Fréttir
Bandarísk herþyrla skotin niður Bandarísk herþyrla var skotin niður í austurhluta Afganistans í gær. Engar upplýsingar liggja enn fyrir um slys á mönnum en talið er að um tuttugu hermenn hafi verið um borð. Talibanar hafa lýst verknaðinum á hendur sér Erlent 13.10.2005 19:26
Skyrsletturum birt ákæra á morgun Þremenningunum, Paul Gill, Arna Ösp Magnúsardóttir og Ólafur Páll Sigurðsson sem slettu grænleitu skyri á fundi Landsvirkjunar um miðjan mánuðinn verður birt ákæra á morgun. Skaðabótakrafa Nordica Hótel hljóðar upp á um 2,8 milljónir króna á þremenningana eða tæp ein milljón króna á hvern og einn. Innlent 13.10.2005 19:26
Fá 60 milljarða fyrir orkusölu Fulltrúar Alcan á Íslandi og Orkuveitu Reykjavíkur hafa skrifað undir samkomulag um að Alcan kaupi af Orkuveitunni 200 MW af raforku vegna hugsanlegrar stækkunar álversins í Straumsvík. Innlent 13.10.2005 19:26
Stækkun Norðuráls á Grundartanga Framkvæmdir við stækkun Norðuráls á Grundartanga ganga mjög vel. Nýtt fimmtíu metra hátt súráls-síló hefur verið reist á mettíma og vinna við kerskála hefur gengið vonum framar. Innlent 13.10.2005 19:26
S-hópurinn tengdist Halldóri Efasemdir um hæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra við sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum hlutu að vakna um leið og S-hópurinn svokallaði skilaði inn tilkynningu um áhuga á kaupum á hlut í bankanum. Innlent 13.10.2005 19:26
Gamli sáttmáli víst gamall Sagnfræðiprófessor við Háskóla Íslands hefur efasemdir um að Gamli sáttmáli, helsta plagg sjálfstæðisbaráttu Íslendinga, sé yngri en talið var eins og haldið er fram í nýrri doktorsritgerð. Þar er því haldið fram að Gamli sáttmáli sé seinni tíma tilbúningur. Innlent 13.10.2005 19:26
Merki um leiðbeinandi hraða Vegagerðin hefur ákveðið að setja upp merki sem sýna leiðbeinandi hámarkshraða og verða þau sett upp við stofnvegi landsins. Þetta er eitt verkefna umferðaröryggisáætlunar til ársins 2008, sem var samþykkt á Alþingi á síðastliðð vor. Innlent 13.10.2005 19:26
Peter Coates býður í Stoke Peter Coates einn fyrrverandi eiganda fótboltaliðsins Stoke City og núverandi stjórnarmaður, bauð á mánudag 4 milljónir punda í félagið. Þetta staðfesti Gunnar Þór Gíslason stjórnaformaður Stoke við Bylgjuna nú fyrir hádegið. Það þýðir að hluthafar myndu fá um 20% af hlutafé sínu. Sport 13.10.2005 19:26
Hans Markús kærir biskup "Strax í kjölfar niðurstöðu áfrýjunarnefndar sem birtist stefndi ég biskupi, fyrir hönd Þjóðkirkjunnar, og öðrum málsaðilum fyrir Héraðsdóm Reykjaness til að krefjast ógildingar þess að Hans Markúsi skuli gert að færa sig til í starfi," segir Sveinn Andri Sveinsson lögmaður Hans Markúsar Hafsteinssonar sóknarprests í Garðasókn. Innlent 13.10.2005 19:26
Sautján hermanna saknað Óvinveitt skot er talið hafa valdið því að bandarísk þyrla hrapaði til jarðar í austurhluta Afganistan, ef marka má fréttir frá bandaríska hernum. Sautján hermenn voru um borð í þyrlunni sem var að flytja þá yfir mikla fjallgarða til að berjast gegn meðlimum al-Kaída samtakanna. Ekkert er vitað um afdrif hermannanna. Erlent 13.10.2005 19:26
Nýtt Samkeppniseftirlit Eitt brýnasta verkefni samkeppniseftirlitsins verður að auka gagnsæi í stjórnum og eignatengslum fyrirtækja að mati Páls Gunnars Pálssonar forstjóra Samkeppniseftirlitsins. Það mun í auknum mæli stuðla að fræðslu og fyrirbyggjandi aðgerðum til að koma í veg fyrir samkeppnisbrot. Sjötíu mál eru nú til meðferðar hjá samkeppnisyfirvöldum. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:26
Litháenskir sjómenn láta lífið Tveir Litháenskir sjómenn létu lífið og sá þriðji var hætt kominn, um borð í fiskibáti undan ströndum Karlskrona í Svíþjóð í gærkvöldi. Talið er að banameinið hafi verið að þeir önduðu að sér eitruðum gastegundum Erlent 13.10.2005 19:26
Grunur um fíkniefnasölu Rúmlega fertugur maður var í dag handtekinn í Reykjavík vegna gruns um fíkniefnasölu. Lögreglan gerði húsleit á tveimur stöðum og var lagt hald á fleiri en eina tegund fíkniefna. Innlent 13.10.2005 19:26
Elsta kona heims 115 ára Elsta kona í heimi hélt upp á afmælið sitt í dag. Hendrikje van Andel-Schipper fæddist í Hollandi þennan dag árið 1890, og er því hundrað og fimmtán ára gömul. Það ótrúlega er að hún hefur alla ævi verið frekar heilsutæp og gat ekki gengið í skóla af þessum sökum. Erlent 13.10.2005 19:26
Hans Markús fluttur til í starfi Séra Hans Markús Hafsteinsson, sóknarprestur í Garðasókn verður fluttur til í starfi. Þetta er niðurstaða áfrýjunarnefndar kirkjunnar. Séra Hans Markús hefur stefnt biskupi Íslands fyrir hönd Þjóðkirkjunnar og krefst þess að niðurstaða áfrýjunarnefndarinnar verði ógild. Innlent 13.10.2005 19:26
Duran Duran lentir Meðlimir bresku hljómsveitarinnar Duran Duran lentu á Reykjavíkurflugvelli klukkan þrjú í dag. Hljómsveitin heldur tónleika í Egilshöll annað kvöld. Klukkan fjögur hélt hljómsveitin blaðamannafund og verður nánar verður greint frá honum í fréttum stöðvar tvö í kvöld. Innlent 13.10.2005 19:26
Lögfræðiálit um Ríkisendurskoðun Lögfræðiálit sem stjórnarandstaðan kallaði eftir vegna einkavæðingar ríkisbankanna og aðkomu forsætisráðherra að henni verður kynnt á morgun. Lögfræðingarnir draga í efa að Ríkisendurskoðun hafi sinnt hlutverki sínu. Innlent 13.10.2005 19:26
Á sjötta þúsund að Gljúfrasteini "Aðsóknin hefur verið nokkuð góð frá því að safnið var opnað," segir Guðný Dóra Gestsdóttir, forstöðumaður Gljúfrasteins, safns sem tileinkað er minningu nóbelsskáldsins Halldórs Laxness. Innlent 13.10.2005 19:26
Fæst banaslys á Austurlandi Flest banaslys á Íslandi á árunum 2001 til 2004 urðu á suður- suðvestur og norðurlandi. Fæst banaslys á þessum tíma urðu á Austurlandi. Rannsóknarnefnd umferðarslysa kynnti í morgun skýrslu um umferðarslys á Íslandi á árunum 2001 til 2004. Innlent 13.10.2005 19:26
FF fagnar rannsókn Stjórn Félags framhaldskólakennara (FF) hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem því er fagnað að fram eigi að fara opinber rannsókn á stjórnarháttum og samskiptum innan Menntaskólans á Ísafirði. Innlent 13.10.2005 19:26
Efndu til illinda við hermenn Til átaka kom á milli öfgafullra gyðinga sem leggjast gegn brottflutningi landnema af Gaza-ströndinni, ísraelskra hermanna og Palestínumanna í gær. Erlent 13.10.2005 19:26
Börn geta ekki notað netbanka KB Börn á aldrinum 11 til 18 ára þurfa að gera sérstaka samninga við KB Banka til að geta millifært og notað netbanka bankans. Foreldrar þurfa að skrifa undir samninginn sem forráðamenn barnsins. Innlent 13.10.2005 19:26
Feðraorlof breytir fjölskyldulífi Feðraorlof er að gjörbreyta fjölskyldulífi á Íslandi og í Danmörku, segir í fréttum breska ríkisútvarpsins BBC. Þar er fullyrt að á síðasta ári hafi nærri allir íslenskir feður tekið sér feðraorlof með nýfæddum börnum. Innlent 13.10.2005 19:26
Segja ríkið bera ábyrgðina Stjórnendur Landsbankans telja bankann enga ábyrgð bera á hækkun lífeyrisskuldbindinga Lífeyrissjóðs bankamanna vegna launahækkana eftir einkavæðingu bankans. Eðlilegt sé að krafan um bakábyrgð beinist að ríkinu en ekki Landsbankanum. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:26
Bandaríkjastjórn með fangaskip? Mjög alvarlegar ásakanir hafa borist hryðjuverkaeftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna til eyrna, þess efnis að Bandaríkjastjórn haldi stríðsföngum höldnum á skipum á alþjóðlegu hafsvæði. Erlent 13.10.2005 19:26
Þrefaldur munur á boði og áætlun Orkuveita Reykjavíkur hefur hafnað öllum tilboðum í lagningu ljósleiðara á Akranesi og Seltjarnarnesi þar sem þau voru langt yfir kostnaðaráætlunum fyrirtækisins. Stjórnarmaður í Orkuveitunni gagnrýnir fyrirtækið fyrir ranga áætlanagerð. Innlent 13.10.2005 19:26
Geimskutlan Discovery í loftið Geimskutlan Discovery ætti að verða tilbúin í næsta mánuði þegar til stendur að hún fari í fyrstu geimferðina frá því að skutlan Columbia fórst. Í gær gagnrýndi eftirlitsnefnd bandarísku geimferðastofnunina NASA fyrir að slá slöku við í öryggismálum í þremur tilfellum. Erlent 13.10.2005 19:26
Skeljungur hækkar Olíufélagið Skeljungur fylgdi í gær í kjölfar annarra olíufyrirtækja í landinu og hækkaði eldsneytisverð á stöðvum sínum til samræmis við Olís og Esso. Innlent 13.10.2005 19:26
Dæmt fyrir hrottafengna nauðgun 42 ára gamall maður var dæmdur í þriggja ára fangelsi í gær fyrir hrottafengna nauðgun á fyrrum sambýliskonu sinni. Verknaðurinn stóð í um klukkustund í fjölbýlishúsi á höfuðborgarsvæðinu að kvöldi mánudagsins 12. júlí í fyrra. Hann þarf að auki að greiða henni eina milljón króna í skaðabætur. Innlent 13.10.2005 19:26
Krefjast bóta vegna samráðs Á morgun verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur mál félagsmanns Neytendasamtakanna á hendur einu olíufélaganna vegna meints taps af ólöglegu verðsamráði þeirra. Innlent 13.10.2005 19:26