Viðskipti innlent

Sérsniðin innlán hjá Arion

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Vísir/Pjetur
Arion banki býður nú, í fyrsta sinn frá árinu 2008, innlendum fjárfestum upp á val um fjárfestingu á innlánaformi með ávöxtun hlutabréfamarkaðarins án þess að hætta sé á að höfuðstóll innlánsins skerðist.

Um er að ræða svonefnd sérsniðin innlán sem eru samsett úr bundnu innláni annars vegar og ávöxtunarþætti sem kemur í stað hefðbundinna vaxta hins vegar.

Sérsniðin innlán ­bankans fylgja ávöxtun íslensku OMXI6CAP-vísitölunnar sem skráð er í Kauphöllina og eru bundin í sex mánuði.

Lágmarksinnlán er fimm milljónir króna og höfuðstólstrygging getur verið 100%.

Einnig er hægt að velja lægri höfuðstólstryggingu og eiga þar með kost á hærri ávöxtun en sem nemur ávöxtun vísitölunnar á tímabilinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×