Gangast við því að traust samfélagsins til KSÍ sé „algjörlega horfið“ Forsvarsmenn KSÍ munu funda með öllum samstarfsaðilum sínum á næstu dögum, hlusta á sjónarmið þeirra og upplýsa um þær aðgerðir sem sambandið hyggst grípa til. Þetta kemur fram í tilkynningu sem KSÍ sendi á fjölmiðla seint í gærkvöldi. Innlent 31. ágúst 2021 06:20
Segir tilkynningu um hópnauðgun hafa komið inn á borð KSÍ KSÍ hefur til meðferðar tilkynningu um hópnauðgun. Þetta kom fram í máli Klöru Bjartmarz, framkvæmdastjóra KSÍ, í tíufréttum RÚV í kvöld þegar hún var spurð hvort mál Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur væri eina kynferðisafbrotamálið sem hún vissi af á borði sambandsins. Sport 30. ágúst 2021 23:36
Sárt að yfirgefa Seltjarnarnes en spennandi tímar fram undan Pétur Theódór Árnason, framherji Gróttu og markahæsti leikmaður Lengjudeildar karla í fótbolta, er spenntur fyrir fyrirhuguðum vistaskiptum til Breiðabliks. Erfitt verði að yfirgefa heimahagana á Seltjarnarnesi en gott verði að endurnýja kynni við gamlan þjálfara hans. Íslenski boltinn 30. ágúst 2021 23:31
Erlendir miðlar fjalla um mál KSÍ: „Skandall skekur Ísland“ Fjölmargir erlendir fjölmiðlar hafa greint frá afsögn Guðna Bergssonar, fráfarandi formanns Knattspyrnusambands Íslands, sem og ofbeldisbroti landsliðsmannsins Kolbeins Sigþórssonar bæði í dag og í kvöld. Fótbolti 30. ágúst 2021 23:00
„Get ekki boðið mér og minni fjölskyldu uppá þann viðbjóð sem hefur verið sagt um okkur“ Ásgeir Ásgeirsson, einn stjórnarmanna KSÍ sem sagði af sér í kvöld, birti stöðuuppfærslu á Facebook þar sem hann kvaðst afar ósáttur við þá gagnrýni sem stjórnarfólk sambandsins hefur sætt síðustu daga. Fótbolti 30. ágúst 2021 22:41
Upplifir drauminn: „Fékk treyjuna um hver jól“ Austurríkismaðurinn Marcel Sabitzer gekk í raðir Þýskalandsmeistara Bayern München frá RB Leipzig í dag. Hann hefur dreymt um að spila fyrir félagið frá æsku. Fótbolti 30. ágúst 2021 22:30
Stjórn KSÍ segir af sér Stjórn Knattspyrnusambands Íslands, varafulltrúar hennar og landshlutafulltrúar hafa ákveðið að segja af sér. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu. Boðað verður til aukaþings hjá sambandinu með fjögurra vikna fyrirvara. Sport 30. ágúst 2021 21:58
„Ekki inni í myndinni að labba frá þessu verkefni með hálfum hug“ Margrét Magnúsdóttir, einn þjálfara Fylkis, segist svekkt að liðinu hafi ekki tekist að ná í þrjú stig er það gerði 1-1 jafntefli á heimavelli við Þrótt Reykjavík í kvöld. Hún segist þó nokkuð sátt með spilamennskuna. Íslenski boltinn 30. ágúst 2021 21:55
Umfjöllun: Fylkir - Þróttur R. 1-1 | Eitt stig gerir lítið fyrir Fylkiskonur Fylkir og Þróttur skildu jöfn, 1-1, í lokaleik 16. umferðar Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta í kvöld. Fylkiskonur eru áfram í fallsæti og úrslit kvöldsins voru liðinu ekki hliðholl. Íslenski boltinn 30. ágúst 2021 21:45
Tíu HK-konur sendu ÍA niður í fallsæti HK vann gríðarmikilvægan 2-1 útisigur á ÍA á Akranesi í lokaleik 16. umferðar Lengjudeildar kvenna í fótbolta í kvöld. Bæði lið berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Íslenski boltinn 30. ágúst 2021 20:45
Umfjöllun: ÍBV - Stjarnan 3-1 | ÍBV kemur sér úr fallbaráttu, í bili Það var hart barist á Hásteinsvelli í dag þegar ÍBV tók á móti Stjörnunni í 16. umferð Pepsi Max deildar kvenna. Fyrir leikinn var falldraugur yfir ÍBV en þeim tókst að bjarga sér með 3-1 sigri. Íslenski boltinn 30. ágúst 2021 20:41
Umfjöllun: Tindastóll - Keflavík 0-1| Aerial Chavarin hetja Keflavíkur Keflavíkurstúlkur hafa verið að spila vel í undanförnum leikjum. Þær hafa nú safnað sjö stigum í síðustu þremur leikjum.Aerial Chavarin gerði eina mark leiksins og reyndist hetja Keflavíkur þegar liðið vann 0-1 sigur á botnliði Tindastóls sem var fyrir leik aðeins tveimur stigum frá Keflavík. Íslenski boltinn 30. ágúst 2021 20:33
Gautaborg fordæmir hegðun Kolbeins og er með málið til skoðunar IFK Gautaborg, lið Kolbeins Sigþórssonar, sendi frá sér tilkynningu í kvöld vegna kynferðisbrots hans árið 2017. Hegðun hans er fordæmd og málið er til skoðunar hjá félaginu. Fótbolti 30. ágúst 2021 20:16
Berglind spilaði allan leikinn í dramatískum sigri Berglind Rós Ágústsdóttir spilaði allan leikinn í hjarta varnar Örebro sem vann 2-1 sigur á Linköping í lokaleik 14. umferðar sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Fótbolti 30. ágúst 2021 19:45
Stjórnin fundar áfram og íhugar hvort hún segi af sér Fundahöld standa enn yfir hjá stjórn KSÍ þar sem viðbrögð sambandsins við tilkynningum um ofbeldisbrot eru meðal annars til umræðu. Stjórnarmenn hafa varist frétta af stöðu mála í dag en háværar kröfur eru uppi um að stjórnin stígi til hliðar. Sport 30. ágúst 2021 19:23
Fylkir búinn að hafa samband við Rúnar Pál Fylkir hefur sett sig í samband við Rúnar Pál Sigmundsson í þeirri von að hann hafi áhuga á að taka við karlaliði félagsins í fótbolta. Atla Sveini Þórarinssyni og Ólafi Inga Stígssyni var sagt upp störfum í dag. Íslenski boltinn 30. ágúst 2021 19:22
Atli Sveinn og Ólafur látnir fara í Árbænum Fylkir hefur sagt upp þeim Atla Sveini Þórarinssyni og Ólafi Inga Stígssyni úr stöðu þjálfara meistaraflokks karla hjá félaginu. Fylkismenn féllu niður fallsæti í Pepsi Max-deildinni í gær. Íslenski boltinn 30. ágúst 2021 19:00
Ekki viss um að hann hefði sótt Ronaldo ef það hefði staðið til boða Pep Guardiola, þjálfari Englandsmeistara Manchester City, er ekki viss um að hann hefði sótt Cristiano Ronaldo hefði portúgalski framherjinn ekki samið við sitt fyrrum félag Manchester United. Enski boltinn 30. ágúst 2021 17:45
Sá besti framlengir til 2027 Portúgalski varnarmaðurinn Rúben Dias hefur framlengt samning sinn við Englandsmeistara Manchester City til ársins 2027. Aðeins er rétt ár síðan Dias gekk í raðir City. Enski boltinn 30. ágúst 2021 16:30
Stjórn KSÍ fundar í annað sinn í dag Stjórn Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, fundaði í hádeginu og mun funda aftur á Teams klukkan fimm. Þetta staðfestir Gísli Gíslason varaformaður KSÍ í samtali við fréttastofu. Hann vildi ekkert gefa upp um efni fundarins eða hvort yfirlýsingar væri að vænta að honum loknum. Innlent 30. ágúst 2021 16:21
Fullyrða að Ronaldo sé launahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Það er meira an aðeins nostalgía eða sú þrá að koma Manchester United aftur í hóp bestu liða Evrópu sem dró Cristiano Ronaldo „heim“ til Manchester, heim á Old Trafford. Portúgalinn fær einnig ágætlega borgað fyrir að spila með félaginu. Enski boltinn 30. ágúst 2021 16:02
Framkvæmdastjórn ÍSÍ ræðir mál KSÍ á fundi Framkvæmdastjórn Íþrótta- og ólympíusambands Íslands fundar nú og ræðir meðal annars mál KSÍ. Innlent 30. ágúst 2021 15:48
Krefjast þess að KSÍ boði tafarlaust til aukaþings: „Orðspor íslenskrar knattspyrnu er stórlega skaðað“ Knattspyrnudeildir níu félaga hafa krafist þess að KSÍ boði tafarlaust til aukaþings. Íslenski boltinn 30. ágúst 2021 15:26
Var tilbúinn að fórna næsta leik til að reyna bjarga þessum Breiðablik, Víkingur og Valur eru á toppi Pepsi Max deildar karla þegar þrjár umferðir eru eftir. Mótið hefur ekki verið jafn spennandi í háa herrans tíð. Íslenski boltinn 30. ágúst 2021 15:00
Spezia kaupir Mikael en lánar hann aftur til SPAL Ítalska úrvalsdeildarfélagið Spezia hefur fest kaup á íslenska landsliðsmanninum Mikael Agli Ellertssyni frá SPAL. Hann leikur þó sem lánsmaður með SPAL, sem er í ítölsku B-deildinni, út tímabilið. Fótbolti 30. ágúst 2021 14:13
Lof og last: Sóknarleikur Blika, markvörslur Ingvars, Kiddi Jóns, Marley Blair og reynsluboltar Fylkis Enn einni umferðinni Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Það hefur mikið gengið á undanfarna tvö daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last. Taka skal fram að þetta er eingöngu skoðun blaðamanns og er aðallega gert til skemmtunar. Íslenski boltinn 30. ágúst 2021 14:00
Rúmenar fjalla um „risahneyksli“ á Íslandi Rúmenskir fjölmiðlar velta sér í dag upp úr fréttum af næstu andstæðingum Rúmeníu í undankeppni HM karla í fótbolta; íslenska landsliðinu. Í fyrirsögnum er talað um „risahneyksli á Íslandi“. Fótbolti 30. ágúst 2021 13:39
Stífar aukaæfingar þar sem Gummi Ben sýndi snilli sína skiluðu Höskuldi einu af mörkum sumarsins Breiðablik gjörsamlega kaffærði Fylki í leik liðanna í Pepsi Max deild karla í gær. Lokatölur 7-0 þar sem Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Blika, skoraði einkar glæsilegt mark. Það ásamt öllum sóknarleik liðsins var til umræðu í Stúkunni að leik loknum. Íslenski boltinn 30. ágúst 2021 13:01
ÍTF krefst þess að framkvæmdastjóri og stjórn KSÍ víki Stjórn Íslensks toppfótbolta, ÍTF, krefst þess að Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, og stjórn sambandsins stígi frá borði. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum. Íslenski boltinn 30. ágúst 2021 12:46
Pétur Theodór til liðs við Breiðablik Breiðablik, topplið Pepsi Max deildar karla, hefur tilkynnt að Pétur Theódór Árnason, framherji Gróttu í Lengjudeildinni, muni ganga til liðs við félagið að tímabilinu loknu. Íslenski boltinn 30. ágúst 2021 12:30