Segir ekki miklar líkur á því að Man City fjárfesti í framherja Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, sagði mögulegt að félagið myndi ekki kaupa framherja í sumar til að fylla í skarð Sergio Agüero en samningur hans rennur út í sumar. Enski boltinn 3. apríl 2021 10:45
Vítaspyrnudómar og rauð spjöld kostuðu hann fimmtán mánaða fangelsi Serbneski dómarinn Srbjan Odradovic hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi og í tíu ár bann frá fótbolta eftir leik Spartak Subotica og Radnicki Nis árið 2018 Fótbolti 3. apríl 2021 09:01
Varnarmaður Tórínó orðaður við Liverpool: „Fyndið“ Brasilíski varnarmaðurinn Bremer segir að það sé fyndið að heyra sögusagnirnar að hann sé á leiðinni til Liverpool því hann viti ekkert um þessar sögusagnir. Enski boltinn 2. apríl 2021 23:00
Aguero sagður vilja vera áfram á Englandi Tilkynnt var á dögunum að argentíski framherjinn Sergio Aguero muni yfirgefa Manchester City eftir tíu ára veru hjá félaginu. Enski boltinn 2. apríl 2021 22:00
Fékk rautt spjald eftir sautján sekúndur Kaio Wilker skráði sig í sögubækurnar á dögunum er hann fékk fljótasta rauða spjald í sögu brasilíska fótboltans. Það kom í leik Botafogo og Treze. Fótbolti 2. apríl 2021 21:00
Baðst afsökunar en sagði að þetta hafi ekki verið partí Paulo Dybala, leikmaður Juventus, og samherjar hans Arthur og Weston McKennie komu sér í vandræði á dögunum er þeir brutu kórónuveirureglur. Fótbolti 2. apríl 2021 20:00
Tuchel bannaði Werner að æfa aukalega eftir klúðrið Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, segist hafa rekið Timo Werner heim af æfingasvæði Chelsea í gær er þýski leikmaðurinn ætlaði að æfa aukalega eftir æfingu Lundúnarliðsins. Enski boltinn 2. apríl 2021 19:00
Chelsea bætist í baráttuna um Gini Wijnaldum Chelsea hefur bæst í baráttuna um miðjumann Liverpool Georginio Wijnaldum en þetta herma heimildir spænskra fjölmiðla. Enski boltinn 2. apríl 2021 17:30
Þreytandi gagnrýni franskra fjölmiðla gæti fælt Mbappe frá PSG Kylian Mbappe, stórstjarna PSG og franska landsliðsins, segir að hann gæti mögulega yfirgefið Parísarliðið vegna þreytandi gagnrýni franskra fjölmiðla. Fótbolti 2. apríl 2021 16:43
Mikilvægur sigur Daníels: Allt það helsta frá Englandi Daníel Leó Grétarsson og félagar í Blackpool unnu góðan sigur á Swindon Town í ensku C-deildinni. Blackpool er í harðri baráttu um sæti í umspilinu sem gefur sæti í ensku B-deildinni á næstu leiktíð. Enski boltinn 2. apríl 2021 16:01
Fyrrum þjálfari Dana: Hjulmand á að fá heiðurinn Åge Hareide, fyrrum þjálfari danska landsliðsins í fótbolta, segir að Kasper Hjulmand, núverandi þjálfari liðsins, eigi að fá allan heiðurinn á gengi liðsins um þessar mundir. Fótbolti 2. apríl 2021 15:00
„Hlýtur að vera óheppnasti þjálfarinn okkar frá upphafi“ Hjörvar Hafliðason, íþróttafréttamaður, veltir upp fyrir sér á Twitter síðu sinni hvort að Arnar Þór Viðarsson sé sá landsliðsþjálfari sem hafi verið hvað óheppnastur hvað varðar landsleiki sína. Fótbolti 2. apríl 2021 14:00
„Þetta er búið, Jogi“ Það var ekki bjart yfir þýskum fjölmiðlum er þeir fjölluðu um þýska landsliðið í knattspyrnu sem tapaði fyrir Norður Makedóníu, 2-1, á heimavelli á miðvikudag. Fótbolti 2. apríl 2021 13:00
Markvörður Dana um Svein Aron: „Ekki svo erfitt að lesa hann“ Sveinn Aron Guðjohnsen og markvörður danska U21 árs landsliðsins Oliver Christensen mættust á dögunum á EM U21 í Ungverjalandi en einnig eru þeir samherjar hjá danska úrvalsdeildarfélaginu OB. Fótbolti 2. apríl 2021 12:31
Þjálfari Ara og Valdimars í funheitu sæti eftir rasísk skilaboð Henrik Pedersen, þjálfari Strømsgodset í norsku úrvalsdeildinni, er í kastljósi fjölmiðla þennan föstudaginn en hann er sakaður um kynþáttafordóma innan veggja norska liðsins. Fótbolti 2. apríl 2021 12:00
Tapið gegn Norður-Makedóníu það versta í sögu Þýskalands Tölfræðisíðan Gracenote hefur tekið saman það helsta sem gerðist í fyrstu þremur umferðum undankeppni HM 2022 í knattspyrnu. Sigur Norður-Makedóníu á Þýskalandi ber þar af en um er að ræða versta tap í sögu Þýskalands. Fótbolti 2. apríl 2021 08:01
Allt annað en sáttur við páskadvöl á sóttvarnahótelinu Þjálfari í 21 árs landsliðsteymi Íslands er ekki par ánægður með að þurfa að dúsa í sóttvarnarhúsi yfir páskana. Leiguvél Icelandair með karlaliðin, A-liðið og 21 árs liðið, lenti á Keflavíkurflugvelli í kvöld. Hlutskipti leikmanna, þjálfara, starfsfólks og fjölmiðlamanna voru æði ólík við komuna eftir því hvoru teyminu fólk tilheyrði. Innlent 2. apríl 2021 00:59
Rebecca Welch komin í sögubækur enskrar knattspyrnu Rebecca Welch mun dæma leik Harrogate Town og Port Vale í ensku D-deildinni á mánudaginn kemur. Þar með er Welch fyrsta konan til að gegna starfi aðaldómara í deildarkeppni karla á Englandi. Fótbolti 1. apríl 2021 23:00
Valin í kanadíska landsliðið eftir að hafa ekki fengið að spila með Íslandi Cloé Lacasse, fyrrum leikmaður ÍBV, hefur verið valin í kanadíska landsliðið fyrir leiki gegn Englandi og Wales. Eru leikirnir undirbúningur fyrir Ólympíuleikana sem fram fara í Tókýó, Japan, í sumar. Fótbolti 1. apríl 2021 21:46
Kári Árnason og Birkir Bjarnason í góðum félagsskap Þeir Kári Árnason og Birkir Bjarnason eru meðal þeirra 100 leikmanna sem hafa átt hvað besta landsleiki undanfarið. Það er fyrir landslið innan Evrópu. Fótbolti 1. apríl 2021 21:00
Blind þarf að fara í aðgerð en vonast til að ná EM Daley Blind, leikmaður hollenska landsliðsins og Ajax, meiddist illa í 7-0 sigri Hollands á Gíbraltar í undankeppni HM 2022 á dögunum. Hann er bjartsýnn og stefnir á að ná EM í sumar en það verður að teljast ólíklegt. Fótbolti 1. apríl 2021 20:30
Þjálfari Arsenal segir starfi sínu lausu Joe Montemurro, þjálfari kvennaliðs Arsenal, hefur sagt starfi sínu lausu. Hann hefur þjálfað liðin undanfarin þrjú ár en hefur ákveðið að róa á ný mið þegar leiktíðinni lýkur. Fótbolti 1. apríl 2021 19:31
Ramos meiddist með Spáni og missir af báðum leikjunum gegn Liverpool Real Madrid varð fyrir áfalli í dag þegar í ljós kom að Sergio Ramos, fyrirliði og aðalmiðvörður liðsins, verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla á kálfa. Fótbolti 1. apríl 2021 18:02
Fylkir fær leikmann á láni frá Val Hin unga og efnilega Emma Steinsen Jónsdóttir mun leika með Fylki í Pepsi Max-deild kvenna í sumar. Hún er annar leikmaðurinn sem Fylkir sækir á skömmum tíma sem lék með Gróttu á síðustu leiktíð. Íslenski boltinn 1. apríl 2021 15:30
Fyrrum varnarmaður Liverpool ráðinn aðalþjálfari HB Köge Danski miðvörðurinn Daniel Agger var nokkuð óvænt tilkynntur sem nýr þjálfari danska b-deildarliðsins HB Köge í dag. Agger lagði skóna á hilluna árið 2016 eftir að hafa glímt við meiðsli til fjölda ára. Þetta er hans fyrsta starf í þjálfun. Fótbolti 1. apríl 2021 12:32
Raiola og Alf-Inge Håland í Barcelona að ræða framtíð Håland yngri Norski framherjinn Erling Braut Håland gæti verið á leið til Barcelona ef marka má nýjustu fréttir. Umboðsmaður hans, Mino Raiola, sem og Alf Inge Håland, faðir hans, eru staddir í Barcelona er þetta er skrifað. Fótbolti 1. apríl 2021 12:00
Festist í lyftu og missti af liðsrútunni Þegar liðsrúta Spánverja kom á völlinn í Sevilla í gær fyrir leikinn gegn Kósóvó í undankeppni HM í Katar 2022 var enginn Luis Enrique með í rútunni. Fótbolti 1. apríl 2021 11:32
„Fullkomin lausn“ fyrir Willum sem var samt svekktur Willum Þór Willumsson varð að gera sér að góðu að standa utan hóps í gærkvöld, eftir að hafa ferðast frá EM í Ungverjalandi til móts við A-landsliðið vegna leiksins í Liechtenstein í undankeppni HM í fótbolta. Fótbolti 1. apríl 2021 09:00
Ekki tapað í undankeppni HM síðan 2001 Það ráku margir upp stór augu er þeir sáu að Norður Makedónía gerði sér lítið fyrir og skellti Þýskalandi í kvöld, 2-1, er liðin mættust í Duisburg. Fótbolti 31. mars 2021 23:00
Segir mikla pressu á Sveini vegna nafnsins en að hann höndli hana vel „Það er pressa á drengnum en það er ótrúlegt hvað hann höndlar það vel. Hann er bara svo vel gerður. Það hlýtur að koma úr móðurætt,“ sagði Arnar Þór Viðarsson léttur í bragði þegar hann ræddi um Svein Aron Guðjohnsen eftir sigurinn á Liechtenstein í kvöld. Fótbolti 31. mars 2021 22:39