Hagstofan: Horfur á lítilsháttar samdrætti í útflutningi 23. nóvember 2010 09:14
Horfur eru á lítilsháttar samdrætti í útflutningi á líðandi ári. Það má að hluta til rekja til áhrifa frá árinu 2009 en þá voru fluttar út flugvélar fyrir tæpa 23 milljarða króna. Þetta kemur fram í endurskoðaðri þjóðhagsspá Hagstofunnar sem birt hefur verið á vefsíðu hennar. Þar segir að á næstu árum er hins vegar gert ráð fyrir hægfara aukningu útflutnings, þrátt fyrir raungengi sem er lágt í sögulegu samhengi, en það ætti að styðja við útflutningsgreinar. Ástæðuna má einkum rekja til þess að stærstu útflutningsgreinarnar, sjávarútvegur og stóriðja, búa við framleiðslutakmarkanir sem koma í veg fyrir að unnt sé að auka magn framleiðslunnar á skömmum tíma. Staða fiskistofna er háð náttúrulegum skilyrðum og aukning á framleiðslugetu stóriðju tekur nokkur ár. Þrátt fyrir litla magnaukningu í útflutningi á sjávarafurðum og stóriðju er hins vegar gert ráð fyrir að verðmæti útflutnings verði hagstætt á tímabilinu. Hátt verð er á útflutningsafurðum og lágt gengi hefur í för með sér að meira virði fæst í krónum talið. Árið 2011 er reiknað með 1,0% vexti útflutnings en 2,0% vexti árið 2012 og 2,5% vexti árið 2013. Þrátt fyrir þessar lágu vaxtartölur er í spánni gert ráð fyrir mikilli grósku í þjónustuútflutningi og útflutningi á öðrum vörum en frá sjávarútvegi og stóriðju. Atvinnugreinar á borð við ferðaþjónustu og lyfjaframleiðslu búa ekki við sömu höft á framleiðslugetu og stóru útflutningsatvinnuvegirnir og geta því vaxið hratt meðan raungengi er lágt. Undir lok spátímabilsins, árin 2014-2015, er hins vegar gert ráð fyrir nokkurri aukningu útflutnings, vegna aukinnar álframleiðslu. Reiknað er með að innflutningur árið 2010 aukist um 2,7% að magni til. Aukninguna má fyrst og fremst rekja til fleiri utanlandsferða Íslendinga sem kemur fram í auknum þjónustuinnflutningi. Árið 2011 er spáð 2,0% vexti innflutnings en árið 2012 og 2013 er hins vegar spáð í kringum 6% vexti hvort árið fyrir sig en það endurspeglar aukna fjárfestingu.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira