Viðskipti innlent

Verðtryggingarniðurstöður vonbrigði

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Guðlaugur Þór Þórðarson og Árni Páll Árnason.
Guðlaugur Þór Þórðarson og Árni Páll Árnason.
„Einungis ríkasti fjórðungur þjóðarinnar mun ráða við að kaupa hóflegt húsnæði á óverðtryggðum íslenskum vöxtum. Ríkisstjórnin hefur engar útfærðar tillögur um hvar afgangur þjóðarinnar á að búa,“ segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar í samtali við Fréttablaðið í dag. 

Sérfræðingahópur um afnám verðtryggingar af neytendalánum, sem skipaður var af forsætisráðherra í ágúst 2013, kynnti niðurstöður sínar í gær.

Árni Páll segir að verið sé að gera lág- og meðaltekjufólki erfiðara fyrir með þessum tillögum. Hann segir það vonlausa leið að halda áfram með vaxtastig íslenskrar krónu og óverðtryggð lán.

„Lausn ríkisstjórnarinnar á skuldavandanum á greinilega ekki að felast í stöðugri gjaldmiðli eða lægri vöxtum, heldur því að gera venjulegu launafólki ókleift að kaupa íbúðir,“ segir Árni.

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir ekki verið að ræða aðalatriði málsins. „Aðalatriði er að ef hér væri stöðugleiki í ríkisfjármálum og efnahagsmálum þá værum við ekki að glíma við þessar neikvæðu afleiðingar verðtryggingar og hárra vaxta,“ sagði Guðlaugur.

Framsóknarmennirnir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Frosti Sigurjónsson, formaður viðskipta- og efnahagsnefndar, og Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, vildu ekki tjá sig um niðurstöðurnar við Fréttablaðið þegar eftir því var leitað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×