átt að stofnun fríblaðs í líkingu við Fréttablaðið í Danmörku með stofnun 365 Media Scandinavia þar í landi. Dagsbrún hefur áður lýst yfir að það hefði uppi áform um útrás á erlenda markaði með áherslu á Norðurlönd og Bretland. Innlent 16.3.2006 14:04
365 Media Scandinavia stofnað Dagsbrún hf. hefur stofnað félagið 365 Media Scandinavia A/S í Danmörku. Í tilkynningu til Kauphallar Íslands segir að stofnun félagsins marki fyrstu skref félagsins í átt að útgáfu fríblaðs í líkingu við Fréttablaðið í Danmörku. Viðskipti innlent 16.3.2006 13:55
Undirbúningsframkvæmdir hafnar Hafnar eru undirbúningsframkvæmdir í Austurhöfn í Reykjavík og gætu nærliggjandi fyrirtæki og íbúar farið að finna fyrir nokkru raski fljótlega. Kostnaður við undirbúningsframkvæmdirnar er yfir 1,3 milljarðar króna. Innlent 16.3.2006 13:48
Lánshæfi ríkissjóðs staðfest Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor’s staðfesti í dag lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs á langtímaskuldbindingum í erlendri mynt AA- og AA+ fyrir langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum. Einnig var staðfest einkunnin A-1+ fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum. Horfur um lánshæfismatið eru stöðugar, að mati Standard & Poor’s. Viðskipti innlent 16.3.2006 13:42
Stýrivextir hækka í Noregi Stjórn Seðlabanka Noregs ákvað í dag að hækka stýrivexti um 0,25 prósent og standa stýrivextir í landinu nú í 2,5 prósentum. Búist var við hækkuninni og kemur hún ekki á óvart. Í yfirlýsingu frá bankanum kemur fram að stefna bankans sé að hækka stýrivexti í Noregi jafnt og þétt í litlum skrefum. Viðskipti erlent 16.3.2006 13:27
Hugtakið lán og trúverðugleiki vitna réð úrslitum Sýknudómur Héraðsdóms Reykjavíkur í Baugsmálinu byggir aðallega á skilgreiningu á hugtakinu lán og trúverðugleika vitna eins og Jóns Geralds Sullenbergers. Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að vitnisburður Jóns Geralds hafi verið ótrúverðugur þar sem hann beri kala til Jóns Ásgeirs og fjölskyldu hans. Innlent 16.3.2006 12:58
Ákvörðun Bandaríkjamanna þarf ekki að koma á óvart Sú ákvörðun ráðamanna í Bandaríkjunum að draga stórlega úr starfsemi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli þarf ekki að koma á óvart í ljósi atburða vorið 2003 þegar einhliða ákvörðun Bandaríkjamanna um brotthvarf þotna og þyrlna var kynnt forsætisráðherra. Síðan þá hefur legið ljóst fyrir að Bandaríkjamenn vildu breyta rekstri sínum hér á landi. Innlent 16.3.2006 12:32
Krónubréfaútgáfa þrátt fyrir neikvæða umfjöllun Þýski ríkisbankinn Rentenbank gaf út krónubréf fyrir 2 milljarða krónur í gær. Útgáfan er til tveggja ára og bera bréfin 9 prósenta vexti. Þetta er fyrsta útgáfa krónubréfa í mars og þriðja útgáfan frá því Fitch breytti horfum á lánshæfismati ríkisins úr stöðugum í neikvæðar. Viðskipti innlent 16.3.2006 12:49
Ratsjárstöðvum lokað innan tíðar Margt bendir til þess að ratsjárstöðvunum hér á landi verði lokað innan tíðar því hernaðarlegum tilgangi þeirra lýkur í raun þegar herþoturnar verða fluttar frá Keflavíkurflugvelli í haust. Innlent 16.3.2006 12:24
Geta átt von á uppsögnum Allir starfsmenn, bæði íslenskir og bandarískir voru boðaðir á fund í stóra flugskýlinu á Keflavíkurflugvelli í morgun vegna frétta um stórfellda fækkun hjá varnarliðinu. Á fundinum var starfsmönnum kynnt að það mætti eiga von á uppsögnum. Innlent 16.3.2006 12:21
Hermönnum í Keflavík fækkað um 60% á 15 árum Bandarískum hermönnum í varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli hefur fækkað um rúm 60% frá endalokum kalda stríðsins fyrir fimmtán árum og enn frekari fækkun þýðir að ýmsum þjónustustofnunum á vellinum verður lokað. Innlent 16.3.2006 12:12
Frávísunartillaga felld Frávísunartillaga stjórnarandstöðuflokkanna um vatnalagafrumvarp iðnaðarráðherra var felld á Alþingi í morgun með 28 atkvæðum gegn 23. Innlent 16.3.2006 11:18
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent