Fleiri fréttir

80 milljóna króna gjaldþrot Guðna bakara
Skiptum í þrotabú Guðna bakara sem starfrækt var um árabil við Austurveg á Selfossi er lokið. Samtals var tæplega 80 milljóna kröfum lýst í búið að því er fram kemur í Lögbirtingablaðinu í dag.

Segir Kringluna öruggan stað til að heimsækja
Framkvæmdastjóri Kringlunnar segir Kringluna öruggan stað til að heimsækja en minnir á mikilvægi sóttvarna. Engin smit hafi komið upp nýlega í verslunum eða veitingastöðum Kringlunnar.

Röð tilviljana leiddi Þröst óvart inn á heimabanka ókunnugrar konu
Þröstur Þorsteinsson rak upp stór augu í sumar þegar hann hugðist skrá sig inn á heimabanka sinn en lenti, að því er virðist án vandkvæða, inn á heimabanka ókunnugrar konu.

Ingibjörg Arnarsdóttir nýr framkvæmdastjóri hjá Isavia
Ingibjörg Arnarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra á nýju sameinuðu svið fjármála og mannauðs hjá Isavia.

Helga valin viðskiptafræðingur ársins
Helga Valfells, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Crowberry Capital, hefur verið valin viðskiptafræðingur ársins 2020 af Félagi viðskipta- og hagfræðinga. Verðlaunin hafa verið veitt árlega síðan árið 2000.

Vigfús Bjarni mun stýra Fjölskylduþjónustu kirkjunnar
Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur hefur verið ráðinn í forstöðumannsstöðu Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.

Vinnsla eldislax skapar ný störf á Patreksfirði
Sjávarútvegsfyrirtækið Oddi á Patreksfirði hefur hafið vinnslu á laxi frá fiskeldisstöðvum á sunnanverðum Vestfjörðum. Áætlað er að sextán til átján ný störf skapist vegna þessa í byggðinni.

Kvika, TM og Lykill fjármögnun sameinast
Viðræður hafa staðið yfir á undanförnum vikum og hafa framkvæmt gagnkvæmar áreiðanleikakannanir.

Landsbankinn lækkar vexti
Landsbankinn hefur ákveðið að lækka vexti til einstaklinga og fyrirtækja frá og með 1. desember næstkomandi. Ákvörðunin er tekin eftir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í síðustu viku.

Ráðinn tæknistjóri Sendiráðsins
Ólafur Björn Magnússon hefur verið ráðinn tæknistjóri Sendiráðsins þar sem hann mun leiða teymi forritara í hugbúnaðarþróun.

Gangur sagður í viðræðum Rio Tinto og Landsvirkjunar
Nokkur gangur mun hafa verið í viðræðum milli Landsvirkjunar og Rio Tinto varðandi endurskoðun raforkuverðs.

Pylsan kostar nú 500 krónur
Bæjarins bestu pylsur hefur hækkað verð á pylsunni.

Icelandair ekki skoðað að krefja farþega um bólusetningu
Sá möguleiki að gera bólusetningu við kórónuveirunni að skilyrði fyrir því að fá að fljúga með Icelandair hefur ekki verið ræddur innan flugfélagsins.

Handboltakempa sér um mannauð Landspítalans
Gunnar Ágúst Beinteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri mannauðs á Landspítala. Gunnar tekur við starfinu af Ástu Bjarnadóttur sem gegnt hefur hlutverkinu í fimm ár.

Segir íslensk tryggingafélög okra á bíleigendum því þau komist upp með það
Félag íslenskra bifreiðaeigenda segir bílatryggingar hér á landi helmingi eða tvöfalt dýrari en á hinum Norðurlöndunum.

Hækkunin „óneitanlega sérstök“ miðað við ástandið á vinnumarkaði
Launavísitalan hækkaði um 0,7% milli september og október samkvæmt tölum Hagstofu Íslands.

Bobba í Nesfiski segist vera bæði frek og nýjungagjörn
Hún heitir Þorbjörg Bergsdóttir en í Garðinum er hún alltaf kölluð Bobba. Hún er aðaleigandi og stjórnarformaður Nesfisks, stærsta fyrirtækis byggðarinnar, sem heimsótt er í þættinum Um land allt á Stöð 2.

Segir Katrínu ekki hafa svarað svo Hjörleifshöfði var seldur Þjóðverjum
Tólf árum eftir að félagar í Mýrdalshreppi byrjuðu að láta sig dreyma um að hafa eitthvað upp úr því að vinna sand í hreppnum er komin verulega hreyfing á hlutina.

Icelandair fjölgar ferðum yfir jólin
Icelandair stefnir að því að fjölga áfangastöðum og flugferðum yfir jólin, þ.e. frá tímabilinu 16. desember til 10. janúar 2021.

Hjörleifshöfði seldur Íslendingum og Þjóðverjum
Hjörleifshöfði í Mýrdalshreppi hefur verið seldur íslenskum og þýskum aðilum. Þetta herma heimildir fréttastofu. Til stendur að nýta jörðina meðal annars í ferðaþjónustu og vinnslu úr Kötluvikri.

Fresta fjárlögum um viku vegna aðgerðanna á föstudag
Önnur umræða um fjárlög sem fara átti fram á morgun á Alþingi mun frestast um að minnsta kosti viku.

Kaupa Sjóferðir Hafsteins og Kiddýjar
Sjóferðir ehf. hafa keypt tvo báta og bryggjuhús af Sjóferðum Hafsteins og Kiddýjar á Ísafirði. Skrifað var undir kaupsamning fyrir helgi en eigendur Sjóferða ehf. eru þau Stígur Berg Sophusson og unnusta hans Henný Þrastardóttir. Sjóferðir ehf munu halda áfram áætlunarferðum á Hornstrandir og um djúp frá Ísafirði.

Gæti stefnt í óefni dragist ástandið á langinn
Jólaverslunin er komin af stað og er það mat Andrésar Magnússonar, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, að síðustu ár hafi fólk farið að huga að jólainnkaupunum sífellt fyrr.

Aðalheiður Ósk ráðin framkvæmdastjóri Vök
Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Vök Baths og mun hún hefja störf í ársbyrjun 2021.

Fjölmiðlamaður fékk tveggja ára fangelsisdóm fyrir fjárdrátt
Axel Axelsson, athafna- og fjölmiðlamaður á Akureyri sem meðal annars hefur rekið útvarpsstöðina Útvarp Akureyri, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt.

Hækka atvinnuleysisbætur og viðspyrnustyrkur allt að 2,5 milljónir
Ákveðið hefur verið að hækka grunnatvinnuleysisbætur upp í 307.403 krónur á næsta ári og mun heildarhækkun nema 6,2 prósent.

Svona var kynningarfundur ríkisstjórnarinnar fyrir styrki vegna Covid-19
Ríkisstjórnin boðaði til kynningarfundar á framhaldi viðspyrnuaðgerða í Hörpu í dag klukkan 15. Fundurinn var sendur út frá Silfurbergi í beinni á Vísi.

Tvö dómsmál gegn Michelle Ballarin
Búið er að höfða tvö dómsmál gegn bandaríska fjárfestinum Michelle Ballarin. Annað snýr að notkun á markaðsefni sem annar aðili telur sig eiga og hitt um vangoldin laun.

Býður hærri vexti á innlánum í nýju appi
Auður, fjármálaþjónusta Kviku, hefur gefið út app fyrir viðskiptavini sína og tvo nýja innlánsreikninga með hæstu mögulegu innlánsvöxtum í sínum flokkum.

Fjögur hundruð prósenta aukning í netsölu hjá Forlaginu
Bækur mokast út í netsölu og stefnir í mikil bókajól.

MAX-vélar Icelandair teknar í notkun næsta vor
Forstjóri Icelandair Group segir að miðað við fjölda flugferða í núverandi ástandi sé Icelandair með nægilega margar vélar til að anna áætluninni. Bandarísk flugmálayfirvöld gáfu MAX-vélunum grænt ljós til að fljúga á ný í gær.

20 þúsund komnir með Parka
Breytingar urðu á innlendum bílastæðamarkaði þegar appinu Parka var ýtt úr vör. Nú ári seinna eru 20 þúsund búnir að taka það í notkun.

Rukka ekki áskrifendur í desember en óljóst með korthafa
World Class hefur ákveðið að rukka ekki áskrifendur sína í desember eftir að hafa sent áskrifsendum sínum reikning fyrir tveimur vikum í nóvember.

Samið um byggingu 3,3 milljarða byggingar á Alþingisreit
Samningur við ÞG verktaka um þriðja áfanga byggingar fimm hæða skrifstofuhúss á Alþingisreit var undirritaður í dag.

Controlant hlýtur Nýsköpunarverðlaunin
Íslenska fyrirtækið Controlant hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun Íslands árið 2020 sem veitt voru við hátíðlega athöfn í Hörpu.

Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Íslands
Nýsköpunarverðlaun Íslands verða veitt í Hörpu klukkan 11.

Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður stýrivaxtalækkun
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skýrir frá ákvörðun sinni um að lækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur á fundi sem hefst klukkan tíu í Seðlabankanum

Stýrivextir lækka óvænt
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 0,75%

Fuglsvængur fannst í poka af veislusalati
Matvælaframleiðandinn Hollt og gott hefur innkallað Veislusalat í 100 gramma pokum eftir að hluti af fuglsvæng fannst í einum poka af salatinu.

Arion Banki selur skuldabréf fyrir 300 milljónir evra til 3,5 ára
Arion banki seldi í dag skuldabréf til fimm ára að upphæð 300 milljónir evra eða sem nemur rúmum 48,6 milljörðum íslenskra króna.

Fyrrverandi bæjarstjórar í hópi umsækjenda
Alls sóttu 32 um stöðu framkvæmdastjóra Sorpu sem nýverið var auglýst laust til umsóknar.

Góði hirðirinn opnar útibú í miðborginni
Góði hirðirinn mun opna útibú í nýbyggingu á horni Barónstígs og Hverfisgötu í Reykjavík á fimmtudaginn.

Landsbankinn hækkar vexti nýrra óverðtryggðra íbúðalána
Fastir vextir á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum hjá Landsbankanum hækka um 0,15 til 0,20 prósentustig frá og með þriðjudeginum 17. nóvember.

Verð hækkar í flestum flokkum
Vörukarfa ASÍ hefur hækkað um 0,5%-2,6% í sjö verslunarkeðjum frá því í lok maí.

Allir þurfa áfram að bera grímu þrátt fyrir vottorð
Viðskiptavinir í öllum verslunum Haga, sem og verslunum Krónunnar og ELKO, verða áfram skyldaðir til að bera grímu, hvort sem þeir hafa fengið Covid-19 eða ekki.