Evrópu­sam­bandið

Evrópu­sam­bandið

Fréttamynd

Car­n­ey verður við­staddur stefnu­ræðu ESB-for­seta

Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, hefur þekkst boð um að vera viðstaddur stefnuræðu Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í næsta mánuði. Sambandið og Kanada hafa færst nær hvert öðru í skugga ágreinings við Bandaríkjastjórn.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fyrstu tölur sýna lík­lega fleiri nei en já

Líklegt er að fyrstu tölur sem birtar verða úr þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn muni sýna fleiri nei. Tölurnar munu líklega fyrst koma af landsbyggðinni þar sem fleiri ætla að segja nei, samkvæmt könnunum. Reykvíkingar eru líklegastir til að segja já.

Innlent
Fréttamynd

ESB-kosning á radar er­lendra fjár­festa í ís­lenskum verð­bréfum

Erlendir sjóðstjórar sem hafa fjárfest í íslenskum verðbréfum undanfarin ár eru farnir að velta fyrir sér mögulegum áhrifum þess á markaði og efnahag ef Íslendingar samþykkja að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Franskur stórbanki nefnir að með aðild skapist hætta á að auðug fiskimið Íslands opnist gagnvart erlendum útgerðum, á meðan einn stærsti erlendi fjárfestirinn á skuldabréfamarkaði telur að verði já-ið ofan á þá gæti það ýtt undir áhuga á íslenskum ríkisbréfum.

Innherji
Fréttamynd

Verð­bólgan er stærsti ein­staki upp­runi hagnaðar á Ís­landi

Ég hef verið hugsi síðustu mánuði yfir þeim lýsingarorðum sem maður heyrir um stöðu efnahags Íslands. Annaðhvort heyrir maður að Ísland sé ríkasta og mesta velmegunarland í Evrópu, með einstaka framtíð eða að staðan sé erfið virkilega erfið og það þurfi átak allra til að leysa stöðuna. Hvernig getur það verið að Íslendingar viti ekki hvort það sé frábær eða erfið staða í efnahagi landsins?

Skoðun
Fréttamynd

Gætum þurft að fram­vísa smáríkjakortinu

„Ég tel að það sé útilokað að fá varanlega undanþágu frá stefnunni í heild sinni. Hins vegar er spurning um hvort hægt sé að hanna hlutina að innan þannig að við erum de facto með full yfirráð,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingur og fyrrverandi ritstjóri Evrópuvefsins.

Innlent
Fréttamynd

„Ég get ekki svarað því“

Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, telur ómögulegt að segja til um hvort Íslendingar geti staðið utan sjávarútvegsstefnu sambandsins. Það muni mögulegar samningaviðræður snúast um.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er auð­vitað snilldarmarkaðsbrella“

Nei-arar kölluðu „Já til að sjá“ markaðsbrellu í það minnsta þrisvar sinnum á nokkrum mínútum þegar fulltrúar já- og nei-hliðarinnar mættust í Pallborði þar sem ungt fólk var í brennidepli. Já-ari sagði sérfræðinga tala í kross og það væri eflaust mörgu ungu fólki sem fyndist það vera bestu útkomuna úr atkvæðagreiðslunni í lok ágúst að fá að sjá með eigin augum hvað fælist í samningi.

Innlent
Fréttamynd

Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli

Ráðamenn í Rúmeníu sendu í morgun F-16 orrustuþotu til að granda drónabát sem sást í nokkur hundruð metra fjarlægð frá mikilvægum borpalli á Svartahafi. Rúmenar kenna Rússum um atvikið, sem Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir lið í blönduðum hernaði.

Erlent
Fréttamynd

Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst?

Ungt fólk verður í brennideplinum í Pallborðinu á Vísi í dag. Húsnæðismál, atvinnuleysi, efnahagsmál og fleiri mál verða rædd með það að markmiði að ungt fólk sé einhverju nær um hvað það á að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi. 

Innlent
Fréttamynd

Um peninga­legt full­veldi og fram­sal þess

Ljóst er að með inngöngu Íslands í ESB og upptöku evru verður viðbótar framsal okkar svo umfangsmikið að telja verði að Ísland hafi þar með afsalað sér peningalegu fullveldi sínu. Það verður dýru verði keypt og um það verður ekki samið.

Umræðan
Fréttamynd

Fleiri þing­menn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara

Í það minnsta 29 þingmenn ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið þann 29. ágúst. Sumir þingmenn vilja ekki gefa upp afstöðu sína á meðan aðrir svara ekki fyrirspurn. Fleiri segja nei en já af þeim 51 sem svara. 

Innlent
Fréttamynd

„Jón Sigurðs­son nefndi aldrei sjálf­stæði“

„Þessi vegferð hefst eiginlega ekki raunverulega fyrr en í upphafi tuttugustu aldar, þegar virkilega koma fram stjórnmálahreyfingar og stjórnmálahugmyndir um að það væri best fyrir Íslendinga að slíta samstarfinu við Dani,“ segir Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur sem er gestur dagsins í hlaðvarpinu Vísir að viðræðum.

Innlent
Fréttamynd

Hin hliðin ljúgi að lands­mönnum

Forsvarsfólk bæði já- og nei- hreyfinga saka hina hliðina um að hafa farið með rangt mál frá því að kosningabarátta hófst. Þau mættust í Pallborði Vísis í dag. Fréttamaður sem stýrði Pallborðinu hafði á orði að það væri um stund sem forsvarsmenn væru að ræða hvor sinn hlutinn, svo ólíkar væru áherslurnar.

Innlent
Fréttamynd

„Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við

Málskotsréttur forseta hverfur ekki þó að Ísland myndi ganga inn í ESB en verður þó takmarkaður, að sögn Birgis Ármannssonar fyrrverandi þingforseta. „Salami-aðferð“ Evrópusambandsins í viðræðum gæti að hans mati gert Íslendingum erfiðara fyrir ef þeir vilja hætta við hugsanlega aðildarumsókn. „Flest mannanna verk eru nú þannig að það er hægt að snúa þeim við,“ segir hann samt.

Innlent
Fréttamynd

Telja Ís­land geta liðkað fyrir inn­göngu Svart­fjalla­lands

Ákveði Íslendingar að hefja viðræður á ný við Evrópusambandið gæti það greitt götu Svartfjallalands inn í Evrópusambandið, að því er fram kemur í frétt Reuters. Þar er haft eftir háttsettum erindreka innan ESB að viðræður við auðugt ríki á borð við Ísland geti dregið úr efasemdum um frekari stækkun sambandsins.

Erlent
Fréttamynd

Krist­rún skýtur fimm­tíu milljarðana niður

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir fundarferð sína um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðis ganga vel og skapa tækifæri fyrir kjósendur að hittast, ræða málin og heyra skoðanir hver annars. Hún tekur fyrir þær háu tölur sem nefndar hafa verið um kostnað Íslands við aðild og segir upphæðina í raun mun lægri. 

Innlent
Fréttamynd

Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og full­veldi

Það var þrá og von okkar Íslendinga að búa „langt frá heimsins vígaslóð“. Seinni heimsstyrjöldin færði okkur heim sanninn um að sú vígaslóð var ekki umflúin. Í kjölfarið höfum við gengið til samstarfs við aðrar þjóðir með aðild að Sameinuðu þjóðunum og Atlantshafsbandalaginu til að leggja okkar af mörkum til friðar og um leið til að verja frelsi okkar og fullveldi. Síðan höfum við eflt efnahagssamstarf með aðild að EFTA og EES.

Skoðun
Fréttamynd

Helstu samsæriskenningarnar um Evrópu­sam­bandið

Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst til að ákveða framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Í aðdraganda stórra sögulegra ákvarðana kraumar gjarnan óvissa og kvíði í samfélaginu og upplýsingaóreiða fer á flug.

Lífið