Vill gera róttækar breytingar á umhverfi kvennalandsliðsins Handboltaþjálfarinn Einar Jónsson segir að gjörbreyta þurfi landslagi íslenska kvennalandsliðsins hér heima fyrir svo að liðið nái að taka næstu skref á alþjóðlegum vettvangi. Handbolti 5.12.2024 08:32
Hrútfirska hornakonan ein sú markahæsta og öruggasta á EM Perla Ruth Albertsdóttir var ein af markahæstu leikmönnum allrar riðlakeppninnar á EM í handbolta, og hún skoraði úr flestum vítum allra í þeim hluta mótsins. Handbolti 4.12.2024 13:02
Frammistaðan á EM skilaði stelpunum í efri styrkleikaflokk í fyrsta sinn Íslenska kvennalandsliðið í handbolta endaði í sextánda sæti á EM og á fyrir vikið meiri möguleika á því að komast inn á þriðja stórmótið sitt í röð. Handbolti 4.12.2024 09:36
„Langar svolítið að setja punktinn aftan við þetta mót“ Þórey Rósa Stefánsdóttir hefur að öllum líkindum leikið sinn síðasta landsleik fyrir Íslands hönd. Þessu greindi hún frá í samtali við íþróttadeild. Handbolti 3. desember 2024 21:33
Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 19-30 | Heim af EM eftir kennslustund Ísland er fallið úr leik á Evrópumótinu í handbolta. Varð það ljóst eftir ellefu marka tap gegn Þýskalandi í úrslitaleik um hvort liðið færi áfram í milliriðla. Lokatölur 19-30 þar sem íslensku stelpurnar áttu við ramman reip að draga. Handbolti 3. desember 2024 21:20
Svona eru milliriðlar EM: Þórir byrjar á Dönum Svartfjallaland og Sviss tryggðu sér í kvöld síðustu sætin í milliriðlakeppni EM kvenna í handbolta, ásamt Þýskalandi sem vann Ísland. Handbolti 3. desember 2024 21:05
Færeyjum skellt af herraþjóðinni og Holland vann með tuttugu Hollendingar lentu í mestu vandræðunum gegn Íslandi í leikjum sínum í F-riðli EM kvenna í handbolta. Eftir öruggan sigur gegn Þýskalandi vann hollenska liðið svo tuttugu marka sigur gegn Úkraínu, í Innsbruck í kvöld. Handbolti 3. desember 2024 18:43
Elísa veik og ekki með Elísa Elíasdóttir er lasin og verður ekki með íslenska landsliðinu gegn Þjóðverjum í dag. Landsliðsþjálfararnir gera tvær breytingar á leikmannahópi Íslands. Handbolti 3. desember 2024 18:23
Tíu sinnum betri handboltaferð en aðrir hafa farið í Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, leikjahæsta og markahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi, hefur notið sín vel á EM kvenna í handbolta í Innsbruck. Hún hefur mikla trú á íslenska liðinu fyrir úrslitaleik kvöldsins við Þýskaland. Handbolti 3. desember 2024 17:56
„Við sjáum möguleika þarna“ „Ég fór á mitt fyrsta stórmót fyrir 14 árum. Þetta hefur verið svolítil bið og loksins kom þetta,“ segir Sunna Jónsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins um sigur á Úkraínu í fyrrakvöld. Nú er komið að næsta verkefni. Handbolti 3. desember 2024 16:31
„Þær eru búnar að taka nokkra krísufundina“ Díana Dögg Magnúsdóttir þekkir þýska landsliðið betur en margur í íslenska kvennalandsliðinu enda leikið í Þýskalandi undanfarin ár. Hún segir töluverða pressu á Þjóðverjunum og hjá þeim hafi gengið á ýmsu. Handbolti 3. desember 2024 15:01
Þegar stelpurnar okkar unnu Þjóðverja Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Þýskalandi í úrslitaleik um sæti í milliriðli á EM 2024 í kvöld. Til að brýna sig fyrir leikinn mikilvæga geta stelpurnar okkar rifjað upp eftirminnilegan sigur á Þjóðverjum á HM 2011. Handbolti 3. desember 2024 12:31
„Þýska liðið er allt önnur skepna“ „Við þurfum alvöru frammistöðu, og það í sextíu mínútur,“ segir landsliðsþjálfarinn Arnar Pétursson um leik dagsins við Þýskaland á EM kvenna í handbolta. Um er að ræða hreinan úrslitaleik um sæti í milliriðli. Handbolti 3. desember 2024 12:02
„Förum léttar inn í þennan leik“ Rut Jónsdóttir naut sín vel í sigri Íslands á Úkraínu og líður almennt vel á EM í Innsbruck. Spennan er mikil fyrir leik kvöldsins við Þýskaland. Handbolti 3. desember 2024 11:01
Leikdagur í Innsbruck: Hitum logsuðutækin Stelpurnar okkar hafa gert vel í íþróttaborginni Innsbruck hingað til. Þær voru nærri sigri gegn Hollandi, unnu svo sögulegan sigur á Úkraínu. Í kvöld er komið að lokaverkefninu hér í bæ, gegn þýska stálinu. Handbolti 3. desember 2024 08:02
Oft spurt hvernig sé að vinna með „fúla Íslendingnum“ Þórir Hergeirsson, þjálfari kvennaliðs Noregs í handbolta, segist hafa orðið meðvitaðri um það með árunum að stundum mætti hann brosa aðeins meira. Hann viti alveg af því að hann hafi verið stimplaður sem hundfúll og reiður af fólki sem þekki hann ekki. Handbolti 3. desember 2024 07:03
Óánægður eftir brot á leikmanni Þóris: „Lífshættulegt“ Seinni leikjum kvöldsins á EM kvenna í handbolta var að ljúka og unnu stelpurnar hans Þóris Hergeirssonar í norska liðinu risasigur gegn Slóvakíu, 38-15, án þess þó að þurfa nokkuð á sigri að halda. Rautt spjald fór á loft í leiknum. Handbolti 2. desember 2024 21:17
„Þá rennur stressið af manni“ Elín Klara Þorkelsdóttir hefur farið mikinn og stýrt leik íslenska kvennalandsliðsins af mikilli yfirvegun þrátt fyrir ungan aldur á hennar fyrsta stórmóti. Hún nýtur sín vel á EM í Innsbruck. Handbolti 2. desember 2024 20:30
Slóvenía bíður Íslands en ballið búið hjá heimakonum Evrópumót kvenna í handbolta heldur áfram, að stórum hluta í Austurríki, án þess að austurríska landsliðið verði með því það er úr leik eftir tap gegn Slóveníu í kvöld. Handbolti 2. desember 2024 18:39
„Gæsahúð allsstaðar“ „Tilfinningin var æðisleg. Þetta var magnað að vera hluti af þessu liði sem afrekaði þetta. Það var gæsahúð allsstaðar. Þetta var frábært,“ segir Elísa Elíasdóttir sem spilaði vel á línu og í vörn í sigri Íslands á Úkraínu á EM kvenna í handbolta í gær. Handbolti 2. desember 2024 17:17
Hugsaði lítið og stressaði sig minna „Þetta er ótrúlega stórt og mjög skemmtilegt. Það er gott að vera loksins búin að ná þessum sigri,“ segir Díana Dögg Magnúsdóttir, sem átti stóran þátt í 27-24 sigri Íslands á Úkraínu á EM í Innsbruck í gær. Handbolti 2. desember 2024 14:32
Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Hin þýska Heidrun Oesch hafði enga tengingu við Ísland þegar hún heillaðist af karlalandsliðinu í fótbolta á EM 2016 og stuðningssveit liðsins. Hún mætir á landsleiki eins og hún getur og er nú mætt á EM kvenna í handbolta. Handbolti 2. desember 2024 09:00
„Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Þetta er bara geggjað og frábært að hafa allt þetta fólk með okkur,“ sagði landsliðsþjálfarinn Arnar Pétursson eftir að hafa fagnað fyrsta stórmótasigri íslenska kvennalandsliðsins í handbolta. Hann segir mikið hafa verið undir og var ánægður að sjá stelpurnar klára verkefnið vel. Handbolti 1. desember 2024 22:17
„Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir íslenska kvennalandsliðið í handbolta er liðið tryggði sér sinn fyrsta sigur í sögunni á lokamóti EM gegn Úkraínu í kvöld. Handbolti 1. desember 2024 22:16