Fréttir

Fréttamynd

Bresk yfirvöld sofandi á verðinum

Chatham-house rannsóknarstofnunin sendi í gærkvöldi frá sér skýrslu, þar sem fullyrt er að stríðið í Írak hafi aukið stuðning við al-Qaeda og auðveldað bæði nýliðun og fjáröflun. Bretland væri fyrir vikið í meiri hættu en ella og tapaði á því að hafa fylgt Bandaríkjamönnum að máli. Það hafi reynst dýrt, bæði í mannslífum talið og einnig þegar litið væri til hryðjuverkavarna.

Erlent
Fréttamynd

Kaupmenn verjist

Ekki mælist marktækur munur á því hvort ránum í lyfjaverslunum fækkar í kjölfar hertra öryggisráðstafana. "Tilfellin eru of fá til þess að slíkir útreikningar séu marktækir, þrátt fyrir að ránin séu auðvitað of mörg," segir Eiður Eiðsson hjá forvarnadeild Lögreglunnar í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Erótísk nuddstofa til rannsóknar

Rannsókn á starfsemi erótískrar nuddstofu í Reykjavík er nú á lokastigi, en grunur leikur á að þar hafi verið boðið upp á vændi. Lögreglan leggur áherslu á að ná milliliðunum, það er, dólgunum sjálfum sem auglýsa konurnar og selja þær.

Innlent
Fréttamynd

Dýrahótelin að fyllast

Nú fer hver að verða síðastur að panta pláss á dýrahóteli fyrir gæludýrin sín en dýrahótel njóta sífellt meiri vinsælda hér á landi í kjölfar aukinnar gæludýraeignar. Sums staðar eru plássin bókuð langt fram í tímann og jafnvel allt orðið fullt fyrir sumarið.

Innlent
Fréttamynd

Úrskurður hindrar framsal

Þýski stjórnlagadómstóllinn úrskurðaði í gær að maður sem grunaður er um tengsl við al-Kaída skyldi ekki framseldur til Spánar þar sem evrópska handtökutilskipunin, sem framsalsbeiðnin byggði á, bryti í bága við þýsku stjórnarskrána.

Erlent
Fréttamynd

Mexíkó næst í röðinni

Tæplega þriggja metra háar öldur hafa skollið á Jamaíku og eyðilagt tugi húsa eftir að fellibylurinn Emily gekk þar yfir í nótt. Búist er við að óveðrið skelli á Cancun í Mexíkó í fyrramálið en fréttastofan hefur heimildir fyrir að hópur íslenskra unglinga sé á staðnum. Þrjátíu þúsund ferðamönnum hefur verið skipað að yfirgefa svæðið.

Erlent
Fréttamynd

Óánægð með frágang við Egilshöll

"Frágangur á umferðarmannvirkjum við Egilshöll er fyrir neðan allar hellur," segir Elísabet Gísladóttir, formaður Íbúasamtaka Grafarvogs. Að sögn Elísabetar getur tekið allt að því þrjár klukkustundir að komast út af bílastæðinu þegar haldnir eru mjög fjölmennir viðburðir í Egilshöll.

Innlent
Fréttamynd

Ofsaveður í Taívan og Mexíkó

Mjög öflugir stormar leika nú bæði Mexíkó og Taívan grátt. Fellibylurinn Emily gengur nú sem stendur yfir Cancun í Mexíkó og hvirfilbylurinn Haitang ber að norðausturströnd Taívans.

Erlent
Fréttamynd

Ný steypuaðferð á Íslandi

Þeir sem áttu leið fram hjá Borgartúninu í dag hafa eflaust velt fyrir sér hvort þar væri verið að útbúa boltaland fyrir fullorðna. Þarna er hins vegar um að ræða svokallaða kúluplötuaðferð við húsbyggingu, þar sem plastkúlur eru settar í gólfplöturnar, í stað einungis steypu.

Innlent
Fréttamynd

Íbúðalánsjóður heildsölubanki?

Félagsmálaráðherra fór til Bandaríkjanna í vor ásamt forsvarsmönnum Íbúðalánasjóðs til að kynna sér starfsemi heildsölubanka þar í landi. Félagsmálaráðherra segist ekki hafa séð lánasamninga Íbúðalánasjóðs við banka og sparisjóði en ætli að kalla eftir þeim núna.

Innlent
Fréttamynd

Vill stjórnsýsluúttekt á sjóðnum

Jóhanna Sigurðardóttir vill að Ríkisendurskoðun geri stjórnsýsluúttekt á Íbúðalánasjóði í kjölfar frétta Stöðvar 2 um áttatíu milljarða króna lán til banka og sparisjóða, gegn veði í fasteignum, þar sem Íbúðalánasjóður tekur á sig alla ábyrgð ef eignir hrökkva ekki fyrir skuldum.

Innlent
Fréttamynd

Ummæli Össurar heimskuleg

Það er heimskulegt að halda því fram að Samfylkingin geti boðið fram undir merkjum R-listans ein og sér segir oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn. Hann segir Össur Skarphéðinsson vita að það er ekki hægt og skilur ekki hvað honum gengur til með því að viðra slíkar hugmyndir.

Innlent
Fréttamynd

Kennir Ísraelum um

Leiðtogi Palestínumanna kennir Ísraelum um að allt sé á leiðinni á versta veg á Gaza svæðinu. Mahmoud Abbas segist ætla að gera allt til að koma í veg fyrir árásir palestínskra uppreisnarmanna á byggðir Ísraela á gaza svæðinu á næstunni.

Erlent
Fréttamynd

Mat á Baugsverði dregist í 18 mán

Matsnefnd um verð á hlutabréfum í Baugi mun loks skila af sér niðurstöðu í málinu í ágúst, meira en einu og hálfu ári eftir að hún var skipuð. Nefndarmenn viðurkenna að fyrrverandi hluthafar í Baugi, sem ekki sættu sig við verðið sem þeir fengu fyrir bréf sín við þvingaða yfirtöku, hafi mátt bíða allt of lengi.

Innlent
Fréttamynd

Blóði drifin helgin að baki

Helgin sem nú er á enda var ein sú blóðugasta í Írak frá því að ráðist var inn í landið vorið 2003. Í það minnsta 170 manns hafa beðið bana í hryðjuverkaárásum undanfarna viku.

Erlent
Fréttamynd

Meðvitundarlaus eftir árás

Tveir menn á þrítugsaldri gengu í skrokk á manni fyrir utan skemmtistaðinn Krúsina í miðbæ Ísafjarðar um þrjúleytið aðfaranótt sunnudags. Maðurinn var fluttur meðvitundarlaus á slysadeild sjúkrahússins á Ísafirði eftir árásina.<span lang="EN-US" style="COLOR: black; FONT-FAMILY: Helv; mso-ansi-language: EN-US"></span>

Innlent
Fréttamynd

Handfrjáls búnaður líka hættulegur

Fjórum sinnum meiri líkur eru á að ökumaður sem talar í farsíma undir stýri lendi í umferðarslysi en aðrir ökumenn. Virðist þá engu skipta hvort notaður er handfrjáls búnaður. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem birt var í <em>The British Medical Journal</em> fyrr í vikunni.

Innlent
Fréttamynd

Saddam verður ákærður

Saddam Hussein verður ákærður fyrir fjöldamorð gegn sjíum árið 1982. Þetta verður fyrsta dómsmálið sem höfðað verður gegn einræðisherranum fyrrverandi.

Erlent
Fréttamynd

Tíu Kúrdar drepnir í Tyrklandi

Tíu uppreisnarmenn úr röðum Kúrda voru drepnir í árás tyrkneska hersins í í suðausturhluta Tyrklands í dag. Árásin var gerð í kjölfar sjálfsmorðsárásar í borginni Kusadasi í gær sem talið er að hafi verið skipulögð af skæruliðasamtökum Kúrda.

Erlent
Fréttamynd

Sílamávar aflífaðir

Lögreglan í Reykjanesbæ þurfti að aflífa um 40 sílamáva í Sandgerði síðdegis í fyrradag. Sílamávarnir höfðu fengið á sig grút sem óþekkt skip losaði í sjóinn úti fyrir Sandgerði.

Innlent
Fréttamynd

Líkamsárásarkæra á Blönduósi

Kona hefur kært aðra konu fyrir líkamsárás í félagsheimilinu á Blönduósi í nótt. Árásin er ekki talin vera alvarleg en svo virðist sem um smá stympingar hafi verið að ræða. Þá voru ellefu teknir fyrir hraðakstur í sérstöku verkefni Ríkislögreglustjóra í umdæminu í gærdag.

Innlent
Fréttamynd

Verið að fara yfir samninginn

Félagsmálaráðherra segir að verið sé að fara yfir lánasamning á milli Íbúðalánsjóðs og bankanna og vel geti verið að þar þurfi að skerpa einhverjar reglur.

Innlent
Fréttamynd

Flest bendir til tengsla al-Kaída

Hryðjuverkamaður frá al-Kaída í haldi Bandaríkjamanna hefur borið kennsl á Mohammed Sidique Khan, einn fjórmenninganna sem taldir eru bera ábyrgð á sprengingum sem urðu 55 að bana í Lundúnum.

Erlent
Fréttamynd

5 mánaða vopnahléi lokið

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, segir herinn mega beita öllum brögðum til að koma herskáum Palestínumönnum frá. Það sé nauðsynlegt ef friður eigi að nást. Fimm mánaða vopnahléi er því lokið.

Erlent
Fréttamynd

Hundruð hafa flúið heimili sín

Tæplega þriggja metra háar öldur hafa skollið á Jamaíka og eyðilagt tugi húsa. Hundruð hafa flúið heimili sín vegna fellibylsins Emily og gista nú þúsundir í athvörfum.

Erlent
Fréttamynd

Farþegaflugvél fórst

Ekki er vitað hversu margir fórust er farþegaflugvél af gerðinni Anatonov fórst skömmu eftir flugtak í gærkvöld í Afríkuríkinu Miðbaugs-Gíneu. Þá er ekki heldur vitað hversu margir voru um borð en þó svo að á farþegaskránni hafi verið 35 og tíu manna áhöfn er vel hugsanlegt að þeir hafi verið fleiri því áhöfnum flugvéla er oft mútað til að taka aukafarþega.

Erlent
Fréttamynd

Stórveldi með þrjá starfsmenn

Ferskir vindar blása um starfsemi Kaupfélags Eyfirðinga í upphafi nýrrar aldar og félagið fer ótroðnar slóðir í markmiði sínu að bæta búsetuskilyrði og efla byggð í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Beinn atvinnurekstur KEA heyrir sögunni til en fjárhagslegur styrkur gerir rödd félagsins sterka.

Innlent
Fréttamynd

Yfirlýsing Össurar sögð heimskuleg

Oddvitar flokkanna sem standa að Reykjavíkurlistanum gefa lítið fyrir þá skoðun Össurar Skarphéðinssonar að Samfylkingin eigi að bjóða fram R-lista hvort sem samstarfsflokkarnir taki þátt í framboðinu eður ei. Árni Þór Sigurðsson segir yfirlýsinguna heimskulega.

Innlent
Fréttamynd

Mikil eftirspurn eftir vændi

Giftir karlar eru helstu viðskiptavinir hennar. Hún tekur þrjá í mánuði - níutíu þúsund krónur skattfrjálst. Hún markaðssetur sig á Einkamal.is og eftirspurnin eftir þjónustu hennar er mikil. Stöð 2 ræddi við íslenska vændiskonu í dag, viðskiptafræðing að mennt.

Innlent