Viðskipti innlent

Mannréttindamál í brennidepli

Bjarki Ármannsson skrifar
Birgir Ármannsson fer fyrir utanríkisnefnd Alþingis.
Birgir Ármannsson fer fyrir utanríkisnefnd Alþingis. fréttablaðið/Stefán
Atkvæðagreiðslu um fyrirhugaðan fríverslunarsamning Íslands við Kína var frestað á þingi í gær. Birgir Ármannsson, formaður utanríkisnefndar, mælti fyrir því að ríkisstjórninni yrði veitt leyfi til að fullgilda samninginn fyrir Íslands hönd.

Staða mannréttindamála í Kína var talsvert rædd í tengslum við samninginn. Birgitta Jónsdóttir, þingkona Pírata, lagði til að beðið yrði með að fullgilda samninginn þangað til að búið væri að afgreiða tillögu hennar um málefni Tíbets.

„Þá getum við svo sannarlega sýnt í verki að við ætlum að beita okkur fyrir því að mannréttindi séu ekki þverbrotin í Kína,“ sagði Birgitta.

Óttarr Proppé, þingmaður Bjartrar framtíðar, tók undir áhyggjur Birgittu af stöðu mannréttindamála í landinu en sagðist telja að samningurinn gæti veitt Íslendingum greiðari leið til þess að ræða þau mál við Kínverja.

Í svipaðan streng tók Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, og sagði það í þágu mannréttinda í Kína að stunda við landið viðskipti frekar en að loka á samskipti við það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×