Hefur minnst 50 sinnum samsamað sig Fons 20. nóvember 2010 09:49 Viðskiptablaðið segir að Pálmi Haraldsson hafi minnst 50 sinnum samsamað sig Fons.
Pálmi Haraldsson hefur ekki enn greitt lán sem var til umfjöllunar í frétt sem hann hefur höfðað meiðyrðamál vegna. Þá hefur hann a.m.k fimmtíu sinnum samsamað sjálfan sig félagi sínu Fons í opinberri umræðu þótt hann geri athugsemdir við það í fréttum. Pálmi Haraldsson, athafnamaður, höfðaði máli gegn Svavari Halldórssyni fréttamanni á Rúv vegna fréttar um málefni Fons sem birtist hinn 25. mars síðastliðinn. Fréttin fjallaði um lán sem Fons fékk hjá Glitni í desember 2007 upp á tvo og hálfan milljarð króna. Þá var almennt fjallað um þátttöku Pálma í íslensku viðskiptalífi og því haldið fram að þessir peningar, sem fengnir voru að láni, fyndust hvergi. Pálmi höfðaði í kjölfarið meiðyrðamálið, en ein af málsástæðum hans var að í fréttinni hefði hann verið samsamaður eignarhaldsfélagi sínu, Fons, en talað var um lánveitingar til hans sjálfs en ekki félagsins. Í greinargerð Karls Axelssonar, lögmanns Svavars sem fréttastofa hefur undir höndum, segir að Pálmi hafi sjálfur margsinnis samsamað sig Fons. Þannig hafi hann að minnsta kosti fimmtíu sinnum gert þetta, m.a með því að tala um sjálfan sig þegar hann er að tala um Fons. Þá hafi skiptastjóri Fons höfðað mál á hendur Pálma og krafið hann endurgreiðslu vegna persónulegra útgjalda sem hann lét Fons greiða, en þetta bendi til að hann hafi ekki gert neinn greinarmun á sjálfum sér og Fons. Þá segir í greinargerðinni að Pálmi hafi ekki getað sýnt fram á að nákvæmlega þeir fjármunir sem Fons fékk að láni hjá Glitni í umrætt sinn, 2,5 milljarðar króna, hafi verið nýttir til að greiða upp lán hjá Landsbankanum annars vegar og kaupa á bréfum hjá sjóði 9 hjá Glitni, en Svavar hélt því fram í fréttinni að peningarnir fyndust hvergi, eins og áður segir. Þá hafi Pálmi fengið fjöldann allan af lánum hjá Glitni, alls 22 milljarða á nokkra mánaða tímabili frá desember 2007. Þá segir í greinargerðinni að hafi Pálmi ráðstafað peningunum eins og hann segist hafa gert þá verði hann að sýna fram á það með óyggjandi hætti, en hann hafi ekki orðið við áskorunum um slíkt. Ef ráðstöfun lánsins hafi farið í uppgreiðslu á lánum þá sé það jafnframt brot á upphaflegum lánasamningi því samkvæmt honum átti að ráðstafa láninu í fjárfestingar. Uppgreiðsla á láni hjá Landsbankanum falli ekki undir slíkt. Þá sýni gögn að lánið hafi ekki verið greitt og það sé í vanskilum, en að mati Svavars sýni þetta að peningarnir hafi horfið.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira