Viðskipti innlent

Gæti kostað sex milljarða króna

Um tíu tilboð hafa borist Arion banka í kjölfestuhlut í Högum. Fréttablaðið/Anton
Um tíu tilboð hafa borist Arion banka í kjölfestuhlut í Högum. Fréttablaðið/Anton

Í kringum tíu óskuldbindandi tilboð hafa borist Arion banka í allt að 29 prósenta kjölfestuhlut í Högum. Frestur til að skila inn tilboðum rann út á mánudag.

Á vef Viðskiptablaðsins í gær segir að í næstu viku verði tekin ákvörðun um næstu skref í söluferlinu.

Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er ekki útilokað að lífeyrissjóðirnir eigi eitt tilboðanna, hugsanlega með Framtakssjóði Íslands. Verðmæti kjölfestuhlutar gæti numið allt frá rúmum tveimur til sex milljarða króna, miðað við mögulegt hlutafjárvirði sem greiningarfyrirtækið IFS gerði fyrir skemmstu. - jab






Fleiri fréttir

Sjá meira


×