Fréttir
Með stærstu háspennulínum í heimi Fjögur íslensk fyrirtæki koma að byggingu rúmlega sjö megavatta vatnsaflsvirkjunar á Grænlandi fyrir grænlensku orkuveituna. Það eru fyrirtækin Ístak, Landsvirkjun, Línuhönnun og Afl sem koma að byggingu virkjunarinnar sem staðsett verður á Suður Grænlandi. Innlent 13.10.2005 19:32
Þríburabarnafæðingum fækkar Frá því tæknifrjóvganir hófust árið 1990 hefur fjöldi þríburafæðinga þrefaldast eða jafnvel fjórfaldast að sögn Reynis Tómasar Geirssonar sviðsstjóra lækninga á kvennasviði Landspítala Háskólasjúkrahús. Innlent 13.10.2005 19:32
Hundruð milljóna í kostnað "Ég er ekki með tölurnar í hausnum en þetta eru einhver hundruð milljóna," segir Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, þegar hann er spurður um uppsafnaðan kostnað við Hvalstöðina í Hvalfirði og hvalbátana frá því hvalveiðar lögðust af. Innlent 13.10.2005 19:32
Þingmaður á villigötum Benedikt Sigurðarson, formaður stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga, segir Kristinn H. Gunnarsson þingmann á villigötum varðandi áform KEA um fjölgun starfa á Akureyri og eflingu byggðar á Norðurlandi en Kristinn ýjar að því í pistli á heimasíðu sinni að KEA ætli að kaupa stjórnsýsluákvarðanir tveggja ráðherra. Innlent 13.10.2005 19:32
Sumarolía hleypur í kekki í kulda Þeir sem hömstruðu díselolíu í stórum stíl áður en verð olíunnar breyttist, geta lent í stórkostlegum vandræðum í vetur. Þeir keyptu nefnilega sumarolíu, sem hleypur í kekki og stíflar síur þegar frost nær ákveðnu marki. Olían sem seld er yfir sumartímann þolir ellefu gráðu frost, en olían sem seld er yfir vetrartímann þolir 24 gráðu frost. Innlent 13.10.2005 19:32
Hrafn Gunnlaugsson mótmælir slætti "Það er fallegt að sjá þessi yndislegu ungmenni starfandi í náttúrunni en maður myndi frekar vilja sjá þau týna upp rusl heldur en að tæta upp þessar alíslensku jurtir sem vaxa þarna ótilneyddar innan borgarmarkanna," segir Hrafn Gunnlaugsson, leikstjóri og íbúi í Laugarnesi, en þar var slegið í góða veðrinu í fyrradag. Innlent 13.10.2005 19:32
Banað vegna nefndarsetu Mijbil Issa, einn fulltrúi súnnía í stjórnarskrárnefnd Íraks, var skotinn til bana ásamt tveimur aðstoðarmönnum sínum í Bagdad í gær. Erlent 13.10.2005 19:32
Sjónarhornið á vændiskaupandann Fimmtíu til níutíu prósent þeirra kvenna sem leiðast út í vændi hafa verið misnotaðar í æsku, að sögn framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins. Goðsögnin um hamingjusömu gleðikonuna er lífseig og snýst um að konan sem selji líkama sinn geri það af fúsum og frjálsum vilja. Innlent 13.10.2005 19:32
Haitang enn á ferð Átta hundruð þúsund manns hafast nú við í neyðarskýlum í suð-austurhluta Kína, þar sem óttast er að hvirfilbylurinn Haitang fari yfir á næstu klukkutímunum. Þrír létust af völdum bylsins á Taiwan og fjölmargir slösuðust. Erlent 13.10.2005 19:32
Össur segir ekki nei Össur Skarphéðinsson segir að mikil umfjöllun sín um málefni R- listans á sama tíma og aðrir aðstandendur listans þegja þunnu hljóði, sé ekki til marks um það að hann ætli að snúa sér aftur að borgarmálunum og telur afar ólíklegt að nafn hans komi upp sem borgarstjóraefni listans, en útilokar það þó ekki með öllu. Innlent 13.10.2005 19:32
Stefán Jón neitar Stefán Jón Hafstein neitar því alfarið að það hafi verið rætt formlega innan raða Samfylkingarinnar að bjóða fram undir merkjum R-Listans, án Vinstri-grænna og Framsóknarflokksins. Össur Skarphéðinsson segir Stefán hafa setið við hlið sér á fundi Samfylkingarinnar í Reykjavík þegar þetta var rætt og góður rómur gerður að. Innlent 13.10.2005 19:32
Tengja árásir stríðsrekstri Tveir af hverjum þrem Bretum telja stuðning Breta við Íraksstríðið ástæðuna fyrir hryðjuverkaárásunum á Lundúnir, samkvæmt könnun dagblaðsins Guardian sem birt var í morgun. Erlent 13.10.2005 19:32
Átök lögreglu og mótmælenda Ísraelskar öryggissveitir vörnuðu andstæðingum brottflutnings landnema frá Gaza-ströndinni vegar í gær. Á sama tíma vex spennan í herbúðum Palestínumanna. Erlent 13.10.2005 19:32
Bíðum ekki endalaust Gestur Gestsson formaður Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis norður segir að Framsóknarmenn bíði ekki endalaust eftir niðurstöðu viðræðna um framhald samstarfsins innan R-listans. Innlent 13.10.2005 19:32
Leyniþjónustan grunlaus Breska leyniþjónustan komst að þeirri niðurstöðu aðeins mánuði fyrir árásirnar í London að enginn hópur hefði bæði getu og vilja til að gera stóra hryðjuverkaárás á Bretland. Þetta kemur fram í dagblaðinu New York Times í dag, þar sem vitnað er í trúnaðarskýrslu leyniþjónustunnar. Í kjölfarið var hættuástand lækkað um eitt þrep. Yfirmenn leyniþjónustunnar neita að tjá sig um málið. Erlent 13.10.2005 19:32
Eftirlit úr lofti Sjónum verður sérstaklega beint að akstri utan vega í auknu eftirliti lögreglu á hálendi. Lögreglan á Hvolsvelli í samvinnu við Landhelgisgæsluna fór í hálendiseftirlit á þyrlunni TF-SIF á mánudag en samvinnuverkefnið heldur áfram það sem eftir lifir sumars. Innlent 13.10.2005 19:32
Mótmælendur lausir Þrettán mótmælendur voru handteknir og færðir til skýrslutöku á lögreglustöðinni við Kárahnjúka fyrr í dag. Þeim hefur öllum verið sleppt. Innlent 13.10.2005 19:32
Vonlaust að þagga niður í Össuri Össur Skarphéðinsson segist ekki vilja útiloka að gefa kost á sér sem borgarstjóraefni en segir að hugmyndin komi honum á óvart. Stefán Jón Hafstein segir erfitt að þagga niður í Össuri. Innlent 13.10.2005 19:32
Mótmæli við Kárahnjúka Fimmtán manns, flestir útlendingar, fóru inn á stíflusvæðið hjá Kárahnjúkavirkun í hádeginu í dag og stöðvuðu umferð að svæðinu í mótmælaskyni við framkvæmdirnar. Þeir hlekkjuðu sig við vinnuvélar og lögðu bílum þvert yfir veginn að Steypustöðinni til að vörubílar kæmust hvorki að né frá stíflusvæðinu. Innlent 13.10.2005 19:32
Komast í samband við börn á Netinu Menn sem tengjast vændisstarfsemi hér á landi eiga mjög auðvelt með að komast í samband við börn á Netinu, eins og dæmi eru um, og því rík ástæða fyrir foreldra að fylgjast vel með netnotkun barna sinna. Þetta segir heimildarmaður Stöðvar 2 sem hefur skoðað þessi mál sérstaklega. Innlent 13.10.2005 19:32
Enginn gengst við könnun Leiðtogaefni Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segjast grunlaus um hver standi að könnun Gallups á fylgi frambjóðenda flokksins í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 19:32
Lítill áhugi á Tyrkjum Einungis 35 prósent íbúa aðildarríkja Evrópusambandsins eru hlynnt aðild Tyrklands að sambandinu samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem gerð var fyrir framkvæmdastjórn sambandsins. Tæpur helmingur styður aðild Rúmeníu að sambandinu en helmingur vill hleypa Búlgaríu í sambandið. Erlent 13.10.2005 19:32
Ljósleiðari á Akureyri Á morgun, þriðjudaginn, verður undirritaður samningur Akureyrarbæjar við Tengi hf. um lagningu ljósleiðara sem víðast um Akureyri. Samningurinn veitir Tengi heimild til að leggja ljósleiðaranet um götur og stíga á Akureyri til afnota fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Innlent 13.10.2005 19:32
Eldur í sumarbústað Sumarbústaður í Miðfellslandi, við austanvert Þingvallavatn stórskemmdist í eldi í gærkvöld. Bústaðurinn var mannlaus þegar slökkvilið kom á vetvang, en eigendur höfðu verið í honum fyrr um daginn. Greiðlega gekk að slökkva eldinn, en bústaðurinn mun vera nánast ónýtur eftir. Innlent 13.10.2005 19:32
Þrýst á Bush að reka Rove George W. Bush sagði í gær að skyldi einhver í starfsliði hans verða uppvís að lögbroti í sambandi við upplýsingaleka sem fletti ofan af CIA-njósnara, myndi viðkomandi "ekki lengur fá að starfa í minni stjórn". Bush kom sér samt sem áður hjá því að svara beint spurningum um hlutverk stjórnmálaráðgjafa síns, Karl Rove, í málinu. Erlent 13.10.2005 19:32
Geta fengið olíuna endurgreidda Björn Karlsson brunamálastjóri segir Brunamálastofnun hafa borist allmargar vísbendingar um fólk sem hamstraði olíu fyrir gildistöku olíugjaldsins og geymi hana við óviðunandi aðstæður. Hann segir að fólk sem vilji losna við olíuna og hættuna sem fylgir henni geti skilað henni til olíufélaganna og fengið hana endurgreidda. Innlent 13.10.2005 19:32
Skógareldar á Spáni Fjórtán spænskir slökkviliðsmenn fórust í baráttu við skógarelda í gær. Eldarnir hafa þegar eyðilagt um fimm þúsund hektara af skógi vöxnu landi og hafa hundruðir þurft að yfirgefa heimili sín vegna þessa. Erlent 13.10.2005 19:32
Gekk eins og í lygasögu Fyrsta þríburafæðingin í áratugi, þar sem börnin voru ekki tekin með keisaraskurði, gekk eins og í lygasögu segir Sveinborg Hauksdóttir sem fæddi þrjú börn á aðeins fimmtán mínútum, tvær stúlkur og einn dreng. Innlent 13.10.2005 19:32
Svarfdælingar vilja út Íbúar í Svarfaðardal hafa sent öllum þingmönnum landsins áskorun um að endurskoða forsendur fyrir sameiningu sveitarfélaga og íhuga um leið möguleika á því að sveitarfélög, sem vilja ganga út úr sameiningu, geti gert það. Innlent 13.10.2005 19:32
Óveður á Taívan og Mexíkó Öflugir stormar ollu manntjóni og miklum skemmdum í dag. Á Taívan fórust nokkrir þegar hvirfilbylurinn Haitang reið yfir og tugir þúsunda ferðamanna flýðu fellibylinn Emily í Mexíkó. Þeirra á meðal var hópur íslenskra ungmenna. Erlent 13.10.2005 19:32