Landflutningar styðja við Jólaaðstoðina 2010 23. nóvember 2010 14:20 Fyrirframgreiðsla upp á tvær milljónir var afhent í dag. Mynd/Hreinn Magnússon.
Landflutningar hafa ákveðið að láta allt flutningsgjald þeirra pakka sem fluttir eru fyrir jólahátíðina renna óskipt til Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og Jólaaðstoðar 2010. Gjaldið er 890 krónur fyrir hvern pakka og vill fyrirtækið með þessu leggja sitt lóð á vogarskálarnar til hjálpar þeim sem minna mega sín, eins og segir í tilkynningu. Fyrirframgreiðsla að upphæð tvær milljónir króna var afhent formanni Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur í dag. „Á hverju ári eru nokkur þúsund jólapakkar fluttir landshlutanna á milli með bílum Landflutninga og fannst okkur tilvalið að taka höndum saman við viðskiptavini okkar og létta Mæðrastyrksnefnd róðurinn með því að færa ykkur tekjurnar af jólapakkaflutningunum," sagði Jörundur Jörundsson, framkvæmdastjóri Landflutninga, þegar hann færði Ragnhildi G. Guðmundsdóttur, formanni Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, fyrirframgreiðsluna. Framlagið verður afhent að fullu þegar uppgjör liggur fyrir í janúar. Ragnhildur þakkaði fyrir velvild Landflutninga og viðskiptavina félagsins og sagði að það munaði heldur betur um þetta framlag til jólaaðstoðarinnar. „Fyrirframgreiðslan ein er drjúgur skildingur upp í jólahangikjöt handa þeim 4-5 þúsund fjölskyldum sem við eigum von á að leiti eftir aðstoð okkar fyrir jólin, svo þetta er sannkölluð gleðigjöf," sagði Ragnhildur. Hún sagði jafnframt að Landflutningar væru með fyrstu fyrirtækjum landsins til að svara ákalli hjálparsamtakanna um stuðning við jólaaðstoðina og vonandi myndu fleiri fylgja þeirra fordæmi.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira