Framtíð Alonso í lausu lofti Xabi Alonso, miðjumaður Liverpool, segist þurfa tíma til að íhuga framtíð sína. Hann viðurkennir að hafa ekki hugmynd um hvar hann muni spila á næsta leiktímabili. Enski boltinn 1. júlí 2008 22:00
Sahar lánaður til Portsmouth Ísraelski sóknarmaðurinn Ben Sahar hefur verið lánaður frá Chelsea til Portsmouth út þetta ár. Þessi átján ára leikmaður hefur leikið þrjá leiki með aðalliði Chelsea. Enski boltinn 1. júlí 2008 20:45
De Ridder til Wigan Hollenski vængmaðurinn Daniel de Ridder er kominn til Wigan Athletic en hann var leystur undan samningi sínum við Birmingham í gær. Þetta er í annað sinn sem Steve Bruce, stjóri Wigan, fær De Ridder. Enski boltinn 1. júlí 2008 19:45
Robinho færist nær Chelsea Chelsea hefur færst skrefi nær því að fá brasilíska landsliðsmanninn Robinho. Umboðsmaður leikmannsins hefur átt í viðræðum við Frank Arnesen, yfirmann knattspyrnumála hjá Chelsea. Enski boltinn 1. júlí 2008 18:30
Liverpool hefur áhuga á Keane Liverpool hefur áhuga á því að fá sóknarmanninn Robbie Keane frá Tottenham. Rafael Benítez, stjóri Liverpool, er til í að láta Peter Crouch í skiptum fyrir Keane. Enski boltinn 1. júlí 2008 17:15
Barton fékk skilorðsbundinn dóm Joey Barton var í dag dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á Ousmani Dabo, fyrrum liðsfélaga sinn hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester City. Enski boltinn 1. júlí 2008 16:18
Myndbandsupptaka af barsmíðum Joey Barton Yfirvöld í Bretlandi hafa birt myndbandsupptöku af atvikinu sem leiddi til þess að Joey Barton var dæmdur í sex mánaða fangelsi. Enski boltinn 1. júlí 2008 13:27
Ekki viss um að Lampard komi í sumar Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Inter á Ítalíu, er ekki viss um að Frank Lampard komi til félagsins í sumar frá Chelsea. Hann er hins vegar handviss um að hann komi á næsta ári. Enski boltinn 1. júlí 2008 10:11
Deco kominn til Chelsea Chelsea hefur komist að samkomulagi við Barcelona um kaupverð á miðjumanninum Deco. Luiz Felipe Scolari, nýr knattspyrnustjóri Chelsea, þjálfaði Deco hjá portúgalska landsliðinu Enski boltinn 30. júní 2008 18:53
Lampard er á Ítalíu Frank Lampard, miðjumaður Chelsea, hefur verið sterklega orðaður við Inter í sumar og einhverjir fjölmiðlar hafa fullyrt að hann sé á leið í ítalska liðið. Lampard er nú staddur á Ítalíu. Enski boltinn 30. júní 2008 18:15
Barton játar á sig sök Joey Barton hefur játað á sig sök í ákæru á hendur honum vegna árásar á fyrrum liðsfélaga. Barton lamdi Ousmane Dabo á æfingasvæðinu á síðasta ári. Enski boltinn 30. júní 2008 17:03
Brynjar Björn bestur og Þórður verstur Íslenskir knattspyrnumenn eru fyrirferðamiklir á lista stuðningsmannasíðu fyrrum Íslendingaliðsins Stoke yfir bestu og verstu útlendinga félagsins frá upphafi. Enski boltinn 30. júní 2008 16:30
Aðeins einn nýr leikmaður hjá United í sumar Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, býst við því að kaupa aðeins einn leikmann til félagsins þegar að félagaskiptaglugginn opnar á nýjan leik á miðnætti í kvöld. Enski boltinn 30. júní 2008 11:48
Dos Santos hafnaði Manchester United og Chelsea Giovani Dos Santos segist hafa hafnað bæði Manchester United og Chelsea og þess í stað ákveðið að ganga til liðs við Tottenham. Enski boltinn 30. júní 2008 11:29
Pellegrino aftur til Liverpool Mauricio Pellegrino er aftur genginn til liðs við Liverpool en í þetta sinn sem hluti af þjálfarateymi Rafael Benitez, knattspyrnustjóra liðsins. Enski boltinn 30. júní 2008 11:24
Barcelona vill fá Shevchenko á láni Eftir því sem kemur fram í El Mundo Deportivo í dag hefur Barcelona áhuga á að fá Andriy Shevchenko að láni frá Chelsea. Enski boltinn 30. júní 2008 10:50
Villa reiðubúið að láta Barry fara Martin O'Neill, knattspyrnustjóri Aston Villa, segir að félagið sé reiðubúið að láta Gareth Barry fara frá félaginu ef Liverpool er tilbúið að greiða uppsett verð. Enski boltinn 30. júní 2008 09:28
Barry ítrekar að hann vill fara til Liverpool Miðjumaðurinn Gareth Barry vill ólmur ganga til liðs við Liverpool. Aston Villa vill halda honum en hann er efstur á óskalista Liverpool. Enski boltinn 29. júní 2008 17:00
Spennandi tilboð frá Barcelona Emmanuel Adebayor heldur öllu opnu og segir að Barcelona hafi gert mjög spennandi tilboð í þjónustu sína. AC Milan hefur hingað til verið í forystu í kapphlaupinu um leikmanninn. Enski boltinn 29. júní 2008 14:15
Barmby: Tilbúnir í úrvalsdeildina Nick Barmby segir að ekki verði hægt að bóka nein stig gegn Hull City á næsta leiktímabili. Liðið komst í fyrsta sinn í úrvalsdeildina með sigri í umspili 1. deildarinnar síðasta tímabil. Enski boltinn 28. júní 2008 20:00
Aðalatriðið er Englandsmeistaratitillinn Rafa Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að sitt æðsta markmið sé að binda enda á bið félagsins eftir Englandsmeistaratitlinum. Enski boltinn 28. júní 2008 17:16
Scolari tekur sína menn með Það er algengt að nýir knattspyrnustjórar breyti til í starfsliði hvers félags. Luiz Felipe Scolari, nýr stjóri Chelsea, er dæmi um það. Enski boltinn 28. júní 2008 15:30
Seedorf vill spila á Englandi Clarence Seedorf, miðjumaður AC Milan, vonast til að leika í ensku úrvalsdeildinni áður en ferli hans lýkur. Tíminn er þó að renna út fyrir leikmanninn sem er 32 ára. Enski boltinn 28. júní 2008 12:15
Hólmar Örn til West Ham Hólmar Örn Eyjólfsson hefur leikið sinn síðasta leik í sumar fyrir lið HK í Landsbankadeildinni. Hann hefur náð samkomulagi við West Ham og mun skrifa undir þriggja ára samning við félagið á næstu dögum. Enski boltinn 28. júní 2008 11:18
Lampard semur við Inter Frank Lampard hefur gert fjögurra ára samning við Inter á Ítalíu eftir því sem France Football heldur fram í dag. Enski boltinn 27. júní 2008 20:02
Elmander til Bolton Johan Elmander hefur gengið til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Bolton frá Toulouse í Frakklandi. Enski boltinn 27. júní 2008 19:05
Heiðar hefur ekkert heyrt Heiðar Helguson segir í samtali við Vísi að hann hefur ekkert heyrt af áhuga ensku B-deildarliðanna Nottingham Forest og Coventry. Enski boltinn 27. júní 2008 18:19
City að ganga frá kaupum á Jo Manchester City hefur náð samkomulagi við CSKA Moskvu um 19 milljón punda kaupverð á brasilíska sóknarmanninum Jo. Mark Hughes hefur lengi á eftir leikmanninum. Enski boltinn 27. júní 2008 16:45
Saha vill ekki fara frá United Louis Saha, sóknarmaður Manchester United , segist vilja vera áfram hjá félaginu og er ákveðinn í að sanna sig eftir að hafa gengið í gegnum erfið meiðsli. Enski boltinn 27. júní 2008 15:58
Mark Hughes vill Ferrari Manchester City hefur blandað sér í kapphlaupið um ítalska varnarmanninn Matteo Ferrari. Hann er á frjálsri sölu en samningur hans við Roma er runninn út. Enski boltinn 27. júní 2008 15:00