Fleiri fréttir

Nærri 6 milljarða viðskipti með skuldabréf

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,3% í dag í 5,7 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,4% í 2,6 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,2% í 2,9 ma. viðskiptum.

Yfirveðsett íbúðalán í bönkum nema 85 milljörðum

Um mitt ár 2010 voru útlán með veði í íbúðarhúsnæði hjá viðskiptabönkunum 261 milljarðar kr. og 42 milljarðar kr. hjá sparisjóðunum, eða samtals 303 milljarðar kr. Um 28% þessara lána eru með veðhlutfall sem er yfir 100% eða samtals ríflega 85 milljarðar kr.

Aktu Taktu óheimilt að nota orðið Twister

Hérðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað að Aktu Taktu sé óheimilt að nota orðið Twister á matseðlum sínum. Kentucky Fried Chicken (KFC) í Bandaríkjunum eigi réttinn á þessu vörumerki.

Vill rifta meintum gjafagjörningi upp á hálfan milljarð

Sigurbjörn Þorbergsson, skiptastjóri Þreks sem áður rak World Class, mun á næstu dögum höfða mál til að rifta meintum gjafagjörningi. Fyrri eigendur greiddu 25 milljónir fyrir eignir sem skiptastjórinn metur á 500- 700 milljónir.

Smálán: Bannað að lána tekjulágum

Starfsemi smálánafyrirtækja verður starfsleyfisskyld. Starfandi fyrirtæki fá þriggja mánaða frest til þess að afla sér starfsleyfis, samkvæmt nýju lagafrumvarpi sem efnahags- og viðskiptaráðherra hefur boðað um starfsemi slíkra fyrirtækja.

Árleg raunávöxtum lífeyrissjóða 3,1% frá árinu 1997

Íslenskir lífeyrissjóðir eru með um 3,1% árlega raunávöxtun frá árinu 1997 á meðan markaðsraunvextir hafa verið um 4,5%. Þetta kemur fram í áliti frá hinu óháða og sérhæfða fjármálafyrirtæki GAMMA þar sem fjallað er um ávöxtunnarmarkmið lífeyrissjóðanna.

Heildaraflinn jókst um 4% milli ára í október

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum októbermánuði, metinn á föstu verði, var 4,1% meiri en í október 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 8,6% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.

Yfirtöku á Exista lokið, 306 milljarða skuld breytt í hlutafé

Kröfuhafar Exista hafa yfirtekið félagið að fullu og er endurskipulagningu þess þar með lokið. Skuldum upp á 2 milljarða evra eða um 306 milljarða kr. var breytt í hlutafé í eigu kröfuhafanna. Þetta kemur fram í Financial Times í dag.

Bankarnir hömluðu nýsköpun í landinu

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra setur Alþjóðlega athafnaviku klukkan 17 í dag. Er þetta í annað sinn sem vikan er haldin hér á landi og segir Katrín ljóst að framtakið í fyrra hafi skapað nauðsynlegt og skemmtilegt umtal um þau tækifæri sem í boði eru.

Hókípókí-vinnubrögð við útboð á borun á Vaðlaheiði

Ræktunarsamband Flóa og Skeiða (RSFS) borar nú rannsóknarholur á Vaðlaheiði þrátt fyrir að hafa ekki mátt bjóða í verkið vegna þess að það er í greiðslustöðvun. Sambandið fór bakleið að verkinu, sem undirverktaki nátengds fyrirtækis. Vegamálastjóri segir þetta skrítið en þó löglegt.

Staða ríkissjóðs betri en spáð var

Staða ríkissjóðs fyrstu níu mánuði ársins var nítján milljörðum króna betri en áætlanir gerðu ráð fyrir, að því er fram kemur í nýjum tölum fjármálaráðuneytisins.

Vill eftirlit frá Vinnumálastofnun til verkalýðsfélaga

„Það fór allt í rugl þegar vinnumálastofnun fór að sjá um þetta,“ sagði Tryggvi Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um eftirlit með bótagreiðslum en honum finnst Vinnumálastofnun ekki vandanum vaxið til þess að hafa eftirlit með þeim fjölda bótaþega.

Gjaldeyrissakamál hugsanlega í uppnámi vegna lagaklúðurs

Gjaldeyrisreglur Seðlabankans voru ekki birtar með réttum hætti fyrr en í október síðast liðnum og voru því óskuldbindandi, að mati hæstaréttarlögmanns. Ef það verður niðurstaða dómstóla gæti það haft áhrif á fjölda mála þar sem menn eru grunaðir um að brjóta gegn höftunum.

AGS: Efnahagsbati hægari vegna seinkunar á fjárfestingum

Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, undir handleiðslu Julie Kozack, heimsótti Reykjavík í byrjun nóvember vegna fjórðu endurskoðun sjóðsins upp á 2,1 milljarð dollara. Þeir telja að efnahagsbatinn muni ganga hægar vegna seinkunnar á fjárfestingaverkefnum.

„Evrópusambandið er ekki korter í þrjú lausn“

„Maður hristir þetta ekki bara úr erminni,“ sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni þegar hann var spurður út í ummæli Ögmundar Jónasson dómsmálaráðherra, sem sagði í fréttum í gær að hann vildi að umsóknarferlið inn í ESB yrði klárað á tveimur mánuðum.

Segir rekstrarkostnað lífeyrissjóða glórulausan

„Þetta er glórulaust í þeim skilningi að sjóðirnir gera nákvæmlega það sama,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR, en hann tók saman rekstrarkostnað sex stærstu lífeyrissjóðanna fyrir árið 2009.

Jóhannes Jónsson hefur greitt fyrir helminghlut í SMS

Jóhannes Jónsson stofnandi Bónuss hefur í dag ásamt erlendum fjárfestum greitt til Arion banka hf. kaupverð á helmingshlut í færeyska verslunarfélaginu SMS. Áður hefur komið fram að verðmæti þessa hlutar sé um 450 milljónir kr.

Ríkisendurskoðun fylgist náið með sparnaði næstu ár

Ríkisendurskoðun mun leggja áherslu á vandamál stjórnvalda og stofnana vegna erfiðrar stöðu ríkissjóðs í stjórnsýsluúttektum sínum á næstu tveimur árum. Sérstök áhersla verður lögð á að ríkisstofnanir standi við sparnaðaráform stjórnvalda.

Segja mál sjömenninganna eiga heima á Íslandi

Ný gögn sem slitastjórn Glitnis hefur lagt fram í New York í skaðabótamálinu gegn sjömenningunum sanna ekkert og sýna að málið á ekki heima þar heldur fyrir íslenskum dómstólum, að mati lögmanna stefndu. Þá telja þeir áhuga íslensku þjóðarinnar á málinu styðja þá kröfu.

Tap lánastofnana á gengislánum nemur 108 milljörðum

Samkvæmt nýju frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra um gengistryggð lán er tap lánastofnana á ólögmæti þessara lána alls 108 milljarðar króna. Frumvarpið felur í sér að öll gengistryggð bíla- og fasteignalán verði talin í sama flokki.

Engar eða litlar fjárfestingar hjá 60% fyrirtækja innan SA

Sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins (SA) hyggjast ekki leggja í umtalsverðar fjárfestingar eða endurbætur á næsta ári, 30% telja það óvíst en einungis 12% hyggjast gera það. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á fjárfestingaráformum fyrirtækjanna.

Skuldabréf N1 á athugunarlista í Kauphöllinni

Kauphöllin hefur sett skuldabréfaflokk útgefnum af N1 á athugunarlista hjá sér. Ástæðan er tilkynning frá félaginu um að endurfjármögnun og endurfjármögnun BNT, móðurfélags N1, muni ekki ljúka fyrr en á næsta ári.

Yfir þriðjungur atvinnulausra án vinnu í meir en eitt ár

Enn fjölgar í þeim hópi einstaklinga sem hafa verið án atvinnu í meira en ár. Þeir voru nú í lok október 4.614 talsins en höfðu verið 4.534 í lok september. Þetta jafngildir 35% atvinnulausra í október sem er með hæsta hlutfalli sem mælst hefur.

Iceland Glacial útvegar 900 milljónir í nýtt rekstrarfé

Iceland Glacial, fyrirtæki Jóns Ólafssonar, hefur útvegað 8 milljónir dollara eða rétt tæpar 900 miljónir kr. í nýtt rekstrarfé. Þetta kemur fram á vefsíðunni BevNET.com en þar er haft eftir Jóni að þetta fé hafi komið frá „vinum og vandamönnum“.

Vilja hefja byggingu útgerðarmiðstöðvar á Akranesi

Faxaflóahafnir og Akraneskaupstaður leita nú að áhugasömum aðilum til að reisa útgerðarmiðstöð á Akranesi. Unnið hefur verið að undirbúningi málsins um nokkurt skeið. Um er að ræða aðstöðu fyrir útgerð smábáta og aðra hafnsækna starfsemi við Akraneshöfn.

Aðild að ESB og upptaka evru leysir myntvandann

„Það er alveg klárt að aðild að Evrópusambandinu og evrusvæðinu myndi leysa myntvandann sem birtist í fjármálakreppunni hér, bæði frá sjónarhóli verðstöðugleika og frá sjónarhóli fjármálastöðugleika,“ sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri á hádegisfundi Félags viðskipta- og hagfræðinga (FVH) um peningamál í gær. Um leið áréttaði hann að landið gæti sam

Stærsta átak í heimi á sviði nýsköpunar

Alþjóðlega athafnavikan á Íslandi hefst á mánudaginn næstkomandi. Að vikunni koma um 100 lönd og er þetta í annað sinn sem vikan er haldin á Íslandi og í þriðja sinn á heimsvísu.

Þarf ekki að taka við stórri lóð

Reykjavíkurborg er ekki skyldug til að taka við stórri lóð undir atvinnuhúsnæði í Hádegismóum, samkvæmt nýföllnum dómi Hæstaréttar. Dómurinn, sem er fordæmisgefandi, kann að hafa áhrif á réttindi lóðarhafa sem vilja skila lóðum sínum vegna brostinna forsendna.

Bankar og lífeyrissjóðir enn á móti flatri niðurfellingu skulda

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion, sagði þetta að loknum samráðsfundi í dag. „Það er bara verið að velta upp mörgum leiðum, nú þarf að horfa á hvaða leið eru færar.“ Spurður hvort bankinn útiloki almenna aðgerðir sagði Höskuldur: „Já, okkur finnst það liggja í augum uppi að það sé ekki sú leið sem á að fara”

Skýrslan unnin út frá hagsmunum fjármagnseigenda

Útreikningarnir eru unnir af fjármagnseigendum og út frá hagsmunum þeirra og eru tölurnar um kostnað því vart marktækar, segir formaður Framsóknarflokksins. Þingmaður Hreyfingarinnar segir vel svigrúm fyrir almenna leiðréttingu á lánum en forsætisráðherra segir líklegt að fara þurfi samsetta leið.

Skatttekjur minni en vænst var

Þær aðgerðir sem núverandi ríkisstjórn hefur ráðist í með það að markmiði að auka skattheimtu hafa sumar hverjar ekki borið áætlaðan árangur. Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka. Þar er vakin áthygli á því að þótt skatttekjur hafi aukist á fyrstu níu mánuðum ársins séu þær ekki eins miklar og áætlanir gerðu ráð fyrir.

Líkur á enn frekari fækkun starfa

Vandinn sem þjóðin býr við í dag sé heimatilbúinn og aðgerðaleysi eykur enn á vandann, sagði Vilmundur Jósefsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, á fundi samtakanna á Akureyri í morgun.

Tvö þúsund fyrirtæki stefna í vanskil

„Ef okkur tekst að koma fram með einhver úrræði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki er ég sannfærð um að það muni draga úr alvarlegum vanskilum,“ segir Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Credit­info á Íslandi.

Tekjur GM aukast á milli ára

Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors hagnaðist um tvo milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði 224 milljarða króna, fyrir skatta og gjöld á þriðja ársfjórðungi.

Smáralind skráð í Kauphöllina

„Með skráningu eigna á markað fer stór hluti af eignum okkar í einu vetfangi. Þessar eignir sem fóru inn í bankana þurfa að fara úr þeim sem fyrst,“ segir Helgi S. Gunnarsson, forstjóri eignarhaldsfélagsins Regins, dótturfélags Landsbankans. Hann telur dreift eignarhald sem felst í markaðsskráningu farsæla lausn.

Sjá næstu 50 fréttir