Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Grindavík 77-68 | Húnanir neita að fara í sumarfrí Oddaleik þarf í einvígi Njarðvíkur og Grindavíkur eftir sigur heimamanna í Ljónagryfjunni í kvöld. Körfubolti 14. apríl 2014 18:04
Helena og félagar örugglega inn í undanúrslitin Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í DVTK-Miskolc eru komnar áfram í undanúrslit í ungversku kvennadeildinni í körfubolta eftir öruggan sigur á MTK-Budapest í tveimur leikjum í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar. Körfubolti 14. apríl 2014 13:15
Aðalsteinn dæmdi bikarúrslitaleikinn í Sviss Íslenski körfuboltadómarinn Aðalsteinn Hjartarson dæmdi um helgina bikarúrslitaleikinn í svissneska körfuboltanum þar sem Les Lions de Genève tryggði sér svissneska bikarinn eftir 73-59 sigur á Fribourg Olympic. Körfubolti 14. apríl 2014 10:45
Breiðablikskonur spila í efstu deild á afmælistímabilinu Breiðablik tryggði sér í gær sæti í Dominos-deild kvenna í körfubolta eftir 75-63 sigur á Fjölni í oddaleik í úrslitaeinvígi liðanna um laust sæti sem fram fór í Smáranum í gærkvöldi. Körfubolti 14. apríl 2014 09:15
NBA: Indiana vann OKC og tók fyrsta sætið af Miami Indiana Pacers þarf aðeins einn sigur í viðbót til þess að tryggja sér heimavallarrétt út úrslitakeppnina í Austurdeildinni eftir sigur á Oklahoma City Thunder í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Körfubolti 14. apríl 2014 08:30
Adam Silver opinn fyrir breytingum Adam Silver sem tók við stöðu framkvæmdarstjóra NBA-deildarinnar af David Stern í vetur er opinn fyrir hugmyndinni að hrista upp í úrslitakeppninni eins og hún er í dag. Mikið hefur verið rætt um uppsetningu úrslitakeppninnar undanfarið. Körfubolti 13. apríl 2014 22:30
Teitur: Geng stoltur út í kvöld "Þetta er hrikalega svekkjandi en að sama skapi er ég stoltur af strákunum að hafa gefið þessu séns. Við komumst ansi langt þrátt fyrir mörg áföll á leiðinni," sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, svekktur eftir tapið gegn KR í kvöld. Körfubolti 13. apríl 2014 22:07
Finnur: Magni var eins og löggan á Lækjartorgi á morgnana "Þetta var frábær sigur á hörku góðu liði í hörku góðri stemmingu, hvar getur maður verið annars staðar en í skýjunum," sagði Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR sáttur eftir sigurinn á Stjörnunní í kvöld. Sigurinn kom KR í úrslitaeinvígi Dominos-deildar karla. Körfubolti 13. apríl 2014 22:04
CAI Zaragoza steinlá gegn Joventut Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza náðu ekki að fylgja eftir góðum sigri á Barcelona síðustu helgi gegn Joventut í spænsku deildinni í körfubolta í dag. Körfubolti 13. apríl 2014 12:15
NBA: Hawks og Mavericks í úrslitakeppnina Atlanta Hawks tryggði sæti sitt í úrslitakeppni Austurdeildarinnar í NBA deildinni í gærkvöldi með sigri á Miami Heat. Atlanta tekur því þátt í úrslitakeppninni sjöunda árið í röð og ljóst er að leikmenn New York Knicks geta farið að skipuleggja sumarfrí. Körfubolti 13. apríl 2014 11:00
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - KR 89-90 | KR komið í úrslit KR tryggði sæti sitt í úrslitum Dominos-deild karla með naumum sigri á Stjörnunni í háspennuleik í Ásgarði. Þrátt fyrir að hafa klúðrað tækifærum á vítalínunni til að gera út um leikinn var það sóknarfrákast KR-inga þegar 3,2 sekúndur voru eftir sem gerði út um leikinn. Körfubolti 13. apríl 2014 00:01
LeBron í stuði er Miami saltaði Indiana Meistarar Miami Heat náðu aftur efsta sætinu í Austurdeildinni í nótt er þeir lögðu Indiana Pacers á sannfærandi hátt. Það gerði liðið án Dwyane Wade. Körfubolti 12. apríl 2014 10:56
Sýndu ekki Keflavíkurhjartað sem ég vildi sjá „Andy vildi ekki vera annað tímabil en ég held það sé bara best að hann svari því sjálfur af hverju það er.,“ segir Falur Harðarson, formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur um bandaríska þjálfarann Andy Johnston sem yfirgaf félagið eftir tímabilið. Körfubolti 12. apríl 2014 06:00
Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Njarðvík 89-73 | Grindavík leiðir 2-1 Grindvíkingar sýndu hvað í þeim býr í öruggum sigri á Njarðvík í Röstinni í kvöld. Grindvíkingar leiddu leikinn frá fyrstu mínútu og unnu að lokum verðskuldaðan sigur. Körfubolti 11. apríl 2014 17:34
Duncan frábær og Spurs einum sigri frá því að vinna vestrið | Myndband San Antonio Spurs vann nágrannaslaginn gegn Dallas Mavericks í níunda skiptið í röð í nótt og San Antonio þarf nú aðeins einn sigur til að tryggja sér heimaleikjaréttinn. Körfubolti 11. apríl 2014 09:11
Durant hefur verið stöðugastur í vetur Valið um hver sé besti leikmaður tímabilsins stendur á milli tveggja manna - LeBron James og Kevin Durant. Þeir hafa verið í sérflokki í vetur. Körfubolti 10. apríl 2014 22:45
Pavel: Tapið merki um sálfræðilegan veikleika Pavel Ermolinskij segir að vandræði KR-inga gegn Stjörnunni í kvöld hafi byrjað með slökum varnarleik. Körfubolti 10. apríl 2014 22:07
Umfjöllun og viðtöl: KR - Stjarnan 76-95 | 100. sigur Teits og kústurinn inn í skáp KR tapaði sínum fyrsta deildarleik í rúma fjóra mánuði í kvöld er Stjarnan náði að halda lífi í rimmu liðanna í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar. Körfubolti 10. apríl 2014 12:12
Miami tapaði og Indiana aftur á toppinn | Myndband Miami Heat og Indiana Pacers höfðu sætaskipti á toppi austurdeildar NBA í nótt þegar meistararnir töpuðu en Indiana vann á útivelli. Körfubolti 10. apríl 2014 09:06
Dirk Nowitzki komst upp í 10. sætið á stigalistanum í NBA | Myndband Þjóðverjinn magnaði komst upp í 10. sætið á stigalistanum í NBA en hann fór upp fyrir goðsögnina Oscar Robertson í sigurleik gegn Utan í nótt. Körfubolti 9. apríl 2014 12:00
Plumlee fór illa með LeBron og tryggði Nets 4. sigurinn á Miami | Myndband Miami Heat tapaði öllum fjórum leikjum tímabilsins fyrir Brooklyn Nets og loks var Kevin Durant haldið í skefjum hjá Oklahoma City Thunder en hann skoraði undir 25 stigum. Körfubolti 9. apríl 2014 08:59
Johnston hættur hjá Keflavík Eins og margir bjuggust við þá hefur Andy Johnston verið leystur frá störfum sem þjálfari körfuboltaliða Keflavíkur. Körfubolti 8. apríl 2014 17:44
Öqvist hættur með Drekana | Veit ekki hvað tekur við Fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands er hættur að þjálfa Sundsvall Dragons. Fékk ekki landsliðsþjálfarastarfið í Svíþjóð en er orðaður við tvö félagslið þar í landi. Körfubolti 8. apríl 2014 15:30
Villiköttunum tókst ekki að skáka hinum fimm fræknu Connecticut Huskies varð í nótt háskólameistari í körfubolta í Bandaríkjunum fyrir framan rétt tæplega 80.000 manns á hinum stórfenglega AT&T-velli í Texas. Körfubolti 8. apríl 2014 08:43
Níræðir herramenn sjá um að flagga á leikdögum Kvennalið Snæfells varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn á sunnudagskvöldið. Hápunktur verkefnisins sem lagt var af stað með fyrir fimm árum. Í Stykkishólmi hjálpast allir að en leikmenn þrífa bíla og sjá um ratleiki. Körfubolti 8. apríl 2014 07:00
Jón Arnór sér eftir Peter Öqvist Jón Arnór Stefánsson spilaði vel í mögnuðum sigri CAI Zaragoza gegn stórveldinu Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta um síðustu helgi. Körfubolti 8. apríl 2014 06:30
Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Grindavík 73-95 | Grindvíkingar sýndu mátt sinn í Ljónagryfjunni Grindvíkingar með yfirburði og náðu að jafna rimmuna 1-1 áður en haldið er til Grindavíkur á föstudaginn. Körfubolti 7. apríl 2014 16:23
Jón Arnór: Hlógu þegar ég sagði okkur geta unnið Barca Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í spænska úrvalsdeildarliðinu CAI Zaragoza unnu stórlið Barcelona í gær á heimavelli. Stuðningsmenn Zaragoza ætluðu ekki að trúa eigin augum. Körfubolti 7. apríl 2014 14:15
Hibbert settur á bekkinn eftir níu mínútur: "Ég hef ekkert að segja" Roy Hibbert, miðherji Indiana, algjörlega búinn á því og var settur á bekkinn eftir skelfilegar níu mínútur í tapi gegn Atlanta Hawks í nótt. Körfubolti 7. apríl 2014 12:45