Fréttir

Fréttamynd

Samstarf ekki úr sögunni

Eftir fund Reykjavíkurfélags Vinstri grænna í fyrrakvöld eru yfirgnæfandi líkur á að stjórnmálaflokkarnir í Reykjavík bjóði hver fram sinn lista í borgarstjórnarkosningunum í maí á næsta ári.

Innlent
Fréttamynd

Samkynhneigð pör öðlast sama rétt

Samkynhneigð pör munu njóta nákvæmlega sömu réttinda og gagnkynhneigð, ef frumvarp sem er í smíðum í forsætisráðuneytinu verður samþykkt á þingi í haust. Málið var rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun og er samstaða um að ganga skuli alla leið og leyfa bæði ættleiðingar samkynhneigðra erlendis frá og tæknifrjóvgun lesbískra para.

Innlent
Fréttamynd

Rússar eiga stysta ævi í Evrópu

Rússneskir karlmenn eiga stysta ævi allra karlmanna í Evrópu, og er sláandi hve ævi þeirra hefur styst eftir fall Sovétríkjanna. Íslendingar verða hins vegar allra karla elstir.

Erlent
Fréttamynd

Fylgi Sjálfstæðisflokks mest

Í skoðanakönnunn Plússins um hvaða flokk Reykvíkingar hyggist kjósa í komandi borgarstjórnarkosningum kemur í ljós að 37 prósent kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 22 prósent Samfylkinguna, 8 prósent Vinstri - græna og aðeins 3 prósent ætla að kjósa Framsóknarflokkinn og enn færri, eða 1 prósent, ætla að kjósa Frjálslynda.

Innlent
Fréttamynd

Júlí metmánuður hjá Icelandair

Farþegar Icelandair í júlí 2005 voru rúmlega 214 þúsund og hafa aldrei verið fleiri í einum mánuði í sögu félagsins, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Farþegum fjölgaði um 16,2 prósent frá því í júlí í fyrra en þá voru farþegarnir 184 þúsund. Farþegafjöldinn í júlí í ár samsvarar því að félagið hafi flutt um 70 prósent íslensku þjóðarinnar í mánuðinum, en sú er ekki raunin, því mikill meirihluti farþeganna er erlendur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hermaðurinn enn í haldi

Maðurinn sem grunaður er um að hafa myrt konu á varnarliðssvæðinu á Keflavíkurflugvelli í fyrrakvöld, átti óuppgerðar sakir við hina látnu. Íslensk kona sem er mikilvægt vitni í málinu var á leið af vettvangi þegar lögreglan kom. Bandaríkskir sérfræðingar í glæparannsóknum komu hingað til lands frá Bretandi á tólfta tímanum í gær til að vinna að rannsókn málsins og stendur vettvangsrannsókn enn yfir.

Innlent
Fréttamynd

Hefur verið 748 daga í geimnum

Rússneski geimfarinn Sergei Krikalev setti í dag met í lengd dvalar úti í geimnum. Á tuttugu ára ferli sem geimfari hefur Krikalev samtals verið 748 daga úti í geimnum. Hann var meðal annars í áhöfn rússnesku geimstöðvarinnar Mir, hann hefur verið í alþjóðlegu geimstöðinni og flogið bæði með rússnesku Soyus-geimförunum og bandarískum geimferjum.

Erlent
Fréttamynd

Vilja efla umhverfisvæna tækni

Norrænu ríkin hyggjast efla samvinnu um að styðja þróun og nýtingu umhverfisvænnar tækni segir í fréttatilkynningu frá umhverfisráðuneytinu. Umhverfisráðherrar Norðurlanda samþykktu þetta á fundi sínum í Ilulissat á Grænlandi í gær. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra sat fundinn fyrir Íslands hönd.

Innlent
Fréttamynd

Vörnuðu harðlínumönnum inngöngu

Þúsundir ísraelskra lögreglumanna, landamæraverðir og hermenn stóðu vörð um suðurhluta landsins í gær til að koma í veg fyrir að Ísraelar kæmust inn á Gasasvæðið þar sem níu þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín undanfarna daga. Heitttrúaðir þjóðernissinnar hafa hótað lögreglu að ryðjast aftur inn á svæðið en yfirvöld hafa sagt að þeir sem ekki verði farnir frá Gasa fyrir miðnætti í kvöld verði fjarlægðir með valdi.

Erlent
Fréttamynd

Samlag utan greiðslumatskerfis

Fetaostur frá mjólkursamlaginu Mjólku er væntanlegur í verslanir eftir þrjár til fjórar vikur. Skömmu síðar er von á jógúrt og fleiri ostum frá Mjólku, sem starfar fyrir utan greiðslumatskerfi landbúnaðarins.

Innlent
Fréttamynd

Leita ferðamanns á Vestfjörðum

Allar björgunarsveitir við Ísafjarðardjúp eru í iðbragðsstöðu og þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna 23 ára Þjóðverja sem varð viðskila við gönguhóp sinn á Hornströndum í gær. Talið er að hópurinn hafi verið á leið frá Hælavík yfir í Hornvík þegar maðurinn týndist, en mikil þoka var á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Reyndu að komast til Spánar

Strandgæslan á Spáni fygldi í dag báti með nærri hundrað Afríkubúum til hafnar á Kanaríeyjum, en þeir eru grunaðir um að hafa ætlað að smygla sér inn í landið. Fólkið hafði verið í bátnum í um tvo mánuði og var um þriðjungur þess illa haldinn vegna vannæringar og því fluttur á sjúkrahús.

Erlent
Fréttamynd

Aðstoð þrátt fyrir lélega kunnáttu

Claus Hjort Frederiksen, atvinnumálaráðherra Danmerkur, aftekur með öllu að fjárhagsaðstoð við þá Grænlendinga í Danmörku sem ekki tala reiprennandi dönsku verði hætt.

Erlent
Fréttamynd

Grunuð um tengsl við hryðjuverk

Lögregla í Bretlandi handtók í gær fjórar manneskjur á Manchester-flugvelli vegna gruns um að þær tengdust hryðjuverkastarfsemi. Fólkið, tveir menn og tvær konur, sætir nú yfirheyrslu en það er talið hafa lagt til fé og ýmislegt annað sem notað hafi verið til hryðjuverka.

Erlent
Fréttamynd

Einn lést vegna rafmagnsbruna

Eitt dauðsfall varð af völdum rafmagnsbruna á síðasta ári, en það er í fyrsta sinn síðan 1996 sem mannslát verður vegna rafmagnsbruna á Íslandi. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu Neytendastofu um rafmagnsbruna árið 2004.

Innlent
Fréttamynd

Ræða ráðningu framkvæmdastjóra

Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga kemur saman klukkan 16.00 í dag til þess að ræða um væntanlegan arftaka Andra Teitssonar í stól framkvæmdastjóra KEA og segir Benedikt Sigurðarson, stjórnarformaður félagsins, önnur mál ekki á dagskrá.

Innlent
Fréttamynd

Jarðskjálfti í Japan

Öflugur arðskjálftinn varð í Japan í dag og mældist hann 7,5 stig á Ricter kvarða. Hann átti upptök sín um tuttugu kílómetra undir hafsbotninum þrjúhundruð kílómetra norðaustur af Tokyo. Skjálftinn fannst mjög greinilega í Tókíó, en enn betur í borginni Míagí, þar sem fréttamaður sat í myndveri og var að lesa fréttir.

Erlent
Fréttamynd

Brennuvargar kveikja skógarelda

Brennuvargar hafa kveikt tugi skógarelda í Portúgal í sumar og brennt um það bil sjötíu þúsund hektara af skóglendi til kaldra kola. Verstu þurrkar í manna minnum hafa verið í Portúgal, í sumar. Þurrkunum hefur fylgt mikil hitabylgja og fleiri skógareldar en elstu menn muna. Margir eldarnir hafa kviknað af náttúrulegum orsökum, en lögreglan telur einnig að tugir elda hafi verið af mannavöldum.

Erlent
Fréttamynd

Eðlilegt að dómarar vikju

Eðlilegt væri að allir hæstaréttardómarar vékju í kjölfar tengsla þeirra við Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómara þegar Baugsmálið verður tekið fyrir í Hæstarétti. Þetta sagði Brynjars Níelssonar hæstaréttarlögmanns í þættinum Íslandi í dag í gær.

Innlent
Fréttamynd

Hættulegt afbrigði breiðist út

Rússnesk yfirvöld greindu frá því í dag að fuglaflensuveiran sem borist hefur til borgarinnar Tsjeljabínsk í Úralfjöllunum væri sömu tegundar og borist hefði í menn og dregið þá til dauða í Asíu. Um er að ræða stofn sem fengið hefur heitið H5N1 en hann hefur þó ekki enn greinst í fólki í Rússlandi enn.

Erlent
Fréttamynd

Mótmæla hækkun leikskólagjalda

Stúdentar eru ævareiðir vegna komandi hækkunar leikskólagjalda hjá foreldrum þar sem annað er í námi. Stjórn Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir vel koma til greina að fólk skrái sig úr námi eða úr sambúð vegna þessa.

Innlent
Fréttamynd

Menningarnótt um helgina

Búist er við sextíu til hundrað þúsund manns á Menningarnótt á laugardag. Ákveðin áherslubreyting hefur orðið hjá aðstandendum menningarnætur sem leggja megináherslu á góða dagskrá og öryggi borgaranna en síður á að fá sem mestan fjölda gesta. Talið er að 104 þúsund manns hafi verið á síðustu Menningarnótt en það er talið við efri mörkin.

Innlent
Fréttamynd

Skólagangan kostar sitt

Það kostar rúmlega sextíu þúsund krónur að hefja menntaskólanám og eru þá skólagjöldin sjálf undanskilin. Öllu ódýrara er fyrir sex ára nemendur að byrja en skólarnir hefjast í næstu viku.

Innlent
Fréttamynd

Taugastofnfrumur búnar til

Vísindamönnum við Edinborgarháskóla í Skotlandi hefur tekist að búa til taugastofnfrumur úr stofnfrumum manna.

Erlent
Fréttamynd

Afli dregst saman um 50% milli ára

Fiskaflinn í júlí 2005 var 87 þúsund tonn en var 172 þúsund tonn í júlí 2004. Aflinn dregst því saman um tæplega 50 prósent milli ára. Í tilkynningu frá Fiskistofu segir að þar muni mest um 58 þúsund tonna samdrátt í kolmunnaafla í júlí 2005 frá sama tíma fyrir ári og að engin loðnuveiði hafi verið í nýliðnum júlí sem teljist óvenjulegt.

Innlent
Fréttamynd

Leita Þjóðverja á Hornströndum

Björgunarsveitir við Ísafjarðardjúp eru nú á leið á Hornstrandir til að leita að 23 ára gömlum Þjóðverja. Þyrla Landhelgisgæslunnar er einnig á leiðinni vestur með leitarhunda að sunnan.

Innlent
Fréttamynd

Sautján Spánverjar fórust

Herþyrla á vegum Atlantshafsbandalagsins fórst í suðurhluta Afganistan í gær og með henni 17 spænskir hermenn. Önnur þyrla nauðlenti skammt frá og fregnir herma að nokkur fjöldi hermanna sem var um borð hefði slasast.

Erlent
Fréttamynd

Björk vill breyta strætó

Stjórnarformaður Strætó bs. ætlar að leggja fram tillögur um breytingar á ferðum strætisvagna á stjórnarfundi á föstudag. Meðal annars að ekið verði til miðnættis á öllum leiðum í þágu vaktavinnufólks. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Í lífshættu vegna guðlasts

Pakistanskur maður sem dæmdur var í lífstíðarfangelsi fyrir guðlast hefur verið settur í einangrun til að koma í veg fyrir að aðrir fangar vinni honum mein. Maðurinn, sem er fertugur að aldri, skrifaði bók sem dæmd var guðlast og þótti hæfileg refsing að svipta hann frelsi það sem eftir væri ævinnar. Ekki þótti öllum það nóg og fleiri en einn klerkur hefur lýst „fatva“ á hendur honum, en það jafngildir heimild til allra múslima að drepa hann hvar sem til hans næst.

Erlent
Fréttamynd

Ekki svara vert

Ásakanir Baugsfeðga um að stjórnvöld standi á bak við rannsókn Ríkislögreglustjóra og ofsæki fyrirtæki þeirra, taka einfaldlega engu tali, segir Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.

Innlent