Fleiri fréttir

Hægari endurreisn

Á sama tíma og skuldatryggingarálag á ríkissjóð hefur lækkað mikið eru horfur um bata í efnahagslífinu að versna. Hagstofan spáir þriggja prósenta samdrætti á þessu ári og því að endurreisnin verði hægari en áður var gert ráð fyrir.

Nýr umboðsmaður viðskiptavina hjá Íslandsbanka

Sigríður Jónsdóttir hefur verið ráðin í starf umboðsmanns viðskiptavina hjá Íslandsbanka og tekur við af Þórleifi Jónssyni, sem lætur af störfum 1. mars næstkomandi. Í tilkynningu frá bankanum segir að Sigríður hafi viðtæka og langa reynslu í fjármálamarkaði en hún starfar nú sem útibússtjóri Íslandsbanka í Mosfellsbæ.

Kínverjum heimilt að eiga í Stormi

Nefnd um erlenda fjárfestingu hefur skilað ráðherra áliti vegna kaupa Nautilus Fisheries Ltd. á 43,75% hlut í Stormi Seafood ehf. sem nefndin hefur haft til umfjöllunar. Nautilus er í eigu kínverskra aðila og því voru áhöld um hvort eignarhluturinn samræmdist lögum um erlenda fjárfestingu.

Landflutningar styðja við Jólaaðstoðina 2010

Landflutningar hafa ákveðið að láta allt flutningsgjald þeirra pakka sem fluttir eru fyrir jólahátíðina renna óskipt til Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og Jólaaðstoðar 2010. Gjaldið er 890 krónur fyrir hvern pakka og vill fyrirtækið með þessu leggja sitt lóð á vogarskálarnar til hjálpar þeim sem minna mega sín, eins og segir í tilkynningu.

Kaupþing komið í formlega slitameðferð

Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem birtur var í gær hefur Kaupþing banki hf. verið tekinn til formlegrar slitameðferðar. Íslensk lög kveða á um að greiðslustöðvun ljúki sjálfkrafa þegar formleg slitameðferð hefst.

Hagstofan: Húseigendur í vanda eru milli steins og sleggju

Fasteignamarkaður er enn í mikilli lægð eftir að hann hrundi í kjölfar falls bankanna. Uppsett verð í eigna lækkar treglega, en raunverð hefur lækkað mikið. Húseigendur sem eru í fjárhagsvanda eru milli steins og sleggju.

Sjóvá ekki selt í bráð

Heiðar Már Guðjónsson og fjárfestar sem honum tengjast, einstaklingar og sjóðir, hafa hætt við kaup á 33 prósenta hlut í tryggingafélaginu Sjóvá. Með kaupunum hefði hópurinn getað fengið forkaupsrétt á helmingi félagsins.

Framtakssjóðurinn átti næsthæsta tilboðið í Sjóvá

Framtakssjóður Íslands, sem er í eigu lífeyrissjóða, átti næsthæsta tilboðið í hlut Seðlabankans í Sjóvá. Hópur fjárfesta undir forystu Heiðars Más Guðjónssonar sem hefur hætt við kaupin vegna seinagangs telur sig ekki hafa fengið skýringar frá Seðlabankanum á töfum.

Þessir skiluðu inn tilboðum í Haga

Ljóst er að hart verður barist um smásölurisann Haga. Framtakssjóður Íslands, KEA, Stefnir, Auður Capital, bandarískir eigendur Eimskips og Saga Fjárfestingarbanki eru á meðal þeirra sem gert hafa tilboð í félagið. Fyrri eigendur hvorki neita því né játa að vera í hópi áhugasamra.

Heildarvelta skuldabréfa 2,23 milljarðar

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,1% í dag í 2,2 milljarða viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,2% í 1,7 milljarða viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði lítillega í 0,6 milljarða viðskiptum.

Atvinnurekendur gagnrýna frumvarp fjármálaráðherra harðlega

Félag atvinnurekenda lýsir yfir furðu sinni á frumvarpi fjármálaráðherra um að ríkinu verði heimilað að semja beint við innkaupastofnanir erlendis um innkaup á rekstrarvörum. „Þar með ætlar ríkisvaldið að bregða sér í hlutverk heildsala og smásala, í staðinn fyrir að eiga viðskipti við verslunarfyrirtæki hér á landi. Viðbúið er að hundruð manna missi vinnuna ef þessar áætlanir ganga eftir,“ segir í yfirlýsingu frá samtökunum.

Baugur og Birgir áttu skuldsettasta pítsafyrirtæki landsins

Fjárfestirinn Birgir Þór Bieltvedt, sem átti og rak pítsafyrirtækið Dominos á Íslandi stýrir nú Domino´s í Þýskalandi. DV greindi frá því í morgun að eignarhaldsfélagið Pizza-Pizza, sem á Dominos, skuldaði tæpa tvo milljarða eða 1800 milljónir.

Friðlýsa Jan Mayen en setja um leið milljarða í olíuleit

Norsk stjórnvöld hafa ákveðið að friðlýsa Jan Mayen. Á sama tíma hafa þau ákveðið að verja 3,4 milljörðum íslenskra króna næstu tvö árin til að undirbúa olíuboranir á norðurslóðum, þar á meðal á hafsvæðinu umhverfis eyna. Friðlýsingin gæti leitt til þess að þjónusta við olíuleit verði umfangsmeiri hérlendis en annars hefði orðið.

Reiknar með 0,5 prósentustiga vaxtalækkun

Greining Íslandsbanka reiknar með því að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur á næsta vaxtaákvörðunarfundi sínum sem er 8. desember næstkomandi.

Seðlabankinn tjáir sig ekki um Sjóvá að sinni

„Þessi staða er nýtilkomin. Á þessari stundu er ekkert hægt að segja um málið,“ segir Stefán Jóhann Stefánsson ritstjóri Seðlabankans aðspurður um söluferli Sjóvá. Sem kunnugt er af fréttum hefur hópur fjárfesta nú dregið sig út úr söluferlinu á Sjóvá.

Spænskum farþegum skemmtiferðaskipa fjölgaði mest

Samtals komu 68.033 farþegar með 73 skemmtiferðaskipum til Reykjavíkur í sumar og er það nánast sami fjöldi og kom í fyrra. Flestir voru ferðamennirnir frá Þýskalandi og hafði þeim fjölgað um rúm 10% frá árinu áður.

Fjárfestahópur hættir við að reyna að kaupa Sjóvá

Fjárfestahópurinn sem átti hæsta tilboðið í tryggingarfélagið Sjóvá hefur sagt sig frá söluferli Sjóvá. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hópnum en Morgunblaðið greinir frá málinu á forsíðu sinni í dag.

Af og frá að reglur hafi verið brotnar við sölu Vestia

Steinþór Pálsson, forstjóri Landsbankans, hafnar því alfarið að verklagsreglur bankans um sölu á fyrirtækjum hafi verið brotnar þegar bankinn seldi eignarhaldsfélagið Vestia til Framtakssjóðs lífeyrissjóðanna.

Staða lífeyrissjóðanna svipuð og 2006

Þrátt fyrir hátt í 800 milljarða tap lífeyrissjóðanna í hruninu er staða sjóðanna svipuð og hún var árið 2006, segir Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur. Hann segir að yfirmenn lífeyrissjóða hafi staðið sig vel.

Tíu aðilar hafa gert tilboð í Haga

Tíu aðilar, bæði innlendir og erlendir, hafa gert tilboð í smásöluverslanarisann Haga sem er í söluferli hjá Arion banka. Forstjóri Haga nýtur enn trausts til að gegna starfinu þrátt fyrir svimandi háa sekt vegna samkeppnislagabrota.

Fasteignakaupsamningum fækkar á ný

Enn dregur úr fasteignakaupum á höfuðborgarsvæðinu. Eftir að fasteignamarkaðurinn virtist vera að taka eilítið við sér í haust, fækkar kaupsamningum aðra vikuna í röð.

Hefur minnst 50 sinnum samsamað sig Fons

Pálmi Haraldsson hefur ekki enn greitt lán sem var til umfjöllunar í frétt sem hann hefur höfðað meiðyrðamál vegna. Þá hefur hann a.m.k fimmtíu sinnum samsamað sjálfan sig félagi sínu Fons í opinberri umræðu þótt hann geri athugsemdir við það í fréttum.

Magnús plataði mig ekki í þetta kjaftæði

Fyrrverandi stjórnarformaður Stíms neitar að gefa upp hver það var frá Glitni sem fékk hann til liðs við verkefnið og sannfærði hann um að taka að sér stjórnarformennsku í félaginu. Það hafi þó ekki verið vinur hans Magnús Pálmi Örnólfsson.

Gæti kostað sex milljarða króna

Í kringum tíu óskuldbindandi tilboð hafa borist Arion banka í allt að 29 prósenta kjölfestuhlut í Högum. Frestur til að skila inn tilboðum rann út á mánudag.

Myndarleg lækkun dráttarvaxta hjá Seðlabankanum

Grunnur dráttarvaxta lækkaði um 0,75% við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands hinn 3. nóvember sl. og því lækka dráttarvextir úr 13,25% í 12,50% fyrir tímabilið 1. - 31. desember 2010.

Orkuveitan skilaði tæplega 17 milljarða hagnaði

Hækkun á gengi íslensku krónunnar og lækkandi fjármagnskostnaður tryggði að rekstur Orkuveitu Reykjavíkur (OR) skilaði 16,8 milljarða króna hagnaði fyrstu níu mánuði ársins samkvæmt tilkynningu frá Orkuveitunni.

Forstjóri með réttarstöðu sakbornings situr áfram

Stjórn Saga fjárfestingabanka tók ákvörðun um það á fundi í gær að Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri bankans, yrði ekki settur í leyfi frá störfum vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á málefnum Glitnis.

Slök vika á fasteignamarkaði höfuðborgarinnar

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 12. nóvember til og með 18. nóvember 2010 var 49. Þar af voru 39 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.211 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,7 milljónir króna.

Hagnaður Eimskips 1,5 milljarðar á fyrstu 9 mánuðum ársins

Hagnaður Eimskips fyrstu níu mánuði árins eftir skatta nam 1,5 milljörðum króna. Þetta er umfram væntingar þrátt fyrir erfið rekstrarskilyrði. Heildarvelta samstæðunnar var 46 milljarðar króna og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjámagnsliði var jákvæður um 5 milljarða króna.

Efast um að heimilt sé að reikna vexti á ósendar kröfur

Talsmaður neytenda efast um að bílalánafyrirtækjum sé heimilt að reikna vexti ofan á kröfur sem aldrei voru sendar til fólks. Þetta er eitt af tuttugu álitamálum sem hann telur vera við endurútreikning bílalána og segir að frumvarp viðskiptaráðherra eyði ekki óvissu fólks með bílalán.

Kostnaður við nýbyggingu íbúða að ná jafnvægi

Ef marka má vísitölu byggingarkostnaðar virðist kostnaður við nýbyggingar íbúðarhúsnæðis vera að ná jafnvægi eftir mikla hækkun í kjölfar falls krónu fyrir liðlega tveimur árum síðan.

Sjá næstu 50 fréttir