Viðskipti innlent

Sigur Rós hefur ekki fengið krónu fyrir Ágætis byrjun

Þrátt fyrir að plata Sigur Rósar, Ágætis byrjun, hafi selst í bílförmum um allan heim frá því hún kom út fyrir fimmtán árum, hefur hljómsveitin ekki fengið krónu greidda af þeim hagnaði sem orðið hefur til erlendis.

Þetta segir bassaleikari sveitarinnar Georg Holm, í viðtali við Viðskiptablaðið í dag. Málaferli hafa staðið yfir í mörg ár en Georg vandar forsvarsmönnum plötufyrirtækisins Play it again Sam, ekki kveðjurnar í viðtalinu, en fyrirtækið gaf plötuna út erlendis.

Hann kallar þá skúrka og krimma, sem hafi stungið öllum ágóðanum af sölu plötunnar sem hefur selst í milljónum eintaka, í eigin vasa. Málaferli hafa staðið yfir vegna þessa í mörg ár og sér ekki fyrir endann á þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×