Viðskipti innlent

Atvinnurekendur gagnrýna frumvarp fjármálaráðherra harðlega

Frumvarp fjármálaráðherra fær óblíðar móttökur hjá atvinnurekendum.
Frumvarp fjármálaráðherra fær óblíðar móttökur hjá atvinnurekendum.
Félag atvinnurekenda lýsir yfir furðu sinni á frumvarpi fjármálaráðherra um að ríkinu verði heimilað að semja beint við innkaupastofnanir erlendis um innkaup á rekstrarvörum. „Þar með ætlar ríkisvaldið að bregða sér í hlutverk heildsala og smásala, í staðinn fyrir að eiga viðskipti við verslunarfyrirtæki hér á landi. Viðbúið er að hundruð manna missi vinnuna ef þessar áætlanir ganga eftir," segir í yfirlýsingu frá samtökunum.

Atvinnurekendur segja að tilgangur frumvarpsins sé sagður sparnaður í innkaupum fyrir ríkisstofnanir. „Einblínt er á möguleika þess að ganga inn í útboð erlendra innkaupastofnana á mörkuðum fyrir milljónir manna erlendis. Fullyrt er að enginn kostnaður fylgi þessum ríkisinnkaupum erlendis, alveg eins og vörurnar sjái sjálfar um að koma sér til landsins, staðsetja sig á lager og dreifa sér til notenda."

Þá segja atvinnurekendur að frumvarpið sé fullkomlega vanhugsað. Jafnvel þótt ríkið geti keypt vörur og þjónustu erlendis á „heildsöluverði" sé sagan ekki nema hálfsögð. „Reikna þarf með kostnaði við flutninga, utanumhald, lagerhald, dreifingu, rýrnun, viðgerðarþjónustu, öryggismál, bókhald og annað það sem fylgir innflutningi og dreifingu."

Atvinnurekendur segja ennfremur að hér á landi annist fjöldi fyrirtækja innflutning og sölu til opinberra stofnana í harðri samkeppni. „Þúsundir manna starfa hjá þessum fyrirtækjum. Skilaboð frumvarpsins eru að þekking og þjónusta þessa fólks skipti ekki máli; að ríkið geti tekið þetta að sér án nokkurs kostnaðar með því að færa störfin til útlanda.

Skilaboðin eru: Ísland, nei takk." Félagið hvetur fjármálaráðherra til að draga frumvarpið „snarlega til baka."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×