Mögnuð Anna Svava sló í gegn í Besta þættinum Leikkonan Anna Svava Knútsdóttir sló svo sannarlega í gegn í liði Vals þegar liðið mætti FH í Besta þættinum, þar sem reynir á gáfur og knattspyrnuhæfileika keppenda. Fótbolti 21. október 2022 13:31
Xavi skilur ekki af hverju Barca fólkið púar á Pique Þjálfari Barcelona, Xavi Hernandez, er ein mesta goðsögnin í sögu félagsins frá einstökum tímum sínum sem leikmaður liðsins. Hann er gapandi yfir meðferðinni sem önnur goðsögn félagsins er að fá þessa dagana. Fótbolti 21. október 2022 13:00
Braut reglur með því að taka af sér legghlífarnar Saïd Benrahma, leikmaður West Ham United, braut reglur þegar hann spilaði án legghlífa í leiknum gegn Liverpool á Anfield í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 21. október 2022 12:00
Ten Hag staðfestir að Ronaldo vildi ekki koma inn á Cristiano Ronaldo neitaði að koma inn á sem varamaður í leik Manchester United og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni. Erik ten Hag, knattspyrnustjóri United, staðfesti þetta á blaðamannafundi í dag. Enski boltinn 21. október 2022 10:57
Darwin Nunez er sá fljótasti í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Ef einhver leikmaður Liverpool hefur verið gerður að blórböggli fyrir slaka byrjun liðsins þá er það nýi framherjinn Darwin Nunez. Enski boltinn 21. október 2022 10:00
Gerrard fékk far með liðsrútunni eftir brottreksturinn Steven Gerrard ferðaðist aftur til Birmingham með leikmannahópi og starfsliði Aston Villa þrátt fyrir að hafa verið rekinn strax eftir tap fyrir Fulham í gær. Enski boltinn 21. október 2022 09:31
„Hef aldrei haft smekk fyrir því að sjá félagið mitt í fallbaráttu“ Ómar Ingi Guðmundsson fékk óvænt tækifæri til að þjálfa meistaraflokk karla hjá uppeldisfélaginu sínu, HK. Hann hefur þjálfað hjá félaginu í 22 ár og er enn með 6. flokk karla. Íslenski boltinn 21. október 2022 08:00
Ronaldo segir sorrí: „Stundum missirðu þig í hita augnabliksins“ Cristiano Ronaldo hefur beðist afsökunar á að hafa strunsað til búningsherbergja áður en leik Manchester United og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni lauk. Enski boltinn 21. október 2022 07:31
Lewandowski aðeins sá þriðji á öldinni til að skora yfir 600 mörk Pólska markamaskínan Robert Lewandowski varð í gær aðeins þriðji leikmaðurinn á 21. öldinni til að skora yfir 600 mörk á ferlinum. Fótbolti 21. október 2022 07:00
Úlfarnir ætla ekki að ráða þjálfara fyrr en eftir áramót Enska úrvalsdeildarfélagið Wolves ætlar ekki að ráða nýjan þjálfara fyrr en eftir áramót þrátt fyrir að nú séu tæpar þrjár vikur frá því að Bruno Lage hafi verið látinn fara frá félaginu. Bráðabirgðastjórinn Steve Davis mun því stýra liðinu fram á næsta ár. Fótbolti 20. október 2022 23:00
Gerrard rekinn frá Aston Villa Knattspyrnustjórin Steven Gerrard hefur verið rekinn frá Aston Villa eftir ellefu mánuði í starfi. Fótbolti 20. október 2022 21:57
Leicester spyrnti sér frá botninum Leicester vann sinn annan sigur á tímabilinu er liðið tók á móti Leeds í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 2-0, Leicester í vil, og liðiðsitur því ekki lengur á botni deildarinnar. Fótbolti 20. október 2022 21:22
Lewandowski skoraði tvö í öruggum sigri Börsunga Barcelona vann í kvöld öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti Villarreal í spænsku úralsdeildinni í knattspyrnu. Pólska markamaskínan Robert Lewandowski kom heimamönnum á bragðið með tveimur mörkum. Fótbolti 20. október 2022 21:13
Bright tryggði Chelsea sigur gegn PSG Millie Bright skoraði eina mark leiksins er Chelsea vann sterkan 0-1 útisigur gegn Paris Saint Germain í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 20. október 2022 20:53
Fulham upp í efri hlutann eftir öruggan sigur gegn tíu Villa-mönnum Fulham vann öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Gestirnir þurftu að leika seinasta hálftíman manni færri og staða Steven Gerrard sem stjóri liðsins er líklega í hættu. Fótbolti 20. október 2022 20:22
Xhaka skaut Arsenal upp úr A-riðli Granit Xhaka skoraði eina mark leiksins er Arsenal vann sterkan 1-0 sigur gegn hollenska liðinu PSV Eindhoven í toppslag A-riðilsins í Evrópudeildinni í fótbolta í kvöld. Sigurinn tryggði Arsenal sæti í útsláttarkeppninni og fór langleiðina með að tryggja liðinu sigur í riðlinum. Fótbolti 20. október 2022 18:54
Sveindís lagði upp í öruggum Meistaradeildarsigri Sveindís Jane Jónsdóttir lagði upp annað mark Wolfsburg er liðið vann öruggan 4-0 sigur gegn austurríska liðinu St. Polen í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 20. október 2022 18:40
Ronaldo settur utan hóps eftir að hafa strunsað inn í klefa Portúgalska knattspyrnustjarnan Cristiano Ronaldo verður ekki í leikmannahóp Manchester United er liðið heimsækir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni næstkomandi laugardag. Fótbolti 20. október 2022 17:50
Fengu „viðbjóðsleg“ skilaboð eftir átökin og kjaftshöggið Hawa Cissoko og og Sarah Mayling hafa orðið fyrir „viðbjóðslegu“ netníði eftir átök þeirra í leik West Ham og Aston Villa, að sögn Cörlu Ward, þjálfara Villa. Enski boltinn 20. október 2022 17:01
Jasmín og Katrín rifta samningi við Stjörnuna Markadrottningin og nýja landsliðskonan Jasmín Erla Ingadóttir hefur rift samningi sínum við Stjörnuna og stefnir á atvinnumennsku. Katrín Ásbjörnsdóttir, sem varð þriðja markahæst í Bestu deildinni, hefur einnig nýtt ákvæði til að rifta samningi við félagið. Íslenski boltinn 20. október 2022 15:46
FIFA segir að stöðvarnar verði að bjóða hærra í HM kvenna Alþjóða knattspyrnusambandið hefur hafnað mörgum tilboðum í útsendingarétt á heimsmeistarakeppni kvenna í knattspyrnu sem fer fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi næsta sumar. Fótbolti 20. október 2022 15:30
Síðasti heimaleikur Leiknis ekki spilaður í Breiðholti Leiknismenn hafa fært síðasta heimaleikinn sinn í Bestu deild karla í sumar en þetta verður líklega síðasti heimaleikur liðsins í efstu deild í einhvern tíma. Íslenski boltinn 20. október 2022 14:30
Samið um knatthús Hauka en Samfylkingin hringir viðvaranabjöllum Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti einróma á fundi sínum í morgun að ganga til samninga við lægstbjóðandi vegna byggingar knatthús fyrir Hauka. Samfylkingin lagði fram tillögu um að fresta samningagerð um tvo mánuði og skoða málið betur. Innlent 20. október 2022 14:18
Erik ten Hag segir að það verði tekið á hegðun Ronaldo í dag Cristiano Ronaldo stal fyrirsögnunum í mörgum blöðum í morgun þrátt fyrir að spila ekki eina einustu mínútu í sigri Manchester United á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 20. október 2022 10:31
Vildi skipuleggja flug í frí en fékk bara miða í aðra áttina: „Þetta var algjört áfall“ Danski varnarmaðurinn Jesper Juelsgård segir að sér hafi verið illa brugðið þegar hann fékk að vita það fyrir rúmri viku að hann yrði ekki áfram leikmaður knattspyrnuliðs Vals. Börn hans þrjú hafi verið komin inn í íslenska skólakerfið og hann reiknað með að búa áfram á Íslandi. Íslenski boltinn 20. október 2022 10:01
Markahæstur þeirra sem eftir eru en má semja við hvaða félag sem er Guðmundur Magnússon, mögulega verðandi markakóngur Bestu deildarinnar í fótbolta, er með riftunarákvæði í samningi sínum við Fram og getur því samið við hvaða félag sem er nú í haust. Íslenski boltinn 20. október 2022 09:46
Sagðist vilja taka Ronaldo hálstaki fyrir að strunsa inn í klefa Sérfræðingar Amazon Prime voru lítt hrifnir af uppátæki Cristianos Ronaldo að fara til búningsherbergja áður en leikur Manchester United og Tottenham var búinn. Einn sérfræðinganna sagðist vilja taka Ronaldo hálstaki. Enski boltinn 20. október 2022 08:01
Fyrrverandi leikmaður Liverpool í átta ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Layton Maxwell, fyrrverandi leikmaður Liverpool og fleiri liða, hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir eiturlyfjasmygl. Enski boltinn 20. október 2022 07:30
Grátbiðja Drake um að forða Arsenal frá bölvun Kanadíski tónlistarmaðurinn Drake er vinsælasti tónlistarmaðurinn á streymisveitunni Spotify frá upphafi en þykir ekki eins vinsæll í heimi íþróttanna eftir fjölda óheppilegra atvika undanfarin ár. Fótbolti 20. október 2022 07:00
Knattspyrnumaður í tíu ára bann frá fótbolta fyrir veðmálasvindl Kynan Isaac, leikmaður Stratford Town, hefur verið úrskurðaður í 10 ára bann af enska knattspyrnusambandinu vegna veðmála hans á eigin knattspyrnuleiki. Fótbolti 19. október 2022 23:30