Þessir skiluðu inn tilboðum í Haga Þorbjörn Þórðarson skrifar 22. nóvember 2010 18:02
Ljóst er að hart verður barist um smásölurisann Haga. Framtakssjóður Íslands, KEA, Stefnir, Auður Capital, bandarískir eigendur Eimskips og Saga Fjárfestingarbanki eru á meðal þeirra sem gert hafa tilboð í félagið. Fyrri eigendur hvorki neita því né játa að vera í hópi áhugasamra. Arion banki auglýsti í október eftir tilboðum í Haga. Tíu óskuldbindandi tilboð bárust bæði frá innlendum og erlendum aðilum. Markmiðið hjá Arion banka er að fá einhvern sterkan fjárfesti til að veita fyrirtækinu forystu til lengri tíma, en markmiðið er dreift eignarhald og skráning fyrirtækisins í Kauphöllina. Samkvæmt heimildum fréttastofu skiluðu eftirtaldir aðilar inn óskuldbindandi tilboðum: Kea, Auður Capital, Stefnir, eignastýringarfélag Arion banka, félag sem tengist bandaríska fyrirtækinu Yucaipa sem á 32 prósenta hlut í Eimskip, Framtakssjóður Íslands og Saga Fjárfestingarbanki fyrir hönd ótilgreindra fjárfesta. Þetta eru þau tilboð sem Arion banki er að íhuga alvarlega, samkvæmt heimildum fréttastofu Það sem er sérstakt hér er auðvitað þátttaka Stefnis, þar sem félagið er dótturfélag Arion banka. Þá er talið líklegt að félag tengt fyrri eigendum Haga, þ.e Jóhannesi Jónssyni, Jóni Ásgeiri og fjölskyldu, hafi skilað inn tilboði en það fékkst ekki staðfest. Fréttastofa spurðist margítrekað fyrir um þetta hjá fulltrúum fjölskyldunnar, en þessu var hvorki neitað né játað. Eins og sést af þessari upptalningu eru þetta sjö sundurgreindir aðilar, en önnur nöfn hafa ekki fengist upp gefin. Eins og Arion banki hefur greint frá bárust í heildina tíu óskuldbindandi tilboð í fyrirtækið. Tilboðin mun lægri en menn höfðu gert sér vonir um Arion banki gerir ekki athugasemdir við tilboðsgjafanna og vill ekki tjá sig um þá, en efni fréttarinnar var borið undir fulltrúa bankans. Í skriflegu svari frá Arion banka segir að bankinn muni ekki veita upplýsingar að svo stöddu. Söluferlið muni halda áfram og á næstu dögum hefjist formlegar viðræður við vænlega kaupendur. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu voru tilboðin sem bárust umtalsvert lægri en stjórnendur Arion banka höfðu gert sér vonir um. Bankinn vill þó ekki tjá sig um þetta atriði. Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðsins, sem gerði tilboð í 25 prósenta hlut í Högum, sagði í samtali við fréttastofu í dag að sjóðurinn hefði ekki áhuga að kaupa stærri hlut, fær svo að tilboði sjóðsins yrði tekið. Samkvæmt verðmati sem unnið var á Högum gæti fjórðungshlutur í fyrirtækinu verið tveggja til sex milljarða króna virði. Stefnt að því að ljúka sölu á fyrirtækinu um næstu áramót.
Tengdar fréttir Tíu aðilar hafa gert tilboð í Haga Tíu aðilar, bæði innlendir og erlendir, hafa gert tilboð í smásöluverslanarisann Haga sem er í söluferli hjá Arion banka. Forstjóri Haga nýtur enn trausts til að gegna starfinu þrátt fyrir svimandi háa sekt vegna samkeppnislagabrota. 20. nóvember 2010 13:19 Þrjú á leið í Kauphöllina Þrjú félög hafa þegar boðað opinberlega skráningu á hlutabréfamarkað á næstunni og þrjátíu félög skoðað þá möguleika sem felast í Kauphallarskráningu. Átta fyrirtæki munu í pípunum og geta íhugað að stíga skrefið inn í Kauphöll á næsta ári. 11. nóvember 2010 04:00 Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira
Tíu aðilar hafa gert tilboð í Haga Tíu aðilar, bæði innlendir og erlendir, hafa gert tilboð í smásöluverslanarisann Haga sem er í söluferli hjá Arion banka. Forstjóri Haga nýtur enn trausts til að gegna starfinu þrátt fyrir svimandi háa sekt vegna samkeppnislagabrota. 20. nóvember 2010 13:19
Þrjú á leið í Kauphöllina Þrjú félög hafa þegar boðað opinberlega skráningu á hlutabréfamarkað á næstunni og þrjátíu félög skoðað þá möguleika sem felast í Kauphallarskráningu. Átta fyrirtæki munu í pípunum og geta íhugað að stíga skrefið inn í Kauphöll á næsta ári. 11. nóvember 2010 04:00