Fleiri fréttir

Lyfja valið markaðsfyrirtæki ársins 2022
Lyfja var valið markaðsfyrirtæki ársins þegar íslensku markaðsverðlaunin voru afhent í gærkvöldi í 29. skipti við hátíðlega athöfn í Hörpu. Þetta er í fyrsta skipti sem Lyfja hlýtur þessa viðurkenningu.

N1 selur Prime: Krakkarnir hringdu og spurðust fyrir fram á nótt
Hinn vinsæli íþróttadrykkur Prime er komin í sölu á þremur bensínstöðvum N1, í Fossvogi, Lækjargötu í Hafnarfirði og Ártúnshöfða. Markaðsstjóri N1 reiknar með því að drykkirnir seljist upp á augabragði.

Eva Laufey tekur sæti í framkvæmdastjórn Hagkaups
Eva Laufey Kjaran er nýr meðlimur framkvæmdastjórnar Hagkaups. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir líta björtum augum til framtíðarinnar. Eva hefur starfað sem markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups síðan í maí á þessu ári.

Ingibjörg ráðin til Great Place to Work
Ingibjörg Ýr Kalatschan hefur verið ráðin viðskiptastjóri hjá Great Place to Work (GPTW), alþjóðlegri stofnun um vinnustaðamenningu. Ingibjörg er nýflutt til Íslands eftir að hafa starfað erlendis og mun starfa hér fyrir GPTW.

Erling frá Deloitte til Carbfix
Erling Tómasson viðskiptafræðingur og endurskoðandi hefur verið ráðinn til að stýra rekstri og fjármálum Carbfix. Hann hefur nú þegar tekið til starfa.

Stóra fröllumálið: Tollalækkun „lítið skref fyrir Alþingi en stórt skref fyrir franskar kartöflur“
Atkvæðagreiðsla um fjárlagabandorminn fer fram í dag. Meðal þeirra mála sem þingmenn hafa greitt atkvæði um er breytingartillaga Jóhanns Páls Jóhannssonar um lækkun á frönskutolli úr 76 prósentum í 46 prósent. Tollurinn er sá hæsti í prósentum talið á matvöru í íslensku tollskránni. Breytingartillagan var samþykkt með 57 atkvæðum og er ekki laust við að ákveðinn galsi hafi látið á sér kræla á þinginu þegar umræða um málið fór fram.

Kaupmáttarminnkun á milli ára á þriðja ársfjórðungi
Bráðabirgðaniðurstöður Hagstofu Íslands sýna 5,8 prósent aukningu á ráðstöfunartekjum heimilisgeirans á þriðja ársfjórðungi miðað við á sama tíma í fyrra. Gert er ráð fyrir að ráðstöfunartekjur á mann hafi aukist um 2,9 prósent en kaupmáttur þeirra á sama tíma dregist saman um 6,1 prósent. Í kaupmáttarútreikningum er tekið tillit til verðlagsþróunar.

Bjóða upp á beint flug milli Akureyrar og Zürich
Svissneska flugfélagið Edelweiss Air mun hefja áætlunarflug til Akureyrar frá Zürich í Sviss yfir sjö vikna tímabil næstkomandi sumar.

Orð ferðamálastjóra lýsi skorti á upplýsingaöflun og vanþekkingu
Formaður Cruise Iceland segir margt sem kom fram í viðtali fráfarandi ferðamálastjóra við Túrista í síðustu viku ekki vera rétt. Hann segir orð ferðamálastjóra lýsa skorti á upplýsingaöflun og vanþekkingu á uppbyggingu í þessum hluta ferðaþjónustunnar.

Ísrael fyrsta Asíuríkið í leiðakerfi Icelandair
Icelandair hefur í fyrsta sinn sett Asíuríki inn í áætlun sína og hyggst hefja beint flug til Ísraels næsta vor. Meginástæðan er mikill áhugi Ísraelsmanna á Íslandi en helsta forsendan er að Boeing Max-þotan hefur reynst langdrægari en reiknað var með.

Kristín Soffía segir upp stöðu sinni hjá KLAK
Kristín Soffía Jónsdóttir hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra hjá KLAK - Icelandic Startups, síðan í júní 2021 og hefur nú sagt starfi sínu lausu. Kristín gengur til liðs við Leitar Capital á nýju ári.

„Svona myndi ekki gerast í nokkru öðru lýðræðisríki“
Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis leggur til að fjölmiðlar á landsbyggðinni sem framleiða sjónvarpsefni fái hundrað milljónir króna í styrk úr ríkissjóði á næsta ári.

Biðst afsökunar á ónærgætni við tilkynningu um hækkun leiguverðs
Formaður stjórnar Ölmu leigufélags biðst afsökunar á því að hafa ekki sýnt nægilega nærgætni þegar leigjanda hjá félaginu var tilkynnt um þrjátíu prósent hækkun á leiguverði. Hann segir að búið sé að endurskoða verkferla fyrirtækisins og uppfæra þá.

Nýr drykkur trónir á toppnum sem ódýrasti vínandi Vínbúðarinnar
Ísland í dag fjallaði um bjórverð á hinum ýmsu stöðum síðasta miðvikudag, þar sem tekin var punktstaðan á skjali sem heldur utan um ódýrasta áfengið í Vínbúðinni.

Veit um tvo fjölmiðla sem gætu skipt með sér hundrað milljón króna styrk
Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að fjölmiðlar á landsbyggðinni sem framleiða sjónvarpsefni fái hundrað milljón króna styrk úr ríkissjóði á næsta ári. Formaður nefndarinnar getur bent á tvo slíka fjölmiðla, N4 á Akureyri og Víkurfréttir á Suðurnesjum. Framkvæmdastjóri N4 sendi nýverið erindi á nefndina þar sem óskað var eftir hundrað milljón króna styrk.

Afurðastöðvar fái ekki undanþágu frá reglum um ólöglegt samráð
Samkeppniseftirlitið leggst gegn frumvarpsdrögum um undanþágur frá samkeppnislögum til handa afurðastöðvum í kjötiðnaði og telur drögin alls ekki til þess fallnar að treysta íslenskan landbúnað.

Birkir til Arctic Adventures
Birkir Björnsson hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra upplýsingatækni hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures.

Loðna flæðir inn í vinnslur á Vopnafirði og Norðfirði
Fyrstu loðnuförmum vertíðarinnar var landað í tveimur Austfjarðahöfnum í dag. Á Vopnafirði sögðu menn loðnuna sannkallaðan jólabónus en áratugur er liðinn frá því síðast tókst að hefja þar loðnuvinnslu fyrir jól.

Icelandair hefur flugferðir til Ísrael
Icelandair tilkynnti í dag borgina Tel Aviv í Ísrael sem þeirra nýjasta áfangastað. Flogið verður þangað þrisvar á viku frá Keflavíkurflugvelli frá maí á næsta ári til október.

Jólabónus Vopnfirðinga að hefja loðnuvinnslu fyrir jól
Fyrsti loðnufarmur þessarar vertíðar kom til Vopnafjarðar í morgun en þar stendur núna yfir löndun úr Víkingi AK, skipi Brims. Rekstrarstjóri Brims segir loðnuna sannkallaðan jólabónus en tíu ár eru frá því loðnuvinnsla hófst síðast á Vopnafirði fyrir jól.

Ólafur Karl nýr framkvæmdastjóri Marel Fish
Ólafur Karl Sigurðsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Marel Fish. Hann tekur við af Guðbjörgu Heiðu Guðmundsdóttur sem yfirgefur nú Marel og tekur við sem forstjóri tryggingafélagsins Varðar.

Guðbjörg Heiða tekur við Verði
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í starf forstjóra tryggingafélagsins Varðar.

Fyrstu loðnufarmarnir á leið til Vopnafjarðar og Norðfjarðar
Búist er við að fyrstu loðnu þessarar vertíðar verði landað á Austfjörðum á morgun. Von er á farmi til Vopnafjarðar í fyrramálið og öðrum til Norðfjarðar eftir hádegi. Nýafstaðin loðnuleit gefur ekki tilefni til að auka loðnukvótann, að mati Hafrannsóknastofnunar.

Salóme til PayAnalytics
Salóme Guðmundsdóttir hefur verið ráðin sem forstöðumaður í viðskiptaþróun hjá PayAnalytics. Hún mun því taka leiðandi þátt í uppbyggingu og sókn fyrirtækisins á erlendri grundu.

Loðnuveiðar hafnar en ekki talið tilefni til að auka kvóta
Fyrsta loðnan á þessari vertíð er veidd og var skip Síldarvinnslunnar, Beitir, komið með ellefuhundruð tonn nú laust fyrir hádegi. Hafrannsóknastofnun telur ekki tilefni til þess að auka loðnukvótann, eftir auka loðnuleiðangur sem lauk um helgina.

Ætla að endurskoða viðbrögð við erfiðum áföllum starfsfólks
Sjávarútvegsfyrirtækið Brim hf segir miður hvernig mál sjómannsins Boga Theodórs Ellertssonar hafi þróast. Verkferlar verði skoðaðir en fyrirtækið tjái sig ekki um málefni einstakra starfsmanna.

Þrátt fyrir allt „nautheimsk vél“ með tilheyrandi göllum
Gervigreind mun aldrei geta komið í staðinn fyrir mennska listamenn, að mati listamanns sem unnið hefur með slíka tækni. Nýr veruleiki blasi þó við - og hann hefur orðið var við áhyggjur af hinni ógurlega hröðu þróun í ákveðnum kreðsum. Við kynntum okkur nýjasta gervigreindaræðið á samfélagsmiðlum.

Í fyrsta sinn sem hlutfall tengifarþega er hærra hjá Play
Stjórnendur Icelandair og Play hafa birt farþegatölur síðasta mánaðar og er niðurstaðan sú að í fyrsta sinn er hlutfall tengifarþega hærra hjá því síðarnefnda.

Landsbankinn hækkar vexti
Vextir Landsbankans hækka frá og með 12. desember næstkomandi. Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,25 prósentustig, sem og breytilegir vextir á verðtryggðum íbúðalánum.

Bryndís kveður Símann og tekur við markaðsmálum Storytel
Bryndís Sigurðardóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Storytel á Íslandi. Hún tekur við starfinu af Birki Ágústssyni sem hættur er störfum hjá fyrirtækinu.

Ragnar nýr forstöðumaður hjá Landsbankanum
Ragnar Einarsson hefur tekið við nýju starfi forstöðumanns Færsluhirðingar Landsbankans.

Þrjú ný til Aurbjargar
Íslenska fjártæknifyrirtækið Aurbjörg hefur ráðið til sín þrjá nýja starfsmenn í vöruþróunarteymi sitt. Þeim er ætlað að styðja við frekari vöxt fyrirtækisins.

Taka fyrstu breiðþotuna í notkun
Icelandair Cargo hefur tekið fyrstu breiðþotu félagsins í notkun. Fyrsta flug vélarinnar er áætlað í kvöld til Liege í Belgíu. Vélin er af gerðinni Boeing 767.

Spá 9,6 prósent verðbólgu í desember
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólgan hækki um þrjú prósentu stig í desember og verði 9,6 prósent. Þá er því spáð að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,55 prósent milli mánaða. Þrír undirliðir hafa hvað mest áhrif á spáða hækkun.

Alvotech á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi
Viðskipti með hlutabréf Alvotech færðust af First North markaðnum yfir á Aðalmarkað Nasdaq á Íslandi í morgun.

Framkvæmdastjóri Ölmu í felum og neitar að svara spurningum
Framkvæmdastjóri leigufélagsins Ölmu hefur ekki viljað ræða við fréttastofu vegna nýlegrar hækkunar á leigu öryrkja sem leigt hefur íbúð hjá félaginu undanfarin ár. Fjármálaráðherra segir hækkunina óforsvaranlega og formaður VR hefur kallað eftir neyðarlögum á leigufélög.

Ætla að byggja 180 herbergja hótel í Þorlákshöfn
Sveitarfélagið Ölfus og Íslenskar fasteignir ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um fyrirhugaðar framkvæmdir við hótel og afþreyingarmiðstöð í Hafnarvík við Leirur í Þorlákshöfn. Byggt verður allt að 180 herbergja hótel.

Birkir nýr forstjóri TM
Birkir Jóhannsson hefur verið ráðinn forstjóri TM sem er dótturfélag Kviku banka. Hann tekur við af Sigurði Viðarssyni.

Fimmtán mánaða fangelsi og 142 milljóna sekt fyrir meiri háttar skattalagabrot
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í fimmtán mánaða fangelsi og til greiðslu rúmlega 142 milljóna króna í sekt fyrir að hafa skilað röngum skattframtölum og ekki talið fram tekjur frá einkahlutafélaginu Smíðalandi á þriggja ára tímabili.

Mastodon innbyggður í Vivaldi
Vivaldi er orðinn fyrsti vafrinn sem er með samfélagsmiðilinn Mastodon innbyggðan í kóða vafrans. Það er meðal annarra breytinga sem gerðar hafa verið á vafranum.

Ásgeir hefur aldrei komið til Tene
Seðlabankastjóri telur umdeilda vaxtahækkun á viðkvæmu stigi í kjaraviðræðum hafa verið heiðarlega og samningsaðilar hafi þannig vitað hverju þeir væru að ganga að. Hann segir hættulegt að hlusta á hagsmunaaðila og telur að verðbólgan hafi náð hámarki. Fólk sé viðkvæmt fyrir gagnrýni á utanlandsferðir til Tenerife. Sjálfur hefur hann aldrei komið þangað.

Play aldrei verið stundvísara
Flugfélagið Play flutti fjórum sinnum fleiri farþega í nóvember á þessu ári en í sama mánuði á síðasta ári. Sætanýting var tæplega áttatíu prósent og stundvísi rúmlega 98 prósent. Aldrei hafa vélar félagsins verið jafn stundvísar.

Bein útsending: Gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar
Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun gera grein fyrir yfirlýsingu sinni sem birt var í morgun á blaðamannafundi sem hefst klukkan 9:30.

Ráðinn markaðsstjóri nýsköpunarfyrirtækisins Justikal
Sölvi Rúnar Pétursson hefur verið ráðinn markaðsstjóri nýsköpunarfyrirtækisins Justikal.

Sáu sér leik á borði og tóku yfir Brynju yfir jólin
Ölgerðin er með húsnæði við Laugaveg 29, þar sem byggingavöruverslunin Brynja var áður til húsa, á leigu hjá fyrrverandi eiganda hússins. Nýir eigendur taka ekki við húsinu fyrr en í byrjun árs. Næsta mánuðinn er húsið kallað „Pepsi max húsið“.