Fjárfestahópur hættir við að reyna að kaupa Sjóvá 22. nóvember 2010 08:11
Fjárfestahópurinn sem átti hæsta tilboðið í tryggingarfélagið Sjóvá hefur sagt sig frá söluferli Sjóvá. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hópnum en Morgunblaðið greinir frá málinu á forsíðu sinni í dag. Það var Heiðar Már Guðjónsson sem var í forystu hópsins en málið hefur hingað til strandað á afstöðu Seðlabankans. Það eina sem vantaði á samning var undirskrift Más Guðmundssonar seðlabankastjóra að því er segir í Morgunblaðinu. Í tilkynningunni segir að undanfarin misseri hefur hópur fjárfesta átt í samningaviðræðum við Eignasafn Seðlabanka Íslands ehf. og Íslandsbanka hf. um kaup á hlutum þeirra í Sjóvá Almennum tryggingum hf. Hópurinn átti hæsta tilboð í félagið í auglýstu söluferli á félaginu sem hófst 18. janúar sl. og Íslandsbanki hf. annaðist. Síðan segir: „Hópurinn veitti seljendum frest til 22. október sl. til að staðfesta fyrir sitt leyti kaupsamning um fyrrgreinda hluti, ella teldi hópurinn að söluferlinu væri lokið án þess að kaup hefðu tekist. Nú um það bil mánuði síðar hefur enn ekki verið tekin afstaða af hálfu seljenda til fyrirliggjandi samnings. Hefur hópurinn því formlega tilkynnt seljendum um að þátttöku hans í ferlinu sé lokið. Fjárfestahópurinn harmar þessa niðurstöðu mjög, eftir ómælda vinnu við að reyna að ljúka viðskiptum með farsælum hætti, en óskar félaginu og starfsmönnum þess hins besta í framtíðinni."
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira