Viðskipti innlent

Rauður mánudagur í Kauphöllinni

Haraldur Guðmundsson skrifar
Hlutabréf í Marel lækkuðu mest í Kauphöllinni í dag.
Hlutabréf í Marel lækkuðu mest í Kauphöllinni í dag.
Allar tölur voru rauðar í Kauphöll Íslands þegar markaðir lokuðu í dag.

Marel lækkaði mest, um 3,13 prósent í 164 milljóna króna viðskiptum, en félagið sendi frá sér aðkomuviðvörun á föstudag.

Þar á eftir komu Fjarskipti, móðurfélag fjarskiptafyrirtækisins Vodafone, með lækkun upp á 2,61 prósent í 88 milljóna króna viðskiptum, og stoðtækjaframleiðandinn Össur með 2,45 prósenta lækkun í um tíu milljóna viðskiptum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×