Fleiri fréttir

Mikil söluaukning á þorrabjór

Sala á þorrabjór hófst á bóndadaginn síðastliðin föstudag. Sala fyrstu helgina var um 23 þúsund lítrar sem er talvert meira en árið 2013 þegar salan fyrstu tvo söludagana var 15,7 þúsund lítrar.

Dræm loðnuveiði dregur úr hagvexti

Hagvaxtaráhrif af mögulega miklum samdrætti í loðnuveiði á milli ára yrðu umtalsverð samkvæmt Hagsjá greiningardeildar Landsbankans.

Sprotafyrirtækið sem fór heljarstökk

Þeir Dri-bræður eins og þeir kalla sig, Sindri Bergmann og Andri Franklin Þórarinssynir, urðu eitt af tíu heppnum teymum sem komust inn í þjálfunarbúðir Startup Reykjavík síðastliðið sumar.

Landsbankinn segir frétt Reuters ranga

Hagfræðideild Landsbankans segir að frétt Reuters (Thomson Reuters, TR) frá því í síðustu viku um meinta erfiðleika Íslands á alþjóðlegum lánamörkuðum sé röng.

95 prósent Íslendinga á netinu

Netnotkun Íslendinga eykst lítillega á milli ára, líkt og fyrri ár, og teljast nú 95 prósent íbúa landsins til reglulegra netnotenda.

Íslensk veiðihjól seld í Japan

Veiðihjólaframleiðandinn Fossadalur á Ísafirði samdi fyrir áramót um sölu og dreifingu á vörum fyrirtækisins í Japan. Fyrirtækið framleiðir tvær tegundir af hjólum.

Loðnuskipin bundin við bryggju

Nær öll íslensku loðnuskipin og tólf norsk skip lágu bundin við bryggjur á Norð- austurlandi um helgina og Hafarnnsóknaskipið Árni Friðriksson er enn á Akureyri eftir að skipið hætti loðnuleit í síðustu viku.

Forsætisráðherra sendir kröfuhöfum tóninn

Forsætisráðherra sendir kröfuhöfum gömlu íslensku bankanna aðvörun. Fari þeir í áróðursstríð þá eigi þeir ekki von á góðu. Störukeppni er á milli stjórnvalda og kröfuhafa.

Ísland með hæstu olíuskatta heims

Skattheimtan sem íslenska ríkið hyggst leggja á olíuvinnslu verður sú hæsta í heimi, ef tekið er tillit til endurgreiðslna sem norska ríkið býður þar í landi. Þetta staðhæfir stjórnarformaður Eykons.

Sýningar Mið-Íslands mala gull

Fimmmenningarnir í uppistandshópnum Mið-Ísland hafa selt um sex þúsund miða á sýningar hópsins í Þjóðleikhúskjallaranum.

Kerecis stefnir á Bandaríkjamarkað innan 18 mánaða

Ísfirska lækningavörufyrirtækið Kerecis stefnir að því að komast inn á bandarískan markað með vörur sínar á næstu 18 mánuðum. Fyrirtækið undirritaði samkomulag við Landspítalann um samstarf við klínískar rannsóknir á þrálátum sárum.

Sala á Hvalabjór heimiluð

Sala og dreifing á Hvalabjór Brugghússins Steðja í Borgarfirði hefur verið heimiluð af Sigurði Inga Jóhannssyni umhverfis- og auðlindamála.

Starfshópar vegna lækkunar á höfuðstól húsnæðislána

Öðrum hópnum er falið að annast undirbúning og gerð lagafrumvarpa í tengslum við beina niðurfærslu höfuðstóls húsnæðislána, en hinum að vinna heildstæðar tillögur vegna ráðstöfunar séreignasparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána.

Netgíró og Dalpay í samstarf

Netgíró, fyrirtæki sem býður viðskiptavinum að fá vörur afhentar áður en þeir greiða fyrir þær, hefur gengið frá samningum við greiðslumiðlunarfyrirtækið Dalpay, samstarfsaðila Valitor og Borgunar.

Landspítalinn og Kerecis undirrita samning í Hörpu

Landspítalinn og fyrirtækið Kerecis ehf. undirrita í dag samning um samvinnu á sviði rannsókna og prófana með það að markmiði að stuðla að þróun lækningatækni og auka nýsköpun á Íslandi.

Íslenska bankakreppan var ein allra dýrasta kreppa í heiminum

Heildarframlag ríkissjóðs til fjármálafyrirtækja eftir bankahrunið í formi eigin fjár, víkjandi lána og ábyrgða nemur samtals 537 milljörðum króna á árunum 2009 - 2013. Óvíst hversu stór hluti er tapaður. Íslenska bankakreppan var ein allra dýrasta kreppa í heiminum með hliðsjón af kostnaði ríkissjóðs, að mati sérfræðinga Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Spennu hleypt á bræðslu Skinneyjar-Þinganess

Afhendingargeta raforku tvöfaldast á Hornafjarðarsvæðinu og afhendingaröryggi eykstmeð tilkomu nýrrar aðveitustöðvar RARIK á Höfn í Hornafirði og nýjum útgangi Landsnets í aðveitustöð á Hólum ásamt 132 kílóvolta tengingu frá Hólum til Hafnar.

Sérsniðin innlán hjá Arion

Arion banki býður innlendum fjárfestum upp á val um fjárfestingu á innlánaformi með ávöxtun hlutabréfamarkaðarins án þess að hætta sé á að höfuðstóll innlánsins skerðist.

Reynir á raunsæi innan slitastjórnanna

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, sagði á Alþingi í morgun að það virtist vera mikill vandi fyrir slitastjórnir föllnu bankanna að samræma vilja mörg þúsund kröfuhafa

Rafstuð getur komið frá handfangi

Philips hefur fundið öryggisgalla sem gæti haft áhrif á Philips Café Gourmet kaffivélar sem framleiddar voru frá mars 2012 til júní 2013. Á vef Mannvirkjastofnunar kemur fram að Philips kalli inn vélarnar í varúðarskyni.

Engar viðræður við kröfuhafa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir í viðtali við Bloomberg að ríkið eigi ekki að koma að viðræðum við kröfuhafa föllnu bankanna.

Sigur Rós hefur ekki fengið krónu fyrir Ágætis byrjun

Þrátt fyrir að plata Sigur Rósar, Ágætis byrjun, hafi selst í bílförmum um allan heim frá því hún kom út fyrir fimmtán árum, hefur hljómsveitin ekki fengið krónu greidda af þeim hagnaði sem orðið hefur til erlendis.

Nýuppgert tengivirki bætir hag bræðslnanna

Landsnet mætir aukinni eftirspurn fiskimjölsverksmiðja á Austurlandi með endurbótum á flutningskerfi raforku í fjórðungnum. Í gær var formlega tekið í notkun, að loknum endurbótum og stækkun, tengivirki Landsnets á Stuðlum við Reyðarfjörð.

Sjá næstu 50 fréttir