Viðskipti innlent

Tæpir tveir milljarðar í uppbyggingu ferðamannastaða

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Stefán
Framkvæmdasjóði ferðamannastaða barst 136 styrkumsóknir og heildarupphæð styrkumsókna voru rúmar 848 milljónir króna. Heildarkostnaðurinn við verkefnin var áætlaður 1,9 milljarðar króna. Framkvæmdasjóðurinn hefur 245 milljónir króna til ráðstöfunar að þessu sinni.

Um er að ræða umsóknir frá bæði opinberum- og einkaaðilum sem hafa umsjón með ferðamannastöðum víðsvegar um land, samkvæmt heimasíðu Ferðamálastofu. Umsóknarfresturinn rann út þann 22. janúar síðastliðinn. Gert er ráð fyrir að yfirferð og mat umsókna ljúki um mánaðarmótin mars/apríl.

Á síðasta ári var tæpum 500 milljónum króna úthlutað til 124 verkefna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×