Sjóvá ekki selt í bráð 23. nóvember 2010 05:15 Eigendur Sjóvár voru ekki ánægðir með söluverð fyrirtækisins. Skilanefnd Glitnis taldi það of lágt. Viðmælendur Fréttablaðisins telja að hætt verði alfarið við söluna í bili.
Heiðar Már Guðjónsson og fjárfestar sem honum tengjast, einstaklingar og sjóðir, hafa hætt við kaup á 33 prósenta hlut í tryggingafélaginu Sjóvá. Með kaupunum hefði hópurinn getað fengið forkaupsrétt á helmingi félagsins. Fyrirtækjasvið Íslandsbanka hefur séð um söluna á Sjóvá í tæpt ár, eða síðan í janúar á þessu ári. Samið var við fjárfestahópinn um mitt ár um verð og afhendingu hlutabréfa. Eignasafn Íslandsbanka hefur farið með 73 prósenta hlut í tryggingafélaginu síðan fyrirtækinu var bjargað frá gjaldþroti í apríl í fyrra þegar ríkið og fleiri lögðu 11,6 milljarða inn í Sjóvá. Skilanefnd Glitnis, sem á sautján prósent í félaginu, studdi söluferlið í byrjun árs en taldi verðið of lágt miðað við núverandi vaxtastig. Fulltrúar Glitnis höfðu ekki setið við samningaborðið frá í ágúst. Morgunblaðið sagði í gær ástæðuna fyrir því að fjárfestahópurinn hætti við kaupin þá að Már Guðmundsson seðlabankastjóri hefði dregið að innsigla kaupsamninginn með undirskrift. Heiðar útilokaði í október ekki að skrif DV um hann skýrðu tafirnar. Blaðið fjallaði ítarlega um aðkomu hans að íslensku efnahagslífi á árunum fyrir hrun og sagði hann hafa fjárfest gegn krónunni ásamt bandarískum vogunarsjóðum og átt hlut í falli hennar. Heiðar Már vildi ekki tjá sig um söluferli Sjóvár þegar Fréttablaðið leitaði eftir viðbrögðum hans í gær. Í tilkynningu frá fjárfestahópnum segir að Seðlabankanum hafi verið veittur frestur til 22. október síðastliðins til að staðfesta tilboðið, ellegar teldi hópurinn söluferlinu lokið. Ekki var skrifað undir samninginn innan tímamarka og því var hætt við kaupin. Í tilkynningu sem Seðlabankinn sendi frá sér í gærkvöldi segir að bankinn hafi ekki getað tekið afstöðu til sölunnar fyrir þann tíma sem kaupendur settu. Lögmaður kaupendahópsins og einn meðlima hans hafi verið upplýstir um þessa niðurstöðu og ástæðu hennar á fundi í Seðlabankanum. Seðlabankinn getur að öðru leyti ekki tjáð sig opinberlega um ástæðu þess að ekki var hægt að veita svar fyrir áðurnefndan tímafrest. Aðrir viðmælendur gátu lítið sagt. Einn hluthafa taldi líklegt að hætt yrði við söluna í bili. Fjármálaeftirlitið, FME, vann enn að umsókn um hæfi fjárfestahópsins þegar eftirlitinu barst ósk um það á föstudag í síðustu viku að fresta afgreiðslu umsóknarinnar. FME vekur athygli á því að samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi þurfi virkir eigendur tryggingafélaga að uppfylla ýmis skilyrði. Þar á meðal að þeir ráði yfir fjárhagslegum styrk og að orðspor þeirra sé ekki með þeim hætti að það rýri traust félagsins. Ekki fengust svör frá FME um það í gær hvort fjárfestahópurinn hefði uppfyllt skilyrðin eður ei, en aðeins að hætt hefði verið við könnun á hæfi þeirra.jonab@frettabladid.is
Mest lesið Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Viðskipti innlent „Þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu“ Atvinnulíf Kalla inn geislavirka límmiða Neytendur Konur geta tryggt sig á meðgöngu í fyrsta sinn Neytendur Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Viðskipti innlent Að leysa hratt og vel úr málum í stað þess að pirrast Atvinnulíf Verðlagssæti Íslands enn eitt árið komi ekki á óvart Neytendur „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Viðskipti innlent Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Viðskipti innlent Milljónavirði af gini á víðavangi og búið til með íslensku veðri Atvinnulíf Fleiri fréttir Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Regluverk setur langborðinu stólinn fyrir dyrnar Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Stólaleikur í Svörtuloftum Jón stýrir markaðsmálunum hjá N1 Sjá meira