Fréttir

Fréttamynd

Leigubílstjórar sækja um hækkun

Dísillítrinn er nú á nánast sama verði og bensínlítrinn en lög um olíugjald og kílómetragjald tóku gildi á miðnætti og hækkaði þá dísillítrinn um 51 krónu. Leigubílstjórar hafa sótt um hækkun í kjölfarið.

Innlent
Fréttamynd

Enn beðið eftir FARICE sæstrengnum

Netnotendur Símans og OgVodafone hafa orðið varir við hægari umferð vegna þess að samband Íslands um FARICE sæstrenginn liggur niðri. Að sögn forsvarsmanna FARICE verður ekki gert við strenginn fyrr en aðfaranótt sunnudags.

Innlent
Fréttamynd

Óskar eftir endurnýjuðu umboði

Þýska stjórnin er fallin, ári áður en kjörtímabil hennar rennur út. Gerhard Schröder kanslari óskaði í gær eftir og fékk vantraust þingsins sem gerir honum kleift að efna til nýrra þingkosninga.

Erlent
Fréttamynd

Ákæra vegna litanotkunar

Arabíski Balad-flokkurinn hefur höfðað mál fyrir ísraelskum dómstólum gegn hópi róttækra gyðinga sem berjast gegn brottflutningi ísraelskra landtökumanna frá Gasa. Ákæran snýst þó ekki um brottflutninginn, heldur liti.

Erlent
Fréttamynd

Jörð stækkar og minnkar

Jörð í Suðursveit stækkar og minnkar eftir því hvort Breiðamerkurjökull skríður eða hopar. Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Reykjaness í morgun í þjóðlendumáli. Málinu verður áfrýjað til Hæstaréttar.

Innlent
Fréttamynd

Davíð afhent hvíta bandið

Davíð Oddssyni utanríkisráðherra var í dag afhent „hvíta bandið“, armband sem tengist baráttunni um að brúa þá gjá sem er á milli ríkra og snauðra í heiminum. Þetta átti sér stað í höfuðstöðvum BSRB en í dag er fyrsti baráttudagurinn af nokkrum sem kenndir eru við hvíta bandið.

Innlent
Fréttamynd

70 prósent ósátt við Chirac

Einungis fimmti hver Frakki er sáttur við frammistöðu Jacques Chirac Frakklandsforseta, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem birt var í Le Figaro. Sjö af hverjum tíu eru hins vegar ósáttir við forsetann og störf hans.

Erlent
Fréttamynd

Rigningu fagnað á Ítalíu

Margir Ítalir fögnuðu mjög þegar byrjaði að rigna í norðurhluta landsins og um miðbik þess í gær. Rigningin kemur í kjölfar mikillar hitabylgju sem hefur kostað 21 einstakling lífið og léttir aðeins á þjáningum landsmanna og ferðamanna.

Erlent
Fréttamynd

Lögregla eykur eftirlit um helgina

Búist er við mikilli umferð um allt land um helgina og að umferð á vegum fari að aukast verulega upp úr hádegi í dag. Lögregla ætlar að auka eftirlit til muna og verða hreyfanlegri en áður, þ.e. að fylgja fólksstraumnum.

Innlent
Fréttamynd

Átta ár frá afhendingu Hong Kong

Hátíðarhöld standa nú yfir í Hong Kong í tilefni af því að átta ár eru liðin frá því borgin var afhent Kína á ný. Ekki var þó laust við gagnrýnisraddir ýmissa lýðræðissinna á hátíðinni en þeir voru þó fljótt fjarlægðir af vettvangi, enda yfirvöld í Kína ekki þekkt fyrir þolinmæði eða þeim sem ósammála eru stefnu ríkisins.

Erlent
Fréttamynd

Baugur í skaðabótamál við ríkið

Sex manns voru í dag ákærðir í Baugsmálinu svokallaða. Ákærurnar eru í fjörutíu liðum og fjalla meðal annars um auðgunarbrot og brot á lögum um hlutafélög og bókhald. Baugur ætlar í skaðabótamál við ríkið vegna skaða sem fyrirtækið segist hafa orðið fyrir vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Lík 16 hermanna fundin

Alls hafa lík 16 hermanna, sem voru í bandarísku herþyrlunni sem hrapaði í austurhluta Afganistans í fyrradag, fundist að því er háttsettur bandarískur hershöfðingi skýrði frá í gærkvöld. Talið er líklegt að þyrlan hafi verið skotin niður og hafa uppreisnarmenn úr röðum talíbana fullyrt að þeir hafi grandað þyrlunni.

Erlent
Fréttamynd

Höfða mál gegn ríkinu

Hópur manna sem eiga og starfa á fasteignasölum undirbúa málshöfðun á hendur ríkinu. Mennirnir telja sig hafa orðið fyrir hundruða milljóna króna tjóni þegar ríkið setti ný lög um fasteignasala sem tóku gildi í haust. Hlutabréf mannanna í fasteignasölunum eru verðlítil því aðeins löggiltir fasteignasalar mega kaupa meirihluta í fasteignasölunum. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Tveggja mánaða gæsluvarðhald

Litháarnir sem teknir voru með rúmlega fjögur kíló af hvítu dufti við komu ferjunnar Norrænu í gærmorgun hafa verið úrskurðaðir í tveggja mánaða gæsluvarðhald. Tollverðir á Seyðisfirði fundu efnið en grunur leikur á að það sé amfetamín. Efninu hafði verið komið haganlega fyrir í leynihólfi fólksbifreiðar mannanna.

Innlent
Fréttamynd

Ákæra birt

Ríkissaksóknari birti í gær karlmanni á þrítugsaldri ákæru fyrir stórfellda líkamsárás aðfaranótt 12. desember síðastliðinn. Karlmaður á sextugsaldri beið bana í árásinni sem átti sér stað á veitingahúsinu Ásláki í Mosfellsbæ.

Innlent
Fréttamynd

Beinbrotinn eftir bílveltu

Farþegi beinbrotnaði þegar ökumaður um tvítugt missti stjórn á fólksbifreið norðan Akrafjalls á Vesturlandsvegi við Borgarnes. Bifreiðin valt. Lögreglan grunar ökumanninn og farþegann um að hafa verið undir áhrifum áfengis.

Innlent
Fréttamynd

Sumarhúsalóðir Landgræðslunnar

Landgræðslan leigir út lóðir í sinni eigu til sumarbústaðabyggðar. Um er að ræða í kring um 45 lóðir sem hver er fimm til tíu hektarar að stærð.

Innlent
Fréttamynd

Fjármálaeftirlitið gerir opinbert

Fjármálaeftirlitið mun framvegis birta opinberlega niðurstöður mála sem eftirlitið hefur tekið til skoðunar og greina frá hvort tiltekin mál, sem eru í opinberri umræðu, séu til athugunar eða ekki.

Innlent
Fréttamynd

Mótmæli vegna fundar G8 í Edinborg

Íbúar Edinborgar í Skotlandi eru komnir á fullt í undirbúningi fyrir mótmæli vegna funds fulltrúa G8-ríkjanna svokölluðu í borginni í næstu viku. 

Erlent
Fréttamynd

Fimm á slysadeild eftir árekstur

Maður á miðjum aldri liggur mikið slasaður á slysadeild Landspítalans í Fossvogi eftir árekstur jeppa og fólksbíls í Hverárdölum seinni partinn í gær. Fimm voru fluttir á slysadeild eftir áreksturinn, fjórir farþegar úr jeppanum auk mannsins.

Innlent
Fréttamynd

Morðtilræði við forsætisráðherra?

Tyrkneska lögreglan skaut í morgun mann sem grunaður var um að ætla að fremja sjálfsmorðsárás á Erdogan, forsætisráðherra landsins. Honum fipaðist við að gera sprengju virka sem hann bar innan klæða og á meðan skaut lögreglan hann. Ekki er vitað hvort maðurinn tenigst einhverjum hryðjuverkasamtökum.

Erlent
Fréttamynd

Olíugjaldið eykur kostnað

Fyrirtæki í fólks- og vöruflutningum búast flest við að breytingar á innheimtu skatta af dísilolíu muni auka rekstrarkostnað þeirra. Reynt verður að hagræða en hækkanir á gjaldskrá eru þó í einhverjum tilvikum óumflýjanlegar.

Innlent
Fréttamynd

Gill fékk 2 mánuði skilorðsbundið

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm um hádegisbil í máli ákæruvaldsins gegn Paul Gill sem, ásamt tveimur Íslendingum, var ákærður fyrir að sletta grænu skyri á ráðstefnugesti á Nordica-hóteli. Gill var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi en skaðabótakröfu Flugleiðahótela upp á rúmar tvær milljónir króna var vísað frá.

Innlent
Fréttamynd

Missti bílinn út af og slasaðist

Kona slasaðist, en þó ekki alvarlega, þegar hún missti hægra hjól bíls síns út af bundnu slitlagi á Vesturlandsvegi í grennd við Langá á Mýrum í gærkvöld. Konan reyndi að snöggbeygja inn á veginn aftur en við það missti hún stjórn á bílnum sem reif sig upp á veginn og fór öfugu megin út af. 

Innlent
Fréttamynd

Flytja lax upp fyrir Elliðavatn

Til stendur að flytja 20 hrygningarpör úr Elliðaám upp fyrir Elliðavatn í Suðurá og Hólmsá. Ástæðan er sú að sífellt hrygna færri laxar á þessum slóðum og þykir fiskifræðingum það áhyggjuefni.

Innlent
Fréttamynd

Aukinn viðbúnaður hjá lögreglu

Fyrsta helgin í júlí hefur verið önnur stærsta ferðahelgi sumarsins og safnast fólk saman á víða á landinu. Lögreglan er með auka viðbúnað á nokkrum stöðum þar sem búist er við mannmergð, auk herts umferðareftirlits í tengslum við umferðarátak Umferðarstofu.

Innlent
Fréttamynd

Kannabisræktun í haughúsi

Þrír karlmenn og ein kona á fimmtugsaldri voru í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmd í skilorðsbundið fangelsi fyrir að eiga og rækta kannabisplöntur í haughúsi undir fjósi á sveitabæ í Ölfusi.

Innlent
Fréttamynd

Blair gagnrýndi Bandaríkjastjórn

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, gagnrýndi Bandaríkjastjórn í þætti á bresku sjónvarpsstöðinni MTV í gær. Umræðuefnið var loftslagsbreytingar sem Blair segir vera mestu ógn við jörðina og að ef árangur eigi að nást í málum þessum þurfi Bandaríkin að taka virkari þátt og skrifa undir Kyoto-sáttmálann.

Erlent
Fréttamynd

Áminning er ekki nóg

"Biskupsstofa hefur fyrirgert öllu trausti af hálfu sóknarprests til að taka á þessu viðkvæma máli," segir í yfirlýsingu sem Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Hans Markúsar Péturssonar, sóknarprests í Garðasókn, sendi út fyrir helgi.

Innlent
Fréttamynd

Fimm slasaðir eftir bílslys

Fimm slösuðust, þar af einn alvarlega, þegar fólksbíll og jeppabifreið rákust saman í brekkunni við Hveradali um fimmleytið í dag. Beita þurfti klippum til að ná einum hinna slösuðu út en allir voru fluttir á Landspítalann í Fossvogi. Að svo stöddu hafa ekki fengist upplýsingar um líðan fólksins.

Innlent